Það sem Panamaskjölin opinbera um listheiminn

Stærsta lista­verka­safn ver­aldar er ekki opið almenn­ingi. Fæstir vita að það sé til. Í hinni svoköll­uðu frí­höfn í Genf eru yfir ein milljón verka geymd, þar á meðal verk eftir Vincent Van Gogh, Matisse og Pablo Picasso. Eign­ar­hald þess­ara verka fer leynt, en Panama­lek­inn hefur varpað ljósi á hluta safns­ins og hverjir eiga það.

​Það kann að vekja furðu margra að sjá nöfn löngu lát­inna mál­ara víða í skjölum Mossack Fonseca. Marc Chagall, Matisse og meira að segja Vincent Van Gogh sem í lif­anda lífi náði ekki að selja eitt ein­asta verk, má finna þarna flakk­andi á milli aflands­fé­laga. Í sumum til­vikum er verið að fela eignir til að kom­ast undan erfða­skatti. Í öðrum er um að ræða langar fléttur til að fela raun­veru­legan selj­anda verk­anna á upp­boðum, og kom­ast þannig hjá því að greiða skatta af söl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár