Mynd: Úr safni.

Upprisa hins illa

Jacinda Ardern for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands hefur tek­ist á við myrkasta tíma í sögu lands­ins með því að reyna að setja sig í spor fórn­ar­lamba mann­skæð­ustu skotárásar í sögu lands­ins.

Nýja-Sjáland, eyríki úti fyrir hinni risa­vöxnu Ástralíu. Þar búa 4,7 millj­ónir manna, litlu færri en í Noregi (5,2 millj­ónir). Á Nýja-Sjálandi hefur á und­an­förnum árum byggst um sterkur efna­hagur og fram­þróun verið mikil, ekki síst vegna þess að inn­flytj­endur hafa hjálpað fyr­ir­tækjum að stækka og verða stöndugri. Land­bún­aður í land­inu er fram­sæk­inn og í vax­andi mæli hefur landið notið góðs af stækkun milli­stétt­ar­innar í Asíu - sem vex um meira en 50 millj­ónir á ári hverju, með til­heyr­andi marg­feld­is­á­hrifum á eft­ir­spurn eftir hinum ýmsum vörum og þjón­ustu sem flutt er út frá Nýja-Sjálandi.

Fjölmenningin

Und­an­farin tíu ár hafa markast af þessu skeiði: Landið hefur opn­ast meira en það gerði áður og farið úr því að vera fremur eins­leitt í það vera með fjöl­breytt­ara mann- og efna­hags­líf. Ekki ósvipað því sem hefur verið að ger­ast á Íslandi á und­an­förnum árum, þar sem útlend­ingar hafa komið til Íslands til að vinna og lagt mikið til á miklum upp­gangs­tíma í efna­hags­líf­inu. Um tíu pró­sent skatt­greið­enda á Íslandi eru nú af erlendu bergi brotnir. Árið 2015, þegar efna­hags­lífið tók mik­inn kipp upp á við, ekki síst vegna ferða­þjón­ustu, þá voru tæp­lega 75 pró­sent af nýjum skatt­greið­endum erlendir rík­is­borg­arar, inn­flytj­endur. Sam­bæri­leg hlut­föll hafa fyrir hendi und­an­farin ár.

Nýja-Sjáland er eins og öll önnur lönd, ekk­ert eyland í alþjóða­væddum heimi. Þar hefur verið nokkuð hörð umræða um inn­flytj­endur og upp­risa öfga­hópa - ekki síst þeirra sem telja að hvíti mað­ur­inn sé æðri öðrum - hefur verið þó nokkur. Um 16 pró­sent aukn­ing hefur verið á hat­urs­glæpum frá 2015 til 2017, sam­kvæmt því sem breska rík­is­út­varpið tók saman, sem er sam­bæri­legt við aukn­ing­una í Banda­ríkj­unum. Þetta er mikil aukn­ing í sögu­legu sam­hengi.

Hugmyndafræði í farteskinu

Enginn bjóst við því að landið yrði vett­vangur hinnar skelfi­legu árásar á mosk­una í Christchurch, þar sem 50 lét lífið og tugir særð­ust. Glæp­ur­inn minnti að því leyt­inu til á fjöldamorð Anders Breivik í Noregi, 22. Júlí 2011, þegar hann drap 77 í þaul­skipu­lagðri árás á stjórn­sýsl­una í Osló og sam­komu ung­menna í Útey. Maðurinn, Ástr­al­inn Brenton Tarrant, sem réðst gegn múslimum í tveimur moskum - þar sem meðal ann­ars þriggja ára barn, sem kom hlaup­andi að byssu­mann­inum skelf­ingu lostið, var meðal fórn­ar­lamba - átti eitt atriði sam­eig­in­legt með Breivik.

Hann var með hug­mynda­fræði­legan til­gang í fartesk­inu, stefnu­yf­ir­lýs­ingu, sem var eins konar útskýr­ing hans á því hvers vegna hann framdi glæp­inn. Yfir­lýs­ingin var send til Jacindu Ardern, for­sæt­is­ráð­herra, og gerð opin­ber á inter­net­inu.

Í frekar illa skrif­uðu 74 síðna stefnu­yf­ir­lýs­ingu sinni, rekur hann hvernig fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagið - ekki síst fjölgun múslima - grefur undan því sam­fé­lagi sem hann virð­ist aðhyll­ast, þar sem hvíti mað­ur­inn er æðstur allra, í þjóð­ern­is­legri upp­hafn­ingu.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands.
Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands.

Auðvelt er að segja, að þessi maður hafi staðið algjör­lega einn að verkn­að­inum og það sé ekki hægt að gera honum það til geðs, að reyna að útskýra glæp­inn út frá hug­mynda­fræði­legri upp­risu hat­urs og sund­ur­lyndis.

En það er engu að síður far­veg­ur­inn sem árásin sprettur upp úr. Og það er tákn­rænt fyrir það hvernig hann nálg­ast verkn­að­inn í skipu­lagn­ingu sinni, að hann hafi verið sýndur í beinni útsend­ingu á Facebook. Hann vildi sýna umheim­inum árás­ina, hámarka hug­mynda­fræði­leg áhrif.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu sinni vitnar hann til áhrifa­valda hægri manna í Banda­ríkj­unum og orða sem þeir hafa látið frá sér á opin­berum vett­vangi sam­fé­lags­miðla.

Margt sem kemur fram myndi ekki fá háa ein­kunn fyrir grein­ingu á orsök og afleið­ingu í texta. Orðin standa oft í sam­heng­is­lausu rausi þar sem ber­sýni­legt hatur kemur fram, einkum á fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag­inu. Alveg sam­bæri­legt við það sem kom fram í orðum Breiviks eftir árás­ina í Noregi.

En þó þessir tveir skelfi­legu glæpir standi upp úr, í sitt hvoru land­inu, sem þeir skelfi­leg­ustu í sögu land­anna, þá er glæp­irnir hluti af alþjóð­legu sam­hengi, þar sem öfga­hugsun sprettur upp hjá fólki sem finnst sem fjöl­menn­ingin sé að ógna stöðu þess.

Minnst á Ísland

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu Tarrants kemur Ísland fyrir á einum stað, þar sem hann fjallar um skjól sé hvergi að finna. Ísland er þar nefnt með Póllandi, Argent­ínu og Nýja-Sjálandi.

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur atriði er tengj­ast þessum ferðum til rann­sóknar en gögn benda til þess að Tarrant hafi verið hér á landi árið 2017. Nýsjá­lensk yfir­völd hafa verið í sam­bandi við emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra vegna upp­lýs­ing­anna, að því er stað­fest hefur verið, en að öðru leyti verst emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra frétta af mál­inu.

Í takt við það sem hryðju­verka­menn eins og Tarrant vilja, þá teygja atburð­irnir sig um allan heim - til Íslands eins og ann­arra landa. Áhrifin sitja eftir, umræða um hvernig svona getur gerst og hvort það sé hægt að kæfa niður hat­rið sem að baki verkn­að­inum liggur.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er talað um að nú þurfi að rísa upp gegn múslimum og berj­ast gegn fjöl­menn­ingu.

FBI hefur áhyggjur

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan hefur miklar áhyggjur af fjölgun hat­urs­glæpa, meðal ann­ars gyð­inga­hatri og upp­gangi öfga­hópa hvítra í Banda­ríkj­unum, en þeir eru í vax­andi mæli að fremja ofbeld­is­verk og hvetja til þeirra, ekki síst gagn­vart svörtum.

Á árinu 2017 var fjölg­unin 17 pró­sent og árið þar á undan var fjölg­unin 15 pró­sent, að því er fram kemur í skýrslu FBI sem kom út í nóv­em­ber í fyrra. Í skýrsl­unni eru teknar saman upp­lýs­ingar um hat­urs­glæpi og þeir flokk­aðir niður eftir teg­und og að hverju hat­rið bein­ist. Mesta fjölg­unin hefur verið í glæpum sem tengj­ast gyð­inga­hatri. Þeim hefur fjölgað um meira en 40 pró­sent á þremur árum og voru um 58,1 pró­sent allra hat­urs­glæpa á árinu 2017.

Þar á eftir koma hat­urs­glæpir sem bein­ast að múslimum, en á þremur árum fram að árinu 2018 hefur þeim fjölgað um 30 pró­sent. Á árinu 2016, sem var kosn­ingaár í Banda­ríkj­unum, fjölg­aði þeim um 24,1 pró­sent miðað við árið á undan. Þessi fjölgun hat­urs­glæpa, sem bein­ast að hinum ýmsu hópum, á sér varla for­dæmi í nútíma­sögu Banda­ríkj­anna, séu frá talin árin tvö á eftir árás­unum á tví­bura­t­urn­anna í New York 11. sept­em­ber 2011. Þá opn­uð­ust flóð­gáttir fyrir hat­urs­glæpum víða í Banda­ríkj­unum.

Í skýrslu FBI er sér­stak­lega vikið að því að eitt af því sem skýri það hvers vegna ógnin af hat­urs­glæpum og öfga­hópum - sem síðan geta orðið að jarð­vegi hryðju­verka - er jafn mikil nú að raun ber vitni, sé auð­veld­ari leiðir til að koma boð­skap á fram­færi. Þar eru sam­fé­lags­miðlar mið­punktur hug­mynda­fræði­legrar útbreiðslu þeirra sem séu lík­legir til að fremja hat­urs­glæpi og í versta falli standa fyrir hryðju­verka­árásum.

Áherslan verið önnur

Hjá yfir­völdum í Banda­ríkj­unum hefur meiri áhersla verið lögð á ógnir frá öfga­hópum í Mið-Aust­ur­löndum heldur en inn­an­lands, en í skýrslu FBI segir þó, að vel sé fylgst með þróun inn­an­lands. Mikil þörf sé á því að greina hvernig hat­ursá­róður hefur áhrif á glæpa­tíðni og hvað það sé sem færi þeim sem til­búnir eru að fremja ofbeld­is­glæpi, í þágu mál­staðar sem þeir trúi á.

Í skýrslu emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra um hryðju­verkaógn á Ísland er þetta atriði gert að umtals­efni. Það er að sífellt sé orðið mik­il­væg­ara að eiga alþjóð­legt sam­starf um eft­ir­lit með hryðju­verkaógn. Hún getur komið upp í jarð­vegi hat­urs víða og eitt af því sem gefi vís­bend­ingar um hana, er fram­gerði á opin­berum vett­vangi, svo sem á sam­fé­lags­miðlum, en þeir eru not­aðir til að halda áróðri og sjón­ar­miðum hat­urs á loft og senda skila­boð til þeirra sem til­heyra hópum um sam­eig­in­lega sýn og gildi. „Ógnin getur fyr­ir­vara­laust tekið breyt­ingum og gengið þvert á fyr­ir­liggj­andi grein­ingar hvað varðar mynstur, aðferðir og skot­mörk,” segir meðal ann­ars í skýrsl­unni.

Hat­urs­glæpir og hryðju­verkaógn eru flókin fyr­ir­bæri, hvað þetta varðar. Erfitt getur verið að greina hvenær erum ógn er að ræða og hvenær ekki. Þá veit eng­inn fyrir víst hvert skot­mark í árásum, þegar fólk er að komið á þann stað í hugsun að vera til­búið að ráð­ast á sak­lausa borg­ara með það að mark­miði að valda sem mestu tjóni.

Hat­urs­glæpir og hryðju­verkaógn eru flókin fyr­ir­bæri, hvað þetta varðar. Erfitt getur verið að greina hvenær erum ógn er að ræða og hvenær ekki. Þá veit eng­inn fyrir víst hvert skot­mark í árásum, þegar fólk er að komið á þann stað í hugsun að vera til­búið að ráð­ast á sak­lausa borg­ara með það að mark­miði að valda sem mestu tjóni.

Hvernig lærum við?

Jacinda Ardern hefur sagt í eft­ir­leik árás­ar­innar í Nýja-Sjálandi að hún ætli sér ekki að minn­ast á árás­armann­inn með nafni, til að gefa honum ekki þá frægð sem hann leitar að. Jafn­framt hefur hún lagt áherslu að svör við erf­iðum spurn­ingum - um jarð­veg hat­urs­ins - séu dregin fram með rann­sóknum og öllum steinum verði velt við. Eitt það fyrsta sem hún sagð­ist vilja gera var að herða byssu­lög­gjöf­ina og banna mann­dráp­stól eins og sjálf­virka og hálf­sjálf­virka riffla. Með þeim er hægt að skjóta til bana fjölda manns enda vopnin hönnun til að drepa fólk í einu skoti. Ardern sagði að lög­reglan myndi einnig kafa ofan í hvernig á því stóð að engin við­vör­un­ar­ljós fóru í gang í aðdrag­anda árás­ar­innar.

En ofar öllu hefur hún sagt, í atburði sem þessum þurfi sam­fé­lög að sýna sam­stöðu með fórn­ar­lömbum og aðstand­endum. Gildin sem ráð­ist er í svona árás muni lifa af og sam­fé­lögin verða sterk­ari eftir. Upp­spretta hat­urs­ins er það sem þarf að rann­saka til að hindra að svona geti gerst og svara því hvernig hún varð til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár