Mynd: Pexels

Breytt áform á Mýrdalssandi og skömmum hreytt í umsagnaraðila

Viðhorf Umhverf­is­stofn­unar er „sjálf­hverft“ og afstaða Samtaka ferða­þjón­ust­unnar „ósann­gjörn“. Tékk­neska stór­fyr­ir­tækið EP Power Minerals lætur stofn­anir og aðra umsagn­ar­að­ila fá það óþvegið.

Í byrjun ágúst vildi tékk­neska fyr­ir­tækið EP Power Minerals (EPPM) vinna milljón tonn af vikri á ári úr áform­aðri námu á Mýr­dals­sandi. Hundrað dögum síðar höfðu áætl­an­irnar breyst og aðeins talið raun­hæft að flytja 500 þús­und tonn af efn­inu milli námunnar við Hafursey og Þor­láks­hafnar. „Fyrir utan afköst vega­kerf­is­ins er það einkum afkasta­geta hafn­ar­innar í Þor­láks­höfn og hleðslu­hraði í skip sem að tak­markar hve mikið efni er hægt að flytja út.“

Þetta kemur fram í minn­is­blaði frá verk­fræði­stof­unni Eflu til Skipu­lags­stofn­unar þar sem ábend­ingum og athuga­semdum sem bár­ust við umhverf­is­mats­skýrslu EPPM er svarað af starfs­manni Eflu sem og tveimur full­trúum tékk­neska fyr­ir­tæk­is­ins. Og það með nokkru þjósti. Umhverf­is­stofnun er sökuð um „sjálf­hverft“, „und­ar­legt“ og „skamm­sýnt“ við­horf og ætti að „fara var­lega“ í kröfum sínum.

Afstaða og fram­setn­ing Samtaka ferða­þjón­ust­unnar er sögð „ósann­gjörn“, „órök­rétt“ og „vill­andi“ og þau sökuð um „gróft ofmat“ á sýni­leika námunnar. „Ein sand­náma sem varla sést er ekki að fara að koll­varpa aðdrátt­ar­afli Suð­ur­strand­ar­innar,“ segja for­svars­menn verk­efn­is­ins. Enda sé „varla nokkur sála á ferli í margra kíló­metra rad­íus“ frá hinu áform­aða fram­kvæmda­svæði.

Umsagn­ar­að­ilar þykja að mati fyr­ir­tæk­is­ins draga upp „alltof dökka mynd“ af áhrifum á ferða­þjón­ustu og fleiri þætti. Þeir séu svart­sýnir þegar þeir ættu í raun að vera þakk­látir. „Loftslag jarð­ar­innar, og þar með lofts­lagið á Íslandi, mun líta betur út.“

Og blásið er ítrekað á gagn­rýni á hina miklu þunga­flutn­inga milli námunnar og Þor­láks­hafnar, sem færu fram allan sól­ar­hring­inn, flesta daga árs­ins. „Að bæta við rúm­lega 100 vöru­bíla­ferðum á veg þar sem árdags­um­ferð er nú þegar þús­undir öku­tækja, eru ekki ham­farir,“ segir í svörum fyr­ir­tæk­is­ins sem bendir svo á að miðað við breytt áform megi veg­far­endur um þjóð­veg 1 búast við að mæta full­hlöðnum vöru­bíl frá Mýr­dals­sandi að með­al­tali á 30 mín­útna fresti í stað 15 mín­útna. „Ferða­menn á Suð­ur­lands­vegi mæta öðrum öku­tækjum á hverri ein­ustu mín­útu og stundum oft á mín­útu. Að mati fram­kvæmd­ar­að­ila þá eru hefð­bundnir vöru­bílar á hálf­tíma fresti ekki að fara að breyta upp­lifun ferða­manna mikið.“

EP Power Minerals vill vinna vikur við Hafursey á Mýrdalssandi. Vikurinn myndaðist í Kötlugosum.
EP Power Minerals vill vinna vikur við Hafursey á Mýr­dals­sandi. Vikurinn mynd­að­ist í Kötlu­gosum.

Og áfram heldur fyr­ir­tækið að skjóta á umsagn­ar­að­ila og segir þá reyna að draga upp mynd af þétt­býlum á flutn­ings­leið­inni „sem litlum frið­sælum þorpum“ en haldi því á sama tíma fram að umferðin sé nú þegar mjög þung og þjóð­veg­ur­inn kom­inn yfir þol­mörk. „Að ætla að skella allri skuld nei­kvæðra áhrifa umferð­ar­innar á einn not­anda, sem hefur ekki einni sinni hafið starf­semi [...], er ekki sann­gjarnt og órök­rétt.“

EP Power Minerals, hyggur á efn­is­töku á vikri á Mýr­dals­sandi austan og suð­austan við Hafursey, svo­kall­aðri Háöldu. Vikurinn yrði fluttur út til Evrópu, og mögu­lega Norður-Ameríku, þar sem hann yrði not­aður sem íblönd­un­ar­efni í fram­leiðslu á sem­enti. Honum er ætlað að koma í stað kola­ösku úr kola­orku­verum sem notuð hefur verið um áraraðir. Þar sem áformað sé að loka slíkum verum í Evrópu á næstu árum og ára­tugum þurfi að finna stað­gengil fyrir flug­ösk­una. Og vik­ur­inn, sem mynd­ast hefur við gos í Kötlu, er sagður henta sem slíkur. Sem fyrr segir var gert ráð fyrir milljón tonna vinnslu árlega í umhverf­is­mats­skýrslu EP Power Minerals sem birt var í ágúst. En frá því hefur nú verið horfið.

„Búast má við að efn­istaka hefj­ist eftir u.þ.b. 5 ár og verði þá um 150.000 tonn á ári,“ segir í minn­is­blaði Eflu til Skipu­lags­stofn­unar sem Kjarninn fékk afhent. „Á þrem til fjórum árum verður hún aukin upp í 500.000 tonn. Við þetta fækkar öku­ferðum [flutn­inga­bíla] um helm­ing (niður í 54 ferðir á sól­ar­hring).“

Er þarna átt við að áform­uðum öku­ferðum fækki um helm­ing, því þær eru vissu­lega ekki farnar ennþá.

Vinnslan og flutningarnir miklu

Skipta má helstu athuga­semdum umsagn­ar­að­ila í tvennt. Annars vegar lúta þær að námunni sjálfri og hins vegar að flutn­ing­unum, líkt og Kjarninn hefur fjallað um í mörgum fréttum síð­ustu vikur.

„Sú ályktun að starf­semin hafi óveru­leg áhrif á úti­vist og ferða­mennsku eins og hún er skipu­lögð er röng,“ sagði t.d. í umsögn Mýr­dals­hrepps en náman yrði innan sveit­ar­fé­lags­ins. Er það mat sveit­ar­stjórnar að áhrif á umferð „séu veru­lega nei­kvæð og að þær álykt­anir sem dregnar séu í skýrsl­unni lýsi miklu skiln­ings­leysi á aðstæðum á þjóð­veg­inum á Suð­ur­landi“.

Ósanngjarnt og órökrétt

For­svars­menn EP Power Minerals svara því til að það sé ósann­gjarnt og órök­rétt að ætla „að skella allri skuld nei­kvæðra áhrifa umferð­ar­innar“ á fyr­ir­tækið. „Það er nú þegar mjög þung umferð á Suð­ur­landi og því er það mat fram­kvæmd­ar­að­ila að við­bótin og breyt­ingin verði ekki veru­leg.“

Allir jafnir fyrir lögunum

Í umsögn Rangár­þings eystra, eins þeirra sveit­ar­fé­laga sem áformuð flutn­ings­leið liggur í gegnum, segir að með svo mik­illi aukn­ingu á umferð þungra öku­tækja muni álag og slit á veg­inum aukast mikið.

„Núver­andi not­endur þjóð­veg­ar­ins slíta veg­inum mis­mikið og borga við­hald hans í gegnum skatta og gjöld á elds­neyti og öku­tæki, hvort sem það eru flutn­inga­fyr­ir­tæki, verk­takar, rútu­fyr­ir­tæki, bíla­leigur eða aðrir aðilar, þá eru allir jafnir fyrir lög­unum og hafa sama rétt til að nota inn­viði,“ svarar EPPM. „Að ætla að setja auka­lega kröfur á einn not­enda, sem hefur ekki einni sinni hafið starf­semi og verður lítið hlut­fall af heild­ar­um­ferð og er sam­bæri­legt efn­is­flutn­ingum úr öðrum stórum námum, er ekki sann­gjarnt og órök­rétt.“

Mun ekki hafa teljandi áhrif á lífsgæði

Sveit­ar­fé­lagið Ölfus setti í sinni umsögn spurn­ing­ar­merki við áhrif verk­efn­is­ins á lífs­gæði íbúa Þor­láks­hafnar og þá fyrst og fremst hvað varðar sjón­ræn áhrif mann­virkja og umferð­ar­þunga tengdan starf­sem­inni.

„Mann­virki í Þor­láks­höfn verða eins og hvert annað atvinnu­hús­næði og mun ekki hafa nein telj­andi áhrif,“ segir m.a. í svari EPPM.

Mörk framkvæmdasvæðisins við Hafursey eru merkt með gulri línu.
Mörk fram­kvæmda­svæð­is­ins við Hafursey eru merkt með gulri línu.

Lítið ryk

Umhverf­is­stofnun bendir m.a. á að stórir bílar séu mun mik­il­virk­ari í að þyrla upp vegryki en litlir bílar. „Þessir miklu efn­is­flutn­ingar fara í gegnum nokkra þétt­býl­is­staði og því við­búið að loft­mengun á þeim stöðum muni aukast.“

EPPM svarar því til að umferð í gegnum þétt­býli sé almennt frekar hæg og lítið ryk þyrlist upp við þær aðstæður. „Nú þegar er mikil umferð stórra bíla, bæði flutn­inga­bíla, vöru­bíla og rúta og á fram­kvæmd­ar­að­ili ekki von á því að aukn­ing í loft­mengun af hans völdum verði tals­verð.“

Umhverf­is­stofnun benti einnig á að ekki lægi fyrir sam­komu­lag við við­kom­andi ríki um aukin nei­kvæð umhverf­is­á­hrif á Íslandi fyrir hugs­an­legan sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda erlendis.

Fram­kvæmda­að­il­inn segir í svari sínu að „efn­istakan í Litla-Sand­felli“ sé lít­ill hluti fram­leiðslu­ferlis sem­ents, og í raun umhverf­is­væn­asti hluti ferl­is­ins.

Þarna hefur eitt­hvað slegið saman hjá verk­fræði­stof­unni Eflu. Litla-Sandfell er í Þrengslum og því víðs fjarri Mýr­dals­sandi. Hins vegar vinnur Efla nú einnig að gerð umhverf­is­mats fyrir Eden Mining, fyr­ir­tækis sem hyggur á útflutn­ing á móbergi úr Litla-Sand­felli til sem­ents­fram­leiðslu, líkt og Kjarninn hefur ítar­lega rakið.

Aðrar þjóðir taka á sig mestalla losun Íslendinga

EP Power Minerals er ekki alls kostar sam­mála mati Umhverf­is­stofn­unar á lofts­lags­þætti vik­ur­námunnar og segir í svörum sínum að Ísland sé að spara mikla losun í sínu bók­haldi með því að láta aðrar þjóðir fram­leiða sem­ent fyrir sig. „Ef Ísland fer í samn­inga við aðrar þjóðir þá mun Ísland koma mjög illa út úr því þar sem að aðrar þjóðir fram­leiða og taka á sig mest­alla losun sem að neysla Íslend­inga veldur.“

Vísað er til greinar í Kjarn­anum þar sem haft er eftir pró­fessor í umhverfis- og bygg­inga­verk­fræði við Háskóla Íslands að mæld losun inn­an­lands gefi bjag­aða mynd af raun­veru­legri losun þegar fram­leiðsla og flutn­ingur ger­ist að lang­mestu erlendis. „Umhverf­is­stofnun ætti því að fara var­lega í að krefj­ast milli­ríkja­samn­inga sem fela í sér að taka ábyrgð á eigin neyslu.“

Umhverf­is­stofnun gerir enn­fremur athuga­semd við að fyr­ir­tækið meti í skýrslu sinni aðeins áhrif vinnsl­unnar á losun á heims­vísu en ekki sér­stak­lega hér á landi.

„Áhrif á lofts­lag eru veru­lega jákvæð,“ svarar fram­kvæmda­að­il­inn. „Loftslag og umhverf­is­á­hrif vita ekki hvað landa­mæri eru.“

Hvað námuna varði yrði losun frá 5 hjóla­skóflum, 5 vöru­bílum og raf­knúnum færi­böndum hverf­andi í los­un­ar­bók­haldi Íslands. „Að ætl­ast til að þetta fá tæki séu sér­stak­lega talin fram í los­un­ar­bók­haldi Íslands er ekki nauð­syn­legt.“

Ekkert til að fjalla um

Þá gagn­rýnir Umhverf­is­stofnun rýra umfjöllun í skýrsl­unni um svo­kall­aðan núll­kost en lögum sam­kvæmt á fram­kvæmda­að­ili að gera grein fyrir slíkum kosti og meta lík­lega þróun umhverf­is­ins án fram­kvæmdar. „Umhverf­is­stofnun bendir á að engin önnur umhverf­is­á­hrif eru rædd undir þessum lið í skýrsl­unni en lofts­lags­mál. Umræðan er því öll á for­sendum sem­ents­fram­leiðslu.“

Svar: „Það er af því að sem­ents­fram­leiðsla er for­senda og til­gangur þessa verks. Í núll­kosti verður engin breyt­ing á Íslandi og ekk­ert til að fjalla um, en í sem­ents­fram­leiðslu þarf að nota annað efni.“

Mögulegar akstursleiðir með vikurinn að Þorlákshöfn voru dregnar upp á korti í matsskýrslu EP Power Minerals.
Mögu­legar akst­ursleiðir með vik­ur­inn að Þor­láks­höfn voru dregnar upp á korti í mats­skýrslu EP Power Minerals.

Umhverfismat – ekki bókhaldsmat

Að end­ingu seg­ist Umhverf­is­stofnun telja að lofts­lags­á­vinn­ingur sem sé ætlað að koma fram í öðru landi geti ekki talist sem rök­stuðn­ingur fyrir umtals­verðum umhverf­is­á­hrifum á Íslandi. „Þetta er umhverf­is­mat, ekki bók­halds­mat,“ segir í svari EP Power Minerals. Loftslag virði engin landa­mæri og losun í einu ríki hafi áhrif á öll önnur. Íslend­ingar hafi hingað til látið aðrar þjóðir „taka skell­inn á sig“.

Svo segir: „Þetta við­horf Umhverf­is­stofn­unar um að vera á móti fram­þróun og verk­efnum sem minnka kolefn­islosun nema sparn­að­ur­inn komi sér­stak­lega fram í sínu eigin bók­haldi er mjög sjálf­hverft og skamm­sýnt. Ef allar þjóðir væru með þetta við­horf myndi eng­inn árangur nást.“

Það geti ekki verið ásætt­an­legt að Íslend­ingar ætlist til að aðrar þjóðir „taki á sig mengun“ og losun í sínu bók­haldi, en neiti svo „að svara í sömu mynt“.

Það er sandauðn og verður sandauðn

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands (NÍ) sagð­ist í sinni umsögn telja að áhrif námu­vinnsl­unnar á jarð­minjar á Mýr­dals­sandi yrðu tals­vert nei­kvæð fremur en óveru­lega nei­kvæð líkt og fram­kvæmda­að­ili segi í umhverf­is­mats­skýrslu sinni.

„Það sem NÍ finnst vera merki­legt við jarð­mynd­un­ina er ekki vik­ur­inn sjálfur, efna­sam­setn­ing hans eða hvernig hann mynd­að­ist, heldur sú stað­reynd að þarna er stór svört sand­auðn,“ svarar EP Power Minerals. „Að efn­is­töku lok­inni verður áfram stór svört sand­auðn á sama svæði og áhrifin því óveru­leg.“

Ferðamennirnir stór orsakavaldur

Í umsögn Samtaka ferða­þjón­ust­unnar (SAF) er dregin upp „dökk mynd“ af ástandi þjóð­veg­ar­ins sem flutn­ing­arnir færu um, segir fyr­ir­tækið. Í henni komi fram að þörf sé á taf­ar­lausu við­haldi og veg­irnir anni varla þeirri umferð sem um hann fari í dag.

„Þessi staða á þjóð­veg­inum er án nokk­urrar aðkomu EPPM,“ segir í svörum við umsögn­inni. „Ferða­menn­irnir sjálfir eru stór orsaka­valdur í þessum aukna umferð­ar­þunga síð­ustu ár. Rúmlega 50 öku­tækja­ferðir fram og til baka á vegi þar sem árdags­um­ferð telur þús­undir öku­tækja mun ekki breyta miklu um umferð­ar­þunga þjóð­veg­ar­ins eða upp­lifun veg­far­enda.“

SAF segja að námu­svæðið myndi sjást vel frá þjóð­vegi 1, frá ánni Skálm, ofan af Höfða­brekku­heiðum á leið inn í Þakgil, og ofan af Hjör­leifs­höfða. Þessu hafnar fram­kvæmda­að­ili í svörum sínum. „Að halda því fram að efn­is­töku­svæðið sjá­ist vel frá þessum stöðum er gróft ofmat og vill­andi.“

Þá segir í svör­unum að sam­tökin hafi haft uppi stór orð í umsögn sinni um stað­ar­þekk­ingu fram­kvæmd­ar­að­ila „en virð­ast sjálf alls ekki gera sér grein fyrir fjar­lægðum og sjón­ar­hornum á svæð­inu“.

Ferðamenn við íshella í Kötlujökli.
Ferða­menn við íshella í Kötlu­jökli.

Ráðgátan

EPPM segir það svo „ráð­gátu“ á hverju Land­vernd byggi þá full­yrð­ingu að kolaaska verði á mark­aðnum í miklu magni næstu ára­tugi. Nokkur Evr­ópu­lönd hafi t.d. ekki tekið ákvarð­anir um lokun kola­orku­vera og það sama megi segja um lönd víðar um heim.

„Ef Land­vernd getur fundið 20 ára birgðir af ónot­aðri sem­ents­hæfri flug­ösku á meg­in­landi Evrópu stutt frá við­skipta­vin­inum, þá er mik­ill auður fólg­inn í þeim fundi,“ segir EPPM í svörum sínum. Þar er líka gert lítið úr áhyggjum Land­verndar af því að úti­vist­ar­mögu­leikar myndu skerð­ast vegna námu­vinnsl­unnar.

Svar: „Úti­vist­ar­mögu­leikar skerð­ast ekk­ert, ef eitt­hvað er batna þeir.“

Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á ástandi þjóðvega

Í umsögn Vega­gerð­ar­innar er bent á þá stað­reynd að aukn­ing á þunga­um­ferð vegna vik­ur­flutn­ing­anna hefði umtals­verð áhrif á nið­ur­brot vega og flýta þyrfti bæði við­halds­að­gerðum, end­ur­bygg­ingu vega og fram­kvæmdum sem nú þegar eru á áætlun.

„Fram­kvæmd­ar­að­ili ber ekki ábyrgð á ástandi þjóð­vega á Íslandi, ekki frekar en aðrir not­endur,“ svarar EPPM. Í umsögnum ann­arra sé keppst við að draga upp dökka mynd af umferð­ar­þunga á Suð­ur­lands­vegi og sagt að veg­ur­inn anni ekki umferð nú þegar og að aðgerða sé þörf. „Ef að þessi fram­kvæmd verður til þess að flýta fyrir því að íbúar Suð­ur­lands fái lang­þráðan end­ur­bættan þjóð­veg þá gætu það talist jákvæð sam­fé­lags­leg áhrif.“

Ferðaþjónustan mengar mest

For­svars­menn ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Adventures minna í sinni umsögn á að ferða­menn komi til Ísland til að sjá ósnorta nátt­úru og að meng­andi iðn­aður hafi nei­kvæð áhrif á hana.

„Fram­kvæmd­ar­að­ili er ekki sam­mála því að þessi fram­kvæmd hafi meng­andi áhrif á landið. Eina meng­unin er losun frá öku­tækjum sem er nákvæm­lega sama mengun og ferða­menn­irnir sem ferð­ast um landið skilja eftir sig.“ EPPM segir enn­fremur í svari sínu að ferða­þjón­ustan sé mest meng­andi atvinnu­grein þjóð­ar­innar og það sé því „öfug­snúið að ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki ásaki aðra um að kolefn­islosun þeirra hafi meng­andi og nei­kvæð áhrif“.

Í svör­unum seg­ist EPPM ekki geta tekið undir „þetta svart­sýna við­horf“ og seg­ist hafa trú á því að íslensk ferða­þjón­usta sé það sterk „að hún þoli að vöru­bíll keyri um Suð­ur­lands­veg á korters­fresti“.

Hafursey á Mýrdalssandi.
Hafursey á Mýr­dals­sandi.

Fram­kvæmdin yrði „veru­lega jákvæð“ fyrir lofts­lagið „og mun hafa mjög jákvæð áhrif á orð­spor Íslands sem þátt­tak­anda í bar­átt­unni gegn kolefn­islosun á heims­vísu. Erlendir ferða­menn gera sér grein fyrir því að lofts­lag virðir engin landa­mæri og verða lík­lega sér­stak­lega ánægðir ef sam­drátt­ur­inn kemur fram í þeirra löndum“.

Vik­ur­náman sé ekki lík­leg til að skaða ímynd svæð­is­ins, líkt og sumir umsagn­ar­að­ila hafi áhyggjur af. „Það að Íslend­ingar séu að leggja til efni í umhverf­is­vænt sem­ent sem mun koma í veg fyrir mikla kolefn­islosun í heim­inum er lík­legt til að auka hróður og ímynd svæð­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eppowerminerals

Mest lesið undanfarið ár