Mynd: Siggeir F. Ævarsson

Einurð og samstaða sjómanna skilaði kjarasamningi

Lengsta sjó­manna­verk­fall sög­unnar að baki.

Lengsta sjó­manna­verk­falli Íslands­sög­unnar er lokið. Nýr kjara­samn­ingur Sjó­manna­sam­bands Íslands og Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi var sam­þykktur 19. febr­úar með naumum meiri­hluta sjó­manna en 52,9% þeirra sam­þykktu samn­ing­inn. Sjómenn höfðu fellt samn­ing­inn í tvígang með afger­andi hætti, þann 10. ágúst og 14. des­em­ber. Verk­fallið hófst 15. des­em­ber 2016 og stóð í tæpar 10 vikur.

Verkföll sjó­manna hafa ítrekað í gegnum sög­una verið stöðvuð með laga­setn­ingum, síð­ast árið 2001, eins og sjá má á tíma­lín­unni hér að neðan. Sjómenn voru meira og minna kjara­samn­ings­lausir í kringum alda­mót eða þar til tíma­móta­samn­ingur náð­ist árið 2004. Sá samn­ingar var fram­lengdur tvisvar. Frá 1. jan­úar 2011 hafa sjó­menn verið með lausa kjara­samn­inga og hvorki gengið né rekið í við­ræðum sjó­manna og útgerð­ar­manna þar til nú.

Sjávarútvegurinn bikarmeistari þegar kemur að lögum á kjaradeilur

Verkföll eru nokkuð tíð á Íslandi. Á árunum 1985-2010 voru 166 verk­föll á íslenskum vinnu­mark­aði, eða að með­al­tali sjö á ári. Þrátt fyrir að sjó­menn séu langt í frá fjöl­menn­asta atvinnu­grein lands­ins eru verk­föll sjó­manna eru áber­andi í fjöl­miðlum enda valda þau miklu tekju­tapi fyrir þjóð­ar­búið. Árið 2015 störf­uðu alls 4.100 manns við fisk­veiðar, eða um 2,2% af heildar vinnu­afli lands­ins.

Frá 1938 hafa 14 sinnum verið sett lög á sjáv­ar­út­veg­inn, á sama tíma­bili hafa níu sinnum á verið sett lög á flug­geir­ann. Aðrar stéttir hafa fengið á sig lög í sex skipti og þrisvar sinnum hafa almenn lög verið sett um kjara­mál. Nýliðin kjara­deila sjó­manna og útvegs­manna ein­kennd­ist af sam­stöðu sjó­manna og hörku beggja aðila. Til marks um það lögðu útgerð­ar­menn fram kröfur en höfðu ekki erindi sem erf­iði með neinar þeirra. Þeim var alfarið hafnað af sjó­mönnum.

Íslensk stjórnvöld gagnrýnd fyrir inngrip

Elín Eva Lúð­víks­dóttir fjallar í BS rit­gerð sinni um for­sendur þess að setja megi lög á vinnu­deilur. Þar kemur fram að Íslenska ríkið taldi sig hafa rétt til þess að grípa inn í kjara­deilur þegar afleið­ingar þeirra eru efna­hags­leg ógn við almenn­ing. Alþýðu­sam­band Íslands, ASÍ hefur þrisvar vísað inn­gripum íslenska rík­is­ins í vinnu­deilur til Alþjóða Vinnu­mála­stofn­un­ar­innar ILO og Bandalag starfs­manna ríkis og bæja, BSRB einu sinni. Öllum fjórum mál­unum tap­aði íslenska ríkið, ILO telur laga­setn­ingar á lög­lega boðuð verk­föll aðeins heim­ilar þegar um er að ræða algjört hættu­á­stand til þess að forða vá sem ógnað geti heilsu og öryggi manna. Sér­fræð­inga­nefnd félags­mála­sátt­mála Evrópu taldi ástæðu til þess að gagn­rýna íslensk stjórn­völd fyrir inn­grip í kjara­deilur.

Sátt um helstu áherslumál á lokametrunum

Olíu­verðsvið­mið og sjó­manna­af­sláttur urðu til þess að við­ræður deilu­að­ila sigldu í strand. Á loka­metr­unum náð­ist sátt um þau atriði auk ann­ara ágrein­ings­mála. Má þar nefna sól­ar­lags­á­kvæði um nýsmíða­á­lagið, end­ur­nýjun orlofs­réttar vegna flutn­ings milli útgerðar, hlífðar- og fata­pen­ingar, hækkun kaup­liða, verð­myndun á fisk­verði, mönnun og hvíld­ar­tíma­á­kvæði, fjar­skipti og fjar­skipta­kostnað.

Helstu kjara­bætur í nýjum samn­ingi eru:

  • Hækkun kaup­trygg­ingar til sam­ræmis við hækk­anir á almennum mark­aði frá 2011
  • Frítt fæði um borð
  • Útgerð skaffar nauð­syn­legan hlífðar- og örygg­is­fatnað
  • Olíu­verðsvið­mið hækkar í sam­ræmi við erlenda verð­bólgu
  • Nýsmíða­á­kvæði dettur út árið 2031
  • Aukin orlofs­rétt­indi
  • Kostn­aður vegna fjar­skipti verður sund­ur­lið­aður og útgerð tryggir fjar­skipti utan þjón­ustu­svæða síma­fyr­ir­tækja

Útskýring á helstu ágreiningsmálum

Aflahlutur - hlutaskipti

Sjó­mönnum eru tryggð ákveðin lág­marks­laun á mán­uði með kaup­trygg­ingu sem frá 1. febr­úar 2017 eru kr. 288.168 kr. fyrir háseta en verður í lok samn­ings­tím­ans kr. 326.780. árið 2019. Kaup­trygg­ing háseta er reiknuð út frá einum hlut á meðan yfir­menn fá einn og hálfan háseta­hlut og skip­stjóri tvo hluti á mán­uði. Frá 1. febr­úar eru kaup­trygg­ing yfir­manna kr. 432.252 sam­kvæmt nýsam­þykktum kjara­samn­ingi. Að öllu jöfnu er afla­hlutur alltaf hærri en kaup­trygg­ing. Hver laun sjó­manns­ins eru ræðst af svoköll­uðu hluta­skipta­kerfi. Fram á fjórða ára­tug 20. aldar voru sjó­menn á föstum launum, óháð afköstum og afla­verð­mæti. Það þótti mikil kjara­bót þegar hluta­skipta­kerfi var komið á.

Sjómenn eru eina starfs­stéttin á Íslandi sem fær laun sín greidd í hluta­skipta­kerfi.

Þegar rekstr­ar­kostn­aður og hlutur útgerðar hefur verið dreg­inn frá afla­verð­mæti veiði­ferðar stendur eftir skipta­hlutur sjó­manna. Er hann á bil­inu 25% til 33%, en hann er breyti­legur eftir gerð og mönnun skipa. Laun sjó­manna ráð­ast því af rekst­ara­kostn­aði þar sem olíu­verð skipar stóran sess og afla­verð­mæti hverrar veiði­ferðar. Því betur sem fiskast og betra verð fæst fyrir fisk­inn, því hærri verða launin fyrir túr­inn. Deila sjó­manna og útgerð­ar­manna um kostn­að­ar­hlut­deild hvors aðila fyrir sig af afla­verð­mæt­inu er eilíft þrætu­epli í kjara­við­ræðum þeirra. Hefur deilan aðal­lega staðið um olíu­verðsvið­mið og verð­myndun.

Olíuverðsviðmið

Undir lok átt­unda ára­tugs síð­ustu aldar og í upp­hafi þess níunda var þessi kostn­aður mjög íþyngj­andi fyrir útgerð­ina. Dæmi voru um að olíu­kostn­aður í veiði­ferð næmi um 30% af afla­verð­mæti. Árið 1983 mælti Stein­grímur Her­manns­son, sem þá var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, fyrir lögum sem bundu 30% af afla­verð­mæti hverri veiði­ferðar við olíu­kostnað með þeim rökum að útgerðin glímdi við afla­brest, olíu­verðs­hækkun og mik­inn fjár­magns­kostnað.

Frá því að lögin voru sett 1983 hefur rekstr­ar­um­hverfi sjáv­ar­út­vegs­ins breyst til batn­aðar og olíu­kostn­aður ekki náð sömu hæðum. Athugun Hag­stof­unnar fyrir árin 2010-2014 leiddi í ljós að raun­veru­legur olíu­kostn­aður flot­ans var aðeins um þriðj­ungur af þeirri upp­hæð sem dregin var frá til olíu­kaupa.

Þegar sjóða­kerfið í sjáv­ar­út­vegi var gert upp árið 1985 var raun­pró­senta sem kom til skipta 69,5%. Hún var hækkuð í 70% um haustið og í 71% skömmu seinna. 1986 sömdu sjó­menn og útgerð­ar­menn um að pró­sentan yrði sett í 76% og þá var olíu­verðsvið­mið tekið upp með vísan í heims­mark­aðs­verð á olíu.

Sjómenn töldu sig eiga inni leið­rétt­ingu á launum, enda hafi við­miðið lítið breyst þrátt fyrir miklar sveifur á heims­mark­aðs­verði á olíu. Hefur olíu­skipta­við­miðið nú verið end­ur­skoðað og hækkar skipta­verð til sjó­manna að jafn­aði um 2% sam­kvæmt nýju við­mið­unum. Áfram verður þak og gólf á við­mið­unum og getur skipta­verð­mæti aldrei farið yfir 80% né undir 70%. Viðmiðið tekur breyt­ingum eftir því hvort heims­mark­aðs­verð á olíu hækkar eða lækkar.

Nýsmíðaálag

Nýsmíða­á­lagið hefur verið mjög áber­andi í fréttum, bæði í aðdrag­anda verk­falls og eftir því sem deilan harðn­aði. Hefur ítrekað vera bent á að ákvæðið sé ósann­gjarnt fyrir sjó­menn en sam­kvæmt því máttu útgerðir nýrra skipa lækka skipta­hlut­inn um 10% í sjö ár. Sjómenn geta í sumum til­fellum verið að borga um 10-12% af verði skips­ins án þess þó að eign­ast nokkuð í því. Um umtals­verðir upp­hæðir er að ræða, sem hlaupið geta á hund­ruðum millj­óna.

Því verður að halda til haga að ný skip þurfa að upp­fylla ákveðin skil­yrði til þess að hægt sé að virkja ákvæðið. Þurfa skipin að vera yfir með­al­afla­verð­mæti á hvern úthalds­dag. Samkvæmt útreikn­ingum SFS eru 25% skipa því und­an­skilin ákvæð­inu og reikn­ast sam­tök­unum til að ákvæðið hafi náð til um 200 stöðu­gilda á sjó und­an­farin ár.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir stóð í ströngu í kjaradeilu sjómanna sem framkvæmdastjóri SFS. Mynd: RÚV/Skjáskot
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir stóð í ströngu í kjara­deilu sjó­manna sem fram­kvæmda­stjóri SFS. Mynd: RÚV/Skjáskot

Nýsmíða­á­lagið kom inn í kjara­samn­ing­anna 2004. Rökin með nýsmíða­á­kvæð­inu voru þau að á nýjum skipum sem búin eru nýj­ustu tækjum og tólum séu allar for­sendur fyrir því að afköst verði meiri og afla­verð­mæti þannig hærra. Þannig ætti lækk­unin á skipta­hlutnum í raun að jafn­ast út og sumir sjó­menn gætu jafn­vel hækkað í launum á nýjum skipum þrátt fyrir 10% lækkun á skipta­hlut. Mjög skiptar skoð­anir eru á því hver útkoman var í raun og veru.

Þess ber að geta að þegar þetta ákvæði kom inn í kjara­samn­ing­inn fengu sjó­menn ákveðnar kjara­bætur sem náðu til allra sjó­manna óháð því hvort nýsmíða­á­kvæðið yrði virkjað. Orlofs­réttur var auk­inn, mót­fram­lag útgerðar í líf­eyr­is­sjóð, þ.e. mót­fram­lagið hækk­aði úr 6% í 8%, og 2% mót­fram­lag í sér­eigna­sjóð var reiknað af öllum launum, hafði áður verið reiknað af kaup­trygg­ingu. Þá mið­að­ist 1% greiðsla í sjúkra­sjóð stétt­ar­fé­laga við öll laun í stað 1% af kaup­trygg­ingu áður.

Í nýgerðum kjara­samn­ingi eru ákvæði um að nýsmíða­á­kvæðið falli út að fullu árið 2031. Þau rétt­indi sem sjó­menn öðl­uð­ust þegar samið var um álagið skerð­ast þó ekki. Í dag geta skip nýtt sér nýsmíða­á­lag í sjö ár. Með sól­ar­lags­á­kvæði sem tekur gildi 2024 geta skip ein­ungis nýtt sér nýsmíða­á­lagið til 2031 þó svo að sjö ár frá notkun skips­ins séu ekki liðin.

Verkföll bitna á þeim sem síst skyldi

Samkvæmt tölum frá SFS er útflutn­ings­verð­mæti íslenskra sjáv­ar­út­vegs­af­urða um 640 millj­ónir á dag. Í raun er tapið á dag meira enda hafa umsvif í tengdum greinum, s.s. hjá flutn­inga­fyr­ir­tækjum, neta­gerðum, vél­smiðjum og öðrum þjón­ustu­fyr­ir­tækjum, minnkað umtals­vert meðan á verk­fall­inu stóð. Þá má ekki gleyma þætti land­verka­fólks sem hefur tap­aði vinnu og launum minnkað veru­lega í verk­fall­inu. Samkvæmt grein­ingu Sjáv­ar­kla­s­ans var dag­legt tap á bil­inu 900-1300 millj­ónir og er þá litið til þátta eins og glat­aðra við­skipta­sam­banda og beinna og óbeinna efna­hags­legra áhrifa.

Þar með er þó aðeins hálf sagan sögð. Mörg af stærri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum áttu umtals­vert af upp­söfn­uðum birgðum af frosnum fiski sem mild­uðu áhrif verk­falls­ins. Þá má í raun segja að ekki hafa verið um eig­in­legt tap að ræða heldur aðeins frestun. Kvóta­árið er hálfnað og nægur tími til að vinna upp tap­aðan tíma næstu sex mán­uði. Sumarið er vana­lega rólegur tími hjá flestum útgerðum og margir klára kvót­ann á 11. mán­uði kvóta­árs­ins. Má því gera ráð fyrir að allur fisk­ur­inn skili sér á land að lokum, þrátt fyrir tæp­lega 10 vikna verk­fall. Eftir sex ára kjara­við­ræður skil­aði verk­fallið kjara­samn­ingi án laga­setn­ingar og það eitt og sér er sigur í sjálfu sér.

Höfundar eru meist­ara­nemar í Blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár