Ráðuneyti framsóknarmanna

Fram­sókn­ar­menn hafa stýrt félags­mála­ráðu­neyt­inu í sam­tals 17 ár frá árinu 1995. Fram­sókn­ar­menn gegna í dag margs­konar störfum fyrir ráðu­neytið en tæpur þriðj­ungur nefnda, fag­hópa og ráða á vegum ráðu­neyt­is­ins eru skipuð for­mönnum með tengsl við flokk­inn.

Félags­mála­ráðu­neytið hefur fallið fram­sókn­ar­mönnum í skaut í hvert sinn sem þeir hafa tekið þátt í rík­is­stjórn frá árinu 1995. Fram­sókn­ar­menn hafa sam­tals stýrt ráðu­neyt­inu í um 17 ár á síð­ustu 24 árum. Sex ráð­herrar úr röðum Fram­sóknar hafa gegnt emb­ætti félags­mála­ráð­herra á þessu tíma­bili, þar á meðal núver­andi félags- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason.

Á vegum félags­mála­ráðu­neyt­is­ins störf­uðu í maí síð­ast­liðnum 70 nefndir, stjórnir og ráð. Af þeim eru 21 skipuð for­mönnum, án til­nefn­ingar, sem hafa tengsl við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Af þeim skip­aði Ásmundar Einar níu for­menn. Forveri hans Eygló Harð­ar­dóttir, sem gegndi emb­ætti félags­mála­ráð­herra á árunum 2013 til 2017, skip­aði hina tólf for­menn­ina.

Frá því Ásmundar Einar tók við emb­ætt­inu hefur hann skipað for­menn þriggja stjórna á vegum félags­mála­ráðu­neyt­is­ins með tengsl við Fram­sókn­ar­flokks­ins ásamt því að skipa aðstoð­ar­mann sinn for­mann Trygg­ing­ar­stofn­unar rík­is­ins. Þá hefur Ásmundur Einar verið gagn­rýndur fyrir að skipa í þrjár stöður innan félags­mála­ráðu­neyt­is­ins án þess að aug­lýsa stöð­urnar, þar á meðal stöðu ráðu­neyt­is­stjóra.

Ráðuneytisstjóri skipaður án auglýsingar

Ásmundur Einar var fyrst kjör­inn á þing fyrir Vinstri hreyf­ing­una grænt fram­boð árið 2009 en hann sagði sig úr þing­flokki Vinstri grænna í apríl 2011. Hann gekk síðan til liðs við Fram­sókn­ar­flokk­inn í júní 2011 og árið 2017 var hann skip­aður félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur.

Í sept­em­ber 2018 til­kynnti stjórn­ar­ráðið að vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu yrði skipt upp í félags­mála­ráðu­neyti og heil­brigð­is­ráðu­neyti. Jafn­rétt­is­mál færð­ust yfir á ábyrgð for­sæt­is­ráðu­neytis og mál­efni mann­virkja færð­ust úr umhverf­is­ráðu­neyti í félags­mála­ráðu­neyti. Samkvæmt stjórn­ar­ráð­inu var mark­miðið með þessum breyt­ingum að skýra verka­skipt­ingu, skerpa póli­tíska for­ystu og skapa aukin sókn­ar­færi í mála­flokkum sem rík­is­stjórnin hefur í for­gangi.

Félags­mála­ráðu­neytið tók síðan til starfa 1. jan­úar 2019 og fer félags- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundur Einar, með yfir­stjórn ráðu­neyt­is­ins og ber ábyrgð á öllum stjórn­ar­fram­kvæmdum þess. Verkefni félags­mála­ráðu­neyt­is­ins varða félags- og fjöl­skyldu­mál, líf­eyr­is­trygg­ingar, almanna­trygg­ingar, hús­næð­is­mál, vinnu­mál, mann­virki og undir ráðu­neytið heyrir úrskurð­ar­nefnd vel­ferð­ar­mála.


Ásmundur Einar skip­aði í des­em­ber síð­ast­liðnum í þrjú ný emb­ætti innan ráðu­neyt­is­ins; emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra, emb­ætti skrif­stofu fjár­laga og emb­ætti for­stjóra Vinnu­eft­ir­lits rík­is­ins. Í til­kynn­ing­unni var greint frá því að ein­stak­ling­arnir sem í hlut ættu væru allir starf­andi emb­ætt­is­menn en urðu við ósk ráð­herra um að taka að sér fram­an­greindar stöður á grund­velli heim­ildar um flutn­ing emb­ætt­is­manna í starfi í lögum um rétt­indi og skyldur opin­berra starfs­manna.

Þrátt fyrir að lög heim­ili annað þá eru það vand­aðir stjórn­sýslu­hættir að aug­lýsa þegar til stendur að ráð­stafa tak­mörk­uðum gæðum, sem fyr­ir­sjá­an­legt er að færri geta fengið en vilja.

Þar á meðal var Gissur Pét­urs­son en hann var skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri hins nýja félags­mála­ráðu­neytis. Ráðu­neyt­is­stjóri stýrir ráðu­neyt­inu undir yfir­stjórn ráð­herra. Gissur var áður for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, allt frá því að stofn­unin var sett á fót árið 1997. Áður veitti hann um skeið for­stöðu skrif­stofu vinnu­mála í félags­mála­ráðu­neyt­inu og árin 1986 til 1996 starf­aði hann sem sér­fræð­ingur í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu. Gissur er með meistara­gráðu í opin­berri stjórn­sýslu frá Háskóla Íslands og BA-gráðu í stjórn­mála­fræði. Gissur var for­maður Sambands ungra fram­sókn­ar­manna á árunum 1986 til 1990 og full­trúi Fram­sóknar í útvarps­ráði árið 1997.

Gagnrýna að stöðurnar voru ekki auglýstar

Í kjöl­farið sendi Bandalag háskóla­manna, BHM, frá sér yfir­lýs­ingu þar sem gagn­rýnt var að Ásmundur Einar hefði ekki aug­lýst ofan­greindar þrjár emb­ætt­is­stöður lausar til umsóknar. Í yfir­lýs­ingu frá BHM segir að ráð­herra hafi nýtt sér heim­ild í lögum um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem segir að ­stjórn­vald, sem skipað hefur mann í emb­ætti, geti flutt hann í annað emb­ætti sem undir stjórn­valdið heyrir og þurfi þá ekki að aug­lýsa það.

Banda­lag­ið benti hins vegar á að aug­lýs­inga­skylda sé meg­in­regla við ráðn­ingar í störfum hjá rík­inu. „Aug­lýs­inga­skylda er í sam­ræmi við þá skyldu sem hvílir almennt á stjórn­völdum að gæta jafn­ræðis milli borg­ar­anna og stuðla að því að ríkið hafi ávallt á að skipa sem hæf­ustu starfs­fólki,“ segir í yfir­lýs­ingu. Jafn­framt segir í yfir­lýs­ing­unni að þótt að til­teknar und­an­tekn­ingar frá aug­lýs­inga­skyldu geti átt rétt á sér í sér­stökum til­vikum þá telji banda­lagið að of langt hafi verið gengið í því að lög­festa slíkar und­an­tekn­ingar á síð­ustu árum á kostnað gagn­særrar stjórn­sýslu.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að Banda­lag háskóla­manna geri kröfu til stjórn­valda um vand­aða stjórn­sýslu­hætti við ráðn­ingar í störf. „­Þrátt fyrir að lög heim­ili annað þá eru það vand­aðir stjórn­sýslu­hættir að aug­lýsa þegar til stendur að ráð­stafa tak­mörk­uðum gæð­um, sem fyr­ir­sjá­an­legt er að færri geta fengið en vilja. Með aug­lýs­ingu er öllum sem áhuga hafa og upp­fylla skil­yrði gefið tæki­færi á að sækja um. Að mati banda­lags­ins brjóta rúmar und­an­tekn­ing­ar­heim­ildir við aug­lýs­ingar á lausum störfum hjá hinu opin­bera í bága við jafn­ræð­is­reglur stjórn­sýslu­réttar ásamt því að draga úr gagn­sæi í stjórn­sýsl­unn­i.“

Ásmundur Einar skipar í stjórnir

Félags­mála­ráð­herra ber sam­kvæmt lögum að skipa stjórn Trygg­ing­ar­stofn­unar rík­is­ins. Ráðherra skipar fimm menn í stjórn og skal einn skip­aður for­maður stjórnar og annar vara­for­maður, skip­aðir skulu jafn­margir menn til vara.

Ásmundar Einar skip­aði Arnar Þór Sæv­ars­son sem for­mann stjórnar Trygg­ing­ar­stofn­unar rík­is­ins í maí í fyrra. Arnar Þór er aðstoð­ar­maður Ásmundar Einars. Arnar er lög­fræð­ingur að mennt og var sveit­ar­stjóri á Blöndu­ósi áður en hann gekk til liðs við Ásmund Einar í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu í jan­úar á síð­asta ári. Arnar var áður aðstoð­ar­maður Jóns Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, þegar hann var iðn­að­ar- og við­skipta­mála­ráð­herra á árunum 2006 til 2007.

Félags­mála­ráð­herra skipar einnig stjórn Vinnu­mála­stofn­unar til fjög­urra ára í senn. Ráðherra skipar án til­nefn­ingar tvo aðal­menn í stjórn­ina, for­mann og vara­for­mann. Ásmundar Einar skip­aði Ingvar Má Jónsson sem for­mann stjórnar Vinnu­mála­stofn­unar. Ingvar Már er fyrr­ver­andi vara­borg­ar­full­trúi en hann leiddi lista flokks­ins í Reykja­vík í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í fyrra.

Ásmundur Einar skip­aði jafn­framt nýjan for­mann stjórnar Íbúða­lána­sjóðs í byrjun árs 2018. Hann skip­aði Hauk Ingi­bergs­son en Eygló Harð­ar­dóttir, þáver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, skip­aði hann í stjórn sjóðs­ins árið 2013. Haukur hefur sinnt störfum fyrir Framsókn en hann var meðal ann­ars for­maður kjör­stjórnar flokks­ins árið 2009.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra.

Ásmundur Einar skip­aði enn fremur Aðal­stein Hauk Sverr­is­son sem nýjan for­mann stjórnar Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs án til­nefn­ingar í jan­úar 2019. Aðal­steinn Haukur er for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Reykja­víkur og var jafn­framt fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins í Alþing­is­kosn­ingum árið 2016. Aðal­steinn var einnig skip­aður for­maður stjórnar Trygg­ing­ar­sjóðs sjálf­stætt starf­andi ein­stak­linga árið 2014 af félags­mála­ráð­herra til fjög­urra ára en ekki má sjá á heima­síðu félags­mála­ráðu­neyt­is­ins að skipuð hafi verið ný stjórn.

Þriðjungur nefnda skipaður formönnum úr Framsókn

Á vegum félags­mála­ráðu­neyt­is­ins starfar fjöldi nefnda, ráða og starfs­hópa. Í félags­mála­ráðu­neyt­inu í maí 2019 voru 28 lög­bundnar nefndir og ráð. Þá voru auk þess 42 verk­efna­tengdar nefndir og vinnu­hópar, sem skip­aðir eru af ráð­herra sér­stak­lega til þess að koma með ráð­gjöf um umbætur í ýmsum málum.

Í svari við fyr­ir­spurn á Alþingi frá Ingu Sæland, þing­konu Flokks fólks­ins, um nefndir, starfs­hópa, fag­hópa og ráð á vegum ráðu­neyt­is­ins segir Ásmundur Einar að félags­mála­ráðu­neytið leit­ist ávallt við að móta stefnu þeirra mála­flokka sem heyra undir ráðu­neytið og að eiga vítt sam­ráð við hag­að­ila, fag­hópa og not­endur. Hann segir að slíkir hópar séu í eðli sínu nauð­syn­legir við fram­an­greinda vinnu.

Þegar póli­tískar nefndir eru skip­aðar þá er horft til þess að skipa þær póli­tískt, það er ekk­ert óeðli­legt við það.

Ráðherra skipar í þær nefndir, starfs­hópa og ráð en oft á tíðum fá einnig ólíkir hags­muna­að­ilar að til­nefna einn eða fleiri nefnd­ar­mann. Nánast án und­an­tekn­ingar skipar þó ráð­herra for­mann án til­nefn­ingar. Af þeim 70 nefndum, stjórnum og ráðum sem starfa nú á vegum ráðu­neyt­is­ins eru 21 skipuð for­mönnum, án til­nefn­ingar, sem hafa ein­hvers­konar tengsl við Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Níu formenn skipaðir frá því að Ásmundur Einar tók við embættinu

Af þeim nefndum sem Ásmundur Einar hefur skipað frá því að hann tók við emb­ætti í nóv­em­ber 2017 þá eru níu nefndir, hópar eða ráð sem skipuð eru for­mönnum án til­nefn­ingar sem tengj­ast Fram­sókn­ar­flokknum. Hann skip­aði Jóhann Friðrik Frið­riks­son, vara­þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, for­mann tveggja aðgerða­hópa í fyrra. Auk þess skip­aði hann Lindu Hrönn Þór­is­dóttur, for­mann Lands­sam­bands Fram­sókn­ar­kvenna, for­mann fag­hóps um sam­fé­lags­lega virkni fyrir ein­stak­linga með geð­rænan vanda í fyrra.

Jafn­framt skip­aði Ásmundur Einar Frosta Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, for­mann verk­efn­is­stjórnar um aðgerðir til að lækka þrösk­uld ungs fólks og tekju­lágra á hús­næð­is­markað í fyrra. Auk þess var Linda Rós Alfreðs­dóttir, sér­fræð­ingur í félags­mála­ráðu­neyt­inu, skipuð for­maður starfs­hóps um mót­töku­á­ætl­anir sveit­ar­fé­laga í mars síð­ast­liðnum. Hún bauð sig fram fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Alþing­is­kosn­ingum árið 2017.

Eygló Harðardóttir, fyrrverandi félags- og húsnæðismálaráðherra, sést hér ganga við hlið Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra. Mynd: Birgir Þór Harðarson.
Eygló Harð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sést hér ganga við hlið Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórna­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son.

Þá var Val­gerður Sverr­is­dóttir, fyrrum þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, skipuð for­maður sam­starfs­nefndar um mál­efni aldr­aðra til næstu Alþing­is­kosn­inga. Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, var skipuð af félags­mála­ráð­herra í fyrra sem for­maður próf­nefndar leigu­miðl­unar til næstu þriggja ára. Jón Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, var skip­aður for­maður starfs­hóps af Ásmundi Einari um félags­legt und­ir­boð í októ­ber í fyrra. Til við­bótar skip­aði Ásmundur Einar Líneik Önnu Sæv­ars­dóttur, þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, for­mann þing­manna­nefndar um mál­efni barna í októ­ber í fyrra.

Auk þessa voru í febr­úar síð­ast­liðnum emb­ætti þriggja skrif­stofu­stjóra á fag­skrif­stofum í félags­mála­ráðu­neyt­inu aug­lýst laus til umsóknar. Samkvæmt lögum Stjórn­ar­ráðs Íslands skulu ráð­herrar skipa skrif­stofu­stjóra að fengnu mati þriggja manna hæfn­is­nefndar. Einn þeirra þriggja sem sat í hæfn­is­nefnd­inni var Páll Magn­ús­son, bæj­ar­rit­ari í Kópavogi en hann meðal ann­ars gaf kost sér til for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum á lands­þingi árið 2008. Nefnd­ar­menn fengu greitt fyrir störf sín.

Eygló skipaði þrettán formenn sem enn eru að störfum

Á undan Ásmundi Einari gegndi Eygló Harð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, emb­ætti félags­mála­ráð­herra, fyrir utan stutt stopp Þor­steins Víglunds­sonar í emb­ætt­inu í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar í nokkra mán­uði árið 2017. Eygló Harð­ar­dóttir var félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra frá árinu 2013 til 2017. Eygló var fyrst kosin á þing sem vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2008.

Eygló skip­aði fjölda nefnda, fagráða og hópa á meðan hún var ráð­herra. Af þeim sem enn eru starf­andi eru tólf sem skip­aðir eru, án til­nefn­ingar, for­mönnum með tengsl við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Hún skip­aði einnig í stjórn Ábyrgð­ar­sjóðs launa sem enn er að störfum en þar skip­aði hún Þóreyju Önnu Matth­í­as­dóttur sem for­mann stjórn­ar­innar. Þórey Anna er fyrr­ver­andi for­maður Lands­sam­bands fram­sókn­ar­kvenna og bauð hún sig jafn­framt fram fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Hafn­ar­firði í fyrra.

Árið 2007 tóku sér­stök svæð­is­bundin vinnu­mark­aðs­ráð til starfa um land allt. Ráðin starfa á grund­velli laga um vinnu­mark­aðs­að­gerðir sem sam­þykkt voru á Alþingi árið 2006. Hlutverk ráð­anna er meðal ann­ars að greina stöðu og þróun atvinnu­mála hvert á sínu starfs­svæði og gera til­lögur að vinnu­mark­aðsúr­ræðum. Samkvæmt lögum um vinnu­mark­aðs­að­gerðir skipar ráð­herra sjö manna svæð­is­bundin vinnu­mark­aðs­ráð. Í hvert vinnu­mark­aðs­ráð eru til­nefndir tveir ráðs­menn af sam­tökum launa­fólks á hverju svæði og tveir af sam­tökum atvinnu­rek­enda. Jafn­framt er einn ráðs­maður til­nefndur af sveit­ar­fé­lögum á hverju svæði, einn af mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og einn skip­aður án til­nefn­ingar.

Félags­mála­ráð­herra skipar for­mann og vara­for­mann úr hópi þeirra sem til­nefndir eru sem aðal­menn. Í heild­ina eru vinnu­mark­aðs­ráðin átta og for­menn fjög­urra þeirra hafa á ein­hverjum tíma verið í fram­boði fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn. Til við­bótar er Guðný Sverr­is­dóttir, fyrr­ver­andi sveit­ar­stjóri í Grýtu­bakka­hreppi, for­maður Vinnu­mark­aðs­ráðs Norð­ur­lands eystra en hún er systir Val­gerðar Sverr­is­dóttur, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins. Formaður Vinnu­mark­aðs­ráðs Aust­ur­lands er Helga Þór­ar­ins­dóttir en hún er eig­in­kona Gunnars Þórs Sig­björns­sonar. Gunnar Þór starf­aði innan Fram­sókn­ar­flokks­ins til fjölda ára og sat í ýmsum nefndum á vegum Fram­sóknar í sveit­ar­stjórn á Héraði. Eygló skip­aði alla átta for­menn ráð­anna og eru þeir enn að störfum.

Fyrrverandi ráðherrar að störfum í ráðuneytinu

Siv Frið­leifs­dótt­ir, fyrr­ver­andi ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, var ráðin í starf sér­fræð­ings á skrif­stofu félags­þjón­ustu í félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neyt­inu í apríl árið 2016. Starfið var aug­lýst og alls sóttu 36 um það. Siv hafði áður verið fengin til að starfa sem ráð­gjafi fyrir félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neytið á árinu 2014. Um var að ræða aðstoð vegna nor­ræns sam­starfs, for­mennsku í Nor­rænu ráð­herra­nefnd­inni og vinnu í Vel­ferð­ar­vakt­inni sem stofnuð var að frum­kvæði stjórn­valda snemma árs 2009 til að fylgj­ast með afleið­ingum efna­hags­hruns­ins á heim­ilin í land­inu.

Þegar starfið var aug­lýst í febr­úar 2016 vöktu tvær konur athygli á því að í aug­lýs­ing­unni um starf sér­fræð­ing á skrif­stofu félags­þjón­ustu var starfs­reynsla gerð að veiga­meiri skil­yrði en menntun í aðsendri grein á Vísi. Í aug­lýs­ing­unni var kraf­ist háskóla­prófs eða sam­bæri­legrar mennt­unar á sviði félags­mála. Þá sagði einnig í aug­lýs­ing­unni að mik­il­vægt væri að við­kom­andi sér­fræð­ingur hefði víð­tæka þekk­ingu og reynslu af opin­berri stjórn­sýslu og sam­starfi þvert á ráðu­neyti. Enn fremur væri æski­legt að hann hefi sér­þekk­ingu á þeim mála­flokkum sem heyra undir skrif­stofu félags­þjón­ustu. Þá var einnig gerð krafa um víð­tæka þekk­ingu og reynslu af alþjóð­legum sam­skipt­um, ekki síst nor­rænu sam­starfi innan stjórn­sýsl­unn­ar.

Í grein kvenn­anna segir að aug­lýs­ingin sé eitt dæmi af fjöl­mörgum þar sem starfs­reynsla var gerð að veiga­meira skil­yrði en menntun. „Eina krafan um menntun sem sett er fram er krafa um háskóla­próf eða sam­bæri­lega menntun á sviði félags­mála. Háskóla­menntun virð­ist því ekki vera skil­yrði. Hins vegar skiptir viða­mikil og sér­hæfð starfs­reynsla höf­uð­máli.“

Siv Friðleifsdóttir sat á þingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn frá 1995 til 2013 og var tví­vegis ráð­herra.
Siv Frið­leifs­dóttir sat á þingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn frá 1995 til 2013 og var tví­vegis ráð­herra.

Siv er með BS-­próf í sjúkra­þjálf­un. Hún sat á þingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn frá 1995 til 2013 og var tví­vegis ráð­herra. Siv var umhverf­is­ráð­herra og sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landa 1999 til 2004 og heil­brigð­is- og trygg­inga­mála­ráð­herra 2006 til 2007.

Síðustu rúm þrjú ár hefur Siv starfað sem sér­fræð­ingur innan ráðu­neyt­is­ins og var hún jafn­framt stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra um tíma. Siv er einnig for­maður Vel­ferð­ar­vakt­ar­innar en Eygló Harð­ar­dóttir skip­aði hana for­mann án til­nefn­ingar árið 2014.

Jón Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, var skip­aður for­maður starfs­hóps af Ásmundi Einari um félags­legt und­ir­boð í októ­ber í fyrra. Starfs­hóp­ur­inn skil­aði til­lögum til úrbóta í jan­úar síð­ast­liðnum. Búið er að móta aðgerð­ar­á­ætlun út frá til­lög­unum og til­kynnti félags­mála­ráðu­neytið í maí síð­ast­liðnum að Ásmundur Einar hefði falið Jóni að hafa yfir­um­sjón með því að fram­fylgja aðgerðum sem byggja á til­lögum hóps­ins. Sömu­leiðis þeim aðgerðum sem snerta félags­leg und­ir­boð í stuðn­ingi stjórn­valda við lífs­kjara­samn­inga sem sam­þykktir voru í byrjun apríl síð­ast­liðnum.

Stefna að auknu gagnsæi í allri stjórnsýslunni

Í rík­is­stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar segir að í nýrri rík­is­stjórn munu flokkar sem spanna „hið póli­tíska lit­róf allt frá vinstri til hægri“ freista þess að slá nýjan tón, ein­henda sér í þau lyk­il­verk­efni sem koma Íslandi í fremstu röð og búa þannig um hnút­ana að hér verði gott að lifa og starfa fyrir unga sem aldna.

„Óvenju­legar aðstæður kalla á breytt vinnu­brögð, opn­ari stjórn­sýslu, gagn­sæi og virð­ingu gagn­vart verk­efnum. Það er vilji flokk­anna sem nú taka þátt í sam­starfi um rík­is­stjórn og efl­ingu Alþingis að nálg­ast verk­efnin með nýjum hætti í þágu alls almenn­ings í land­inu, ekki síst með því að styrkja Alþingi með mark­vissum hætti og auka áhrif þess,“ segir í sátt­mál­anum.

Enn­fremur er tekið fram að stefna þurfi að stöð­ug­leika til lengri tíma og auka gagn­sæi í athafna­lífi og allri stjórn­sýslu til að efla traust almenn­ings á rekstri fyr­ir­tækja, fjár­mála­lífi, stjórn­málum og stofn­unum sam­fé­lags­ins. „Frá efna­hags­hrun­inu hefur náðst marg­vís­legur árangur en enn skortir á þá félags­legu sátt sem þjóðin hefur lengi kallað eftir. Að henni þarf að vinna.“

Í nýlegri könnun MMR frá 3. maí 2019 um hvað veldur lands­mönnum mestum áhyggjum kom fram að líkt og síð­ustu þrjú ár voru það spill­ing í fjár­málum og/eða stjórn­málum sem reynd­ist vera eitt af helstu áhyggju­völdum þjóð­ar­innar. Alls svör­uðu 44 pró­sent lands­manna að spill­ing í fjár­málum og/eða stjórn­mál­um valdi þeim mestum áhyggjum í síð­ustu könnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár