„Farðu heim hóra! Við viljum ekkert við þig gera á okkar þjóðþingi“

Fyrr­ver­andi þing­maður segir í sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut að á margan hátt sé komið fram við konur af erlendum upp­runa sem ann­ars flokks borg­ara.

Nichole Leigh Mosty, fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar, segir að mörg dæmi séu um að komið sé fram við erlendar konur sem ann­ars flokks borg­ara. Hún hafi til að mynda upp­lifað það þegar hún sat á Alþingi. „Berið saman hvernig var komið fram við mig og Pawel [Bartoszek]. Ég er alveg viss um að hann hefur ekki fengið sent á sitt Facebook: Farðu heim hóra! Við viljum ekk­ert við þig gera á okkar þjóð­þingi.“ Nichole segir að þessum skila­boðum hafi verið beint til hennar bæði sem konu og sem útlend­ingi, en hún og Pawel voru tveir fyrstu inn­flytj­end­urnir til að verða kosnir sem þing­menn í kosn­ing­unum 2016. Þau náðu hvorug end­ur­kjöri haustið 2017.

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali við Nichole í sjón­varps­þætti Kjarnans sem var á dag­skrá Hring­brautar í gær. Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­ingu í vafr­anum hér að ofan.

Konur af erlendum upp­runa sem búa á Íslandi stigu fram í lok jan­úar undir merkjum #metoo-bylt­ing­ar­innar. Þar lýstu þær kyn­ferð­is­of­beldi, for­dómum, mis­munun, mark­vissu nið­ur­broti, van­rækslu, úti­lokun og mis­notkun í á fjórða tug átak­an­legra frá­sagna.

Þessi hópur kvenna sker sig úr öðrum hópum sem hafa stigið fram undir for­merkjum #metoo vegna þess að það staða þeirra til að sækja hjálp og öðl­ast betra líf er verri en margra ann­arra.

Í þætt­inum segir Nichole það vanti breytta nálgun gagn­vart konum að erlendum upp­runa á mörgum sviðum. Það þurfi að breyta kerf­is­legum þáttum eins og upp­lýs­inga­gjöf en líka hugs­un­ar­hætti. Íslend­ingar þurfi að opna sig meira gagn­vart útlend­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið undanfarið ár