Misjöfn örlög Gladstone og Gladstone

Það er alltaf glatt á hjalla þegar Glad­stone-fjöl­skyldan skemmtir sér í kast­al­anum sínum nálægt Liverpool. En hvaðan kemur auður þessa fólks? Og hver var Jack Glad­stone sem stýrði fyrir réttum 200 árum upp­reisn gegn John Glad­stone?

Um dag­inn var ég að flækj­ast á net­inu, eins og maður gerir, og lenti ég á síðu MailOn­line þar sem ég fór af ein­skærri rælni að skoða grein sem fjall­aði um núlif­andi afkom­endur frægra for­sæt­is­ráð­herra Breta. Og þar á meðal rakst ég á mynd af kátu fólki sem allt var komið af William Glad­stone, en hann var for­sæt­is­ráð­herra í sam­tals 12 ár á ára­bil­inu 1868–1894. Ég vissi það eitt um Glad­stone að hann til­heyrði á sínum tíma nýjum flokki Frjáls­lyndra og þótt hann væri af auð­ugu fólki kom­inn barð­ist hann fyrir jöfnum tæki­færum og var svo vin­sæll meðal venju­legs fólks að hann var kall­aður „William okkar alþýð­unnar“ („The People's William“).

Afkom­endur „Williams okkar“ eru greini­lega hinir hress­ustu. MailOn­line – og aðrar vef­síður sem ég fór svo að róta í – birtu myndir af brosmildu fal­legu fólki við leik og ýmis störf og ljóst að fjöl­skyldan hefur það fínt í …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár