Sundrung vegna samfélagssáttmála

Meg­in­til­gangur nýrra siða­reglna fyrir alþing­is­menn er að efla gagn­sæi í störfum þing­manna og ábyrgð­ar­skyldu þeirra, og jafn­framt að efla til­trú og traust almenn­ings á Alþing­i.

Ákveðnar reglur gilda í sam­fé­lagi manna sem almennt er farið eftir. Þessar reglur eru stundum kall­aðar „social-norm“ og er það sátt­máli sem fólk tekur mið af í hegðun sinni og gjörðum. Í ætt við þennan sátt­mála eru siða­reglur sem fólk fer alla­jafna eftir í hinu dag­lega lífi. Þegar þessi sam­fé­lags­sátt­máli er síðan rof­inn, eða siða­reglum er ekki fylgt, geta ýmsar afleið­ingar hlot­ist af en mis­jafnar skoð­anir eru á því hverjar þær ættu að vera.

Siða­reglur starfs­stétta eru 20. alda fyr­ir­bæri sem ruddi sér til rúms þegar sam­ræma þurfti það hyggju­vit og skyn­semi sem fólk alla­jafna ber. Fjöl­margar starfs­stéttir hafa komið sér upp siða­reglum til að skýra hlut­verk þeirra og setja almennar reglur sem fólk getur litið til ef vafi leikur á hvað rétt og rangt sé að gera. Til­finn­ingar og heil­brigð skyn­semi eiga að geta leitt okkur áfram í dag­legu lífi og starfi en þegar ágrein­ingur verður eða þegar rök­styðja þarf ákveðnar gjörðir hefur í sam­fé­lagi manna verið gripið til þess að setja sér­stakar siða­reglur fyrir fólk að hafa til hlið­sjónar.

Margir hafa þó efast um gildi siða­reglna – sér­stak­lega í ljósi þess að erfitt hefur reynst að fá sátt um siða­reglur og þá sér­stak­lega siða­nefndir. Gríð­ar­lega mikil umræða hefur sprottið upp í kjöl­far nýlegra nið­ur­staðna for­sætis­nefndar þar sem hún féllst á álit siða­nefndar í nokkrum umdeildum málum.

Þar sem siða­reglur alþing­is­manna voru sér­stak­lega settar á lagg­irnar til að byggja upp traust alþing­is­manna er vert að kanna hver til­gangur þeirra sé – hvort raun­hæft þyki að setja slíkar reglur ef almenn­ingur og þing­menn­irnir sjálfir taka ekki mark á nið­ur­stöðum nefnda sem telja að brot hafi átt sér stað. Og það sem meira er – verður hægt að taka mark á nið­ur­stöðum siða­nefndar og for­sætis­nefndar í fram­tíð­inni?

Þingmenn skulu ekki skaða ímynd Alþingis með fram­komu sinni

Siða­reglur alþing­is­manna eru til­tölu­legar nýjar af nál­inni. Alþingi Íslend­inga sam­þykkti nýjar siða­reglur fyrir þing­menn í mars 2016 en meðal þess sem stendur í þeim er að þeir skuli ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Til­gang­ur­inn með siða­regl­unum var að efla gagn­sæi í störfum þing­manna og ábyrgð­ar­skyldu þeirra, og jafn­framt að efla „til­trú og traust almenn­ings á Alþing­i.“

Allir for­setar Alþingis og þing­flokks­for­menn allra flokka stóðu að til­lög­unni, sem átti sér langan aðdrag­anda. Alþingi sam­þykkti breyt­ingar á þing­sköpum í júní árið 2011, og þar kom meðal ann­ars fram að leggja ætti fram til­lögu að siða­reglum fyrir þing­menn. For­sætis­nefnd hóf vinnu við slíkar reglur og skil­aði til­lögum rétt fyrir þing­lok árið 2013, þá var þegar ljóst að ekki myndi nást sam­komu­lag um að afgreiða mál­ið. Ný for­sætis­nefnd fjall­aði um siða­reglur strax sum­arið 2013 og var meðal ann­ars horft til siða­reglna Evr­ópu­ráðs­þings­ins.

Alþingi Íslendinga samþykkti nýjar siðareglur fyrir þingmenn í mars 2016 en meðal þess sem stendur í þeim er að þeir skuli ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni.
Alþingi Íslend­inga sam­þykkti nýjar siða­reglur fyrir þing­menn í mars 2016 en meðal þess sem stendur í þeim er að þeir skuli ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni.

Sam­kvæmt siða­regl­unum eiga þing­menn að rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika, taka ákvarð­anir í almanna­þágu, ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra og efla og styðja siða­regl­urnar með því að sýna frum­kvæði og for­dæmi. Þingmenn skulu í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu.

#metoo hafði áhrif

Við­bætur við siða­reglur þing­manna voru sam­þykktar á Alþingi 5. júní 2018 með öllum greiddum atkvæð­um. Í fyrsta lagi var lagt til að nýjum staf­lið yrði bætt við sem segir að alþing­is­­menn verði að leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heil­brigt starfs­um­hverfi innan þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störfum sínum, þar sem hafnað er hvers konar kyn­­ferð­is­­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða annarri van­virð­andi fram­komu.

Í öðru lagi var lagt til að á eftir sjö­undu grein siða­regln­anna kæmi ný grein sem hljóði svo: „Þing­­menn skulu ekki sýna öðrum þing­­mönn­um, starfs­­mönnum þings­ins eða gestum kyn­­ferð­is­­lega eða kyn­bundna áreitni, leggja þá í ein­elti eða koma fram við þá á annan van­virð­andi hátt.“

Eldfimt fyrsta mál

Stutt er síðan fyrsta nið­ur­staðan var kunn­gjörð en í lok júní síð­ast­lið­ins féllst for­sætis­nefnd á nið­ur­stöðu siða­nefndar í máli Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­flokks­for­manns Pírata. Siða­nefnd taldi að ummæli sem hún lét falla í Silfrinu þann 25. febr­úar 2018 hefðu ekki verið í sam­ræmi við siða­reglur fyrir alþing­is­menn.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, óskaði eftir því við for­sætis­nefnd þann 10. jan­úar síð­ast­lið­inn að tekið væri til skoð­unar hvort þing­menn Pírata Björn Leví Gunn­ars­son og Þór­hildur Sunna hefðu með ummælum sínum á opin­berum vett­vangi um end­ur­greiðslur þings­ins á akst­urs­kostn­aði Ásmundar brotið í bága við siða­regl­urn­ar.

Nið­ur­staða siða­nefndar var sem fyrr segir að ummæli Þór­hildar Sunnu frá 25. febr­úar 2018 væru ekki í sam­ræmi við a- og c-lið 1. mgr.,. 5. gr. og 7 gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Í þeim segir að alþing­is­menn skuli sem þjóð­kjörnir full­trúar rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika, ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Þing­menn skuli í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu. Siða­nefnd kom­ast aftur á móti að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Björns Levís hefðu ekki brotið í bága við siða­regl­urn­ar.

„Alvarlegra að benda á samtryggingu en að taka þátt í leiknum“

Nið­ur­staða siða­nefndar var væg­ast sagt umdeild og mót­mælti Þór­hildur Sunna henni sjálf á Facebook-síðu sinni. „Siða­nefnd Alþingis telur alvar­legra að benda á sam­trygg­ingu og sjálftöku heldur en að taka þátt í leikn­um. Ég sætti mig ekki við það og mun nýta minn and­mæla­rétt til þess að fá þessu hnekkt,“ skrif­aði hún.

Þór­hildur Sunna sagði að fengi þessi nið­ur­staða að standa væru skila­boðin til okkar allra þau að það væri verra að benda á vanda­málin en að vera sá sem skapar þau. „Ég er alger­lega búin að fá nóg af slíkri með­virkn­i.“ For­sætis­nefnd féllst, eins og áður segir, á nið­ur­stöð­una.

Þingmenn Miðflokksins Mynd: Samsett mynd
Þingmenn Mið­flokks­ins Mynd: Samsett mynd

Klausturupptökurnar draga dilk á eftir sér

Annað umdeilt mál kom á borð for­sætis­nefndar en í síð­ustu viku stað­festi hún álit siða­nefndar þess efnis að Bergþór Ólason og Gunn­ar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, hafi brotið siða­regl­ur alþing­is­manna með um­mæl­um sín­um á Klaustur bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Aðrir þing­menn sem tóku þátt í téðu sam­tal­i, þau Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir úr Mið­flokki og Karl Gauti Hjalta­son og Ólaf­ur Ísleifs­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Miðflokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um alþing­is­manna, sam­kvæmt nefnd­inni.

Bergþór og Gunn­ar Bragi þóttu með um­mæl­um sín­um hafa brotið gegn c- og d-lið 1. mgr. 5. gr. og 7. og 8. gr. siða­reglna alþing­is­manna, en þar seg­ir m.a. að alþing­is­menn skuli sem þjóð­kjörn­ir full­trú­ar „leggja sig fram um að skapa í störf­um sín­um heil­brigt starfs­um­hverfi inn­an þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störf­um sín­um þar sem hafnað er hvers kon­ar kyn­ferðis­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða ann­arri van­v­irð­andi fram­komu“. Seg­ir einnig í regl­un­um að þing­menn skuli ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Siða­nefnd Alþingis taldi aftur á móti að ummæli Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur, þing­manns Mið­flokks­ins, um Freyju Har­alds­dóttur hafi ekki brotið gegn siða­reglum Alþingis.

Endurskoðun framundan

Nýlega kom fram í fréttum að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, und­ir­búi nú end­ur­skoðun siða­reglna fyrir alþing­is­menn í sam­vinnu við Helgu Völu Helga­dóttur, for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þings­ins.

Í sam­tali við Vísi þann 3. ágúst síð­ast­lið­inn sagði hann að þau væru búin að kasta á milli sín hug­myndum og hefðu verið að sanka að sér gögnum. „Nú er komin ákveðin reynsla á fram­kvæmd­ina og búið að reyna á ýmis­legt og það er nú aðal­lega sú umgjörð sem við erum að skoða og fram­kvæmd regln­anna,“ sagði hann. Stein­grímur sagð­ist ekki eiga von á því að sjálfar hátt­ern­is­regl­urnar yrðu teknar upp heldur aðal­lega fram­kvæmd þeirra og far­vegur kvart­ana.

Ljóst að verklagið gengur ekki upp

Helga Vala stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann og segir að Stein­grímur hafi haft sam­band við sig síð­asta vetur til þess að fara yfir málin. Hún segir að henni hafi strax orðið ljóst að verk­lagið í kringum siða­regl­urnar gangi ekki upp.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Hún segir að Íslend­ingar þurfi í raun ekki að finna upp hjólið. „Siða­reglur okkar eru byggðar á reglum Evr­ópu­þings sem þó eru nokkuð frá­brugðnar og má skoða hvort leita megi meira þangað. Þá hef ég áður nefnt að ÖSE hefur gefið út ítar­legar leið­bein­ingar um gerð og fram­kvæmd siða­reglna fyrir þjóð­þing aðild­ar­ríkj­anna og tel ég ein­boðið að fara vel yfir þær,“ segir hún.

„Við þurfum að kanna aðkomu ann­arra stjórn­mála­manna og for­sætis­nefndar,“ segir hún en bætir því þó við að þessar sam­ræður um regl­urnar séu enn algjör­lega óform­legar. „Þetta fer ekki á form­legan stað fyrr en for­sætis­nefnd fær drög að til­lögum um breyt­ingar og þegar drög að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu fer til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.“

Standa og falla með trúverðugleikanum

Hún bendir á að það að setja við­ur­lög við broti á siða­reglum sé flókið út af póli­tískri stöðu. „Það væri hægt að senda fólk í leyfi eða látið það ekki gegna trún­að­ar­störfum innan þings­ins. Það væri hug­mynd til að velta fyrir sér,“ segir hún.

Helga Vala telur að hægt sé að end­ur­skoða siða­regl­urnar, þrátt fyrir að margt hafi „mis­tek­ist hrapal­lega“ í ferl­inu hingað til. En hún bætir því við að ekki sé hægt að byggja upp traust með því einu að breyta siða­reglum. „Hvert og eitt okkar stöndum og föllum með trú­verð­ug­leik­anum.“

Siðareglur eiga að bæta menningu innan hóps

Sigurður Krist­ins­son, pró­fessor í heim­speki við félags­vís­inda­deild Háskól­ans á Akureyri, hefur skrifað bók og greinar um siða­reglur til fjölda ára. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að til­gang­ur­inn með siða­reglum sé marg­vís­legur. Að hans mati er þó mik­il­væg­asti til­gangur skráðra siða­reglna sá að bæta menn­ingu innan hóps­ins sem setur sér regl­unar. Það þýði að þessi hópur hagi sam­skiptum sínum og vinnu­brögðum á betri hátt með til­liti til til­gangs hóps­ins.

Þá sé hægt að spyrja sig hvort „dýnamíkin“ innan hóps hjálpi honum að sinna hlut­verki sínu vel og ef svo er ekki þá þurfi að bæta menn­ing­una innan hans. Að setja siða­reglur væri þá að aðferð til að gera hann betur færan til að sinna sínu hlut­verki og gætu þær jafn­framt miðlað upp­safn­aðri þekk­ingu. Þá sé hægt að læra af mis­tökum, til að mynda er varða sam­skipti og freistni­vanda.

Umræðan ætti að verða málefnalegri

„Með því að setja siða­reglur er gerður nokk­urs konar sátt­máli innan hóps­ins,“ segir Sigurður. Þá lofi fólk – þegar það gengst við siða­regl­unum – að standa við þær gegn því að aðrir geri það líka og að taka þær fram yfir sína eigin hags­muni. Hann bendir á að siða­reglur miðli einnig mik­il­vægum skila­boðum út á við, það er þegar lof­orð er gefið til skjól­stæð­inga, eða í til­viki stjórn­mála­manna til kjós­enda sem síðan dæma gjörðir þeirra á end­anum.

„Þegar slíkur sátt­máli er kom­inn þá verður umræðan mál­efna­legri,“ segir hann og bætir því við að í þeim til­fellum verði siða­reglur hjálp­ar­tæki þegar á þarf að halda.

Sigurður segir að til­gangur siða­reglna sé að bæta þessa menn­ingu og að þær séu þetta hjálp­ar­tæki, meðal ann­ars til að sam­ræma vænt­ingar – frekar en ytra eft­ir­lit. „Lyk­il­at­riðið er að þær eru liður í sjálf­ræði hóps­ins, sam­eig­in­legar reglur. Þær virka ekki sem ytra vald­boð.“ Mik­il­vægt er, að hans mati, að vandað sé til verka þegar siða­reglur eru gerðar. „Ferlið skiptir oft meira máli en útkoman sjálf,“ segir hann. Á end­anum sé engin for­skrift að siða­reglum.

Fara verður varlega í að beita viðurlögum

Þegar talið berst að siða­reglum þing­manna þá segir Sigurður að fara verði var­lega í það að beita við­ur­lögum. „Ef við lítum á siða­reglur sem innri og ytri sátt­mála þá koma ytri við­ur­lögin frá kjós­endum.“ Þeir ákveði með atkvæði sínu hvort þing­menn hafi staðið við sátt­mál­ann. Hvað varðar innri sátt­mála þá væri hægt að líta svo á að ef þing­menn brjóta siða­reglur þá njóti þeir ekki trausts innan þings­ins. Viðurlög gætu í því til­felli verið tíma­bundin, þeir gætu til að mynda ekki verið for­menn í nefndum eða sinnt ákveðnum trún­að­ar­störfum. Þessi leið er þó vand­með­farin að mati Sigurðar.

Hann segir enn fremur að siða­reglur geti verið til trafala í erf­iðum og flóknum málum á borð við Klaust­ur­málið. „Það er alltaf sú hætta fyrir hendi að þegar búið er að setja upp siða­nefnd sem úrskurðar um brot þá fari málið að snú­ast um máls­með­ferð – eins og fyrir dóm­stólum.“ Kost­ur­inn við að hafa siða­reglur en ekki siða­nefnd er sá að þá sé skýr­ara að hlut­verk regln­anna sé að styðja við mál­efna­lega umræðu og ígrundun.

Á hinn bóg­inn séu ákveðin rök fyrir því að setja á fót sér­staka siða­nefnd, til dæmis hjá fag­fé­lögum. Það geti verið liður í að vernda skjól­stæð­inga og þá gef­ist fólki jafn­framt kostur á að verja sig gegn til­hæfu­lausum ásök­unum. Vandaðir úrskurðir geta búið til gagn­leg við­mið.

En hvað þyrfti Alþingi að gera til að öðl­ast traust almenn­ings og þing­heims? Sigurður telur það skyn­sam­legt að end­ur­skoða siða­regl­urnar og ferlið í heild sinni á ný, eins og til stendur að gera í vetur. „Mér finnst það vera aðal­at­riðið að allir þing­menn­irnir hafi sam­ráð og að úr verði raun­veru­legur sátt­máli milli þeirra.“ Þá vonar hann að sú end­ur­skoðun verði ekki gerð að póli­tísku bit­beini og að áhersla verði lögð á að regl­urnar séu fáar og almennar. Með umræðum um siða­reglur þok­ist málin í átt að nið­ur­stöðu sem almenn sátt geti verið um.

Siðanefndir óþarfar í fullkomnum heimi

„Í full­komnum heimi þarf ekki siða­nefndir heldur bara almenn við­mið til að umræðan þok­ist í ein­hverja góða átt. Í ófull­komnum heimi þarf stundum siða­nefnd,“ segir hann. Sigurður telur jafn­framt að sem flestir þing­menn þurfi að taka þátt í að skapa ferlið – vegna þess að það sé sann­ar­lega sam­fé­lags­sátt­máli.

„Heppi­leg­ast væri að hafa siða­nefnd­ina án tengsla við stjórn­málin, þá koma síður upp van­hæfn­is­spurn­ingar,“ segir hann. Þá sé mik­il­vægt að for­sætis­nefnd mati ekki siða­nefnd, að hún hafi frjáls­ara umboð – það er taki við kvört­unum og setji sér sjálf starfs­reglur sem þingið stað­festi. „Vonandi skilar hún sér þessi vinna sem fram framundan er,“ segir hann að lokum.

Siðareglur eiga að vera leiðbeinandi

Jón Ólafsson, pró­fessor við Hug­vís­inda­svið Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi for­maður Gagnsæis, telur að siða­reglur hafi tví­þættan til­gang. „Í fyrsta lagi eiga þær að vera leið­bein­andi fyrir fólk um rétt við­brögð við aðstæðum og álita­málum sem koma upp og í öðru lagi eiga þær að bæta og skýra mæli­kvarða um rétta og eðli­lega hegðun og fram­komu á vinnu­stað, innan fags­viðs eða hóps o.s.frv.,“ segir hann í sam­tali við Kjarnann.

Þess vegna sé mik­il­vægt að sem flestir komi að bæði upp­haf­legri gerð siða­reglna og end­ur­skoðun þeirra sem þurfi að ger­ast reglu­lega. Þriðji til­gang­ur­inn, að hafa skýrar reglur sem hægt er að úrskurða eftir er að hans mati oft­ast síður mik­il­vægur.

Stjórnsýslan hefur enga siðanefnd

Varðandi til­gang siða­nefnda, þá segir Jón að hann sé oft sá að hafa nefnd sem er fengið það hlut­verk að úrskurða um hvort siða­reglur hafi í ein­stökum til­fellum verið brotnar. „Því fer hins vegar fjarri að siða­nefndir séu alltaf skip­aðar þegar settar eru siða­reglur. Stjórn­sýslan hefur til dæmis ekki neina siða­nefnd. Umboðs­maður Alþingis lítur meðal ann­ars til siða­reglna þegar hann fjallar um mál í stjórn­sýsl­unni en hvorki hann né nokkur annar aðili fellir beina úrskurði um hvort siða­reglur hafi verið brotnar í ein­stökum til­fellum.“

Hann bendir á að það sé mjög mis­jafnt hvort við­ur­lög séu nauð­syn­leg eða mögu­leg. Hans skoðun sé sú – og segir Jón að hann sé ekki einn um hana – að betra sé að almennar siða­reglur séu ekki hugs­aðar þannig að þeim fylgi ein­hver sér­stök við­ur­lög. Sé nauð­syn­legt að setja reglur sem hafa við­ur­lög sé betra að hafa þær mjög skýrar og aðskildar frá almennum siða­reglum.

Jón Ólafsson Mynd: Aðsend mynd
Jón Ólafsson Mynd: Aðsend mynd

Má efast um gildi úrskurðar

Jón telur að siða­reglur geti verið mjög vanda­samar í við­kvæmum málum, eins og Klaust­ur­mál­inu, ef hugs­unin á bak við þær sé sú að aðal­málið sé að fá ein­hvers­konar óháðan úrskurð um brot þegar kært er eða bent á þær kunni að hafa verið brotnar.

„Í Klaust­ur­mál­inu hög­uðu nokkrir þing­menn sér þannig að það var til hábor­innar skammar og hneyksl­aði almenn­ing. Enginn ágrein­ingur var um að slík hegðun væri sið­ferði­lega ámæl­is­verð. Þegar siða­nefnd úrskurðar svo mörgum mán­uðum síðar að sumir í hópnum telj­ist alls ekki hafa brotið siða­reglur þings­ins lítur það óhjá­kvæmi­lega þannig úr í augum margra að þar með hafi það sem þeir gerðu – eða létu ógert – ekki verið sið­ferði­lega ámæl­is­vert. Hér má efast um gildi úrskurð­ar­ins og almennt um notkun á siða­reglum sem felur í sér þrönga, jafn­vel laga­tækni­lega túlkun þeirra,“ segir hann.

Nýleg mál ættu að vekja fólk til umhugsunar

Jón álítur að þessi tvö umdeildu mál, þeirra Þór­hildar Sunnu og þing­mann­anna á Klaustur bar, ættu að vekja fólk til umhugs­unar um hvort úrskurð­ar­nefndir séu besta leiðin til að beita siða­reglum. „Ég sé frekar fyrir mér að slík siða­nefnd hafi leið­bein­ingar- og ráð­gjaf­ar­hlut­verk. Siða­regl­urnar sjálfar ættu að vera reglu­legt umræðu­efni Alþingis frekar en að spurn­ingin sé alltaf sú að koma eigi í veg fyrir að fólk brjóti þær.“

Hann segir að í heimi þröngrar siða­reglutúlk­unar sé alltaf hægt að koma and­styggi­legri hegðun og fram­komu við aðra fyrir þannig að form­lega séu engar siða­reglur brotnar. En slíkur smugu­hugs­un­ar­háttur – þar sem leitað er að smugum í reglum – sé full­kom­lega and­stæður hugs­un­inni á bak við siða­reglur. Hugsunin sé fyrst og fremst sú að gera fólk með­vit­aðra um sið­ferði­legar hliðar hegð­unar, fram­komu og breytni og auka áhug­ann á sam­eig­in­legum sið­ferði­legum mæli­kvörðum.

Frétta­skýr­ingin birt­ist einnig í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið undanfarið ár