Maurildi

Maurildi

Ragnar Þór er heimspekingur og kennari. Hans skoðun er sú að nærtækasta leiðin til að bæta samfélagið sé að ala upp betri borgara en hingað til. Borgara sem gera meiri kröfur. Ekki bara til annarra heldur líka sín. Á blogginu er gerð tilraun til að gera slíkar kröfur.

Svör fram­bjóðenda til stjórnar Kennara­félags Reykja­víkur

Annað kvöld verður kosin stjórn Kennara­félags Reykja­víkur. Í tilefni þess sendi ég spurningar á fram­bjóðendur (eins og ég hef gjarnan gert þegar um er að ræða kosningar sem tengjast skóla­málum). Tæpur helmingur fram­bjóðenda hefur sent mér svör og birtast þau hér. Þau svör sem mér berast hér eftir verða tengd hingað inn líka.  Svörin veita ágæta innsýn í þá stöðu...

Svör Hjördísar Alberts­dóttur, Norðlinga­skóla

Hver telur þú stærstu forgangs­málin í þróun skóla- og kjaramála næstu tvö ár? Í skóla­málum á vinnu­matið að vera í algjörum forgangi, þ.e. niður­felling þess. Vinnu­matið er heftandi fyrir kennara að mestu leyti, steypir vinnu of margra í sama mót og gerir bæði skóla­þróun (grundvöll alls skóla­starfs) og teymis­vinnu sérlega þunga í vöfum, þar sem kennarar og teymi hafa lítið...

Sálir forseta­frúa og fleira fólks

Afar áhugavert er að lesa í þjóðmál með því að skoða hlutverk eigin­manna og -kvenna þjóðar­leiðtoga. Alræmdur um þessar mundir er munurinn á fyrr­verandi og núverandi eiginkonu Bandaríkja­forseta. Sá munur held ég segi þónokkuð um andlega heilsu bandarísku þjóðar­sálarinnar. Það er varla tilviljun að Leyni­þjónusta Banda­ríkjanna notar kenninöfnin Mógúllinn um forsetaó­fétið og Músan um forseta­frúna.  Eitt af fjölmörgu sem vakið hefur athygli í...

Glundroða­kennd málsvörn Menntamála­ráðuneytisins

Það ríkir glundroði á mörkum grunn- og framhalds­skóla. Án nokkurra faglegra raka var skorið ár af framhalds­skólanum og ákveðið að hér eftir skyldu nemendur útskrifast úr grunn­skóla nógu góðir í grunn­fögum til að hefja nám í erfiðara framhalds­skólanámi en áður. Grunnskóla­megin var ekki gerð nein grundvallar­breyting af þessu tilefni. Skyndi­lega fóru nemendur að útskrifast úr grunn­skólum sem settir voru beint...

Krafsað í Pótemkin-tjöldin í Kastljósi

Einhver kostulegasti Kastljós­þáttur seinni tíma átti sér stað á dögunum. Tilefnið var það að stærstu aðilar vinnu­markaðarins höfðu stuttu áður gefið kennurum gula spjaldið og gert þá ábyrga fyrir stöðug­leika á vinnu­markaði. Ástæðan er auðvitað sú spenna sem er undir­liggjandi í kjara­málum kennara. Í vetur var naumlega samþykkt að grafa stríðs­öxina í stuttan tíma meðan aðilar finna lausn á framtíðar­skipan mála....

Skóli / samfélag án aðgreiningar

Skjálftar eru eðlilegir í lifandi skóla­kerfi. Þeir eru raunar bæði óumflýj­an­legir og æskilegir. Þessi misserin er töluverður hasar þar sem tekist er á við tilteknar brota­línur. Tvö dæmi eru alveg ný: Hópur fólks safnar nú stofnfé fyrir nýjan skóla sem ætlaður er einhverfum börnum. Miðað við það sem ég hef séð hefur söfnunin (og hugmyndin á bak við skólann) mætt nokkurri andstöðu. Síðan...

Mest lesið undanfarið ár