LeiðariJón Trausti ReynissonAndleg veikindi Íslendinga Þeir sem eru ósáttir við eitthvað á Íslandi eru markvisst útmálaðir sem skaðlegir sjálfum sér og öðrum, af valdahópi sem hefur ríka hagsmuni af því að fólk gleypi hugsunarlaust við því sem hann færir fram.
FréttirUtanríkisráðuneytið sver af sér þrýsting á háskólamann Dómari við alþjóðlegan dómstól sendi fræðimanni hótanir úr netfangi sínu hjá utanríkisráðuneytinu og sakaði hann um að vinna gegn utanríkishagsmunum Íslands. Upplýsingafulltrúi segir skilaboðin ekki hafa verið send í umboði utanríkisráðuneytisins.
PistillJóhannes BenediktssonÞað sem Davíð Oddsson gæti lært af Lars Lagerbäck Velgengnin snýst um liðsheildina, en ekki einstaklinga sem grafa hver undan öðrum, segir Jóhannes Benediktsson.
FréttirSjómaður rekinn eftir ásakanir um smitsjúkdóm Háseti á Gullberginu frá Vestmannaeyjum var sendur í land vegna órökstuddra grunsemda um að hann væri smitaður af ótilgreindum sjúkdómi eftir Taílandsferð, þar sem hann kynntist konu.
FréttirSeðlabankinn: „Sérlega bagalegt“ fyrirkomulag sem ýtir undir hagsveifluna Seðlabankinn varar við „sveifluaukandi reglu“ í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vill setja tekjuaukningu ríkissjóðs skorður.
AfhjúpunPanamaskjölinPanamaskjölin: Notaði börnin sín í skattaskjóli Sigurður Bollason fjárfestir skuldbatt þrjú börn sín sem lögráðamaður þeirra í viðskiptum félaga í skattaskjólum. Fjögurra og sex ára gömul börn eru skráðir eigendur skúffufélaga. Sigurður og viðskiptafélagi hans, Magnús Ármann, eru næst umsvifamestir í Panamaskjölunum á eftir Björgólfsfeðgum. Arðgreiðslur frá félögum hjá Mossack Fonseca nema á sjötta milljarð króna. Milljarðar voru afskrifaðir hjá þeim báðum eftir hrun en Panamaskjölin sýna miklar eignir þrátt fyrir það. 18 mín. lestur
RannsóknPanamaskjölinPanamaskjölin: Eigendur elstu heildverslunar Íslands stunduðu viðskipti gegnum Tortólu Erfingjar heildsölunnar Ó. Johnson og Kaaber, seldu hlutabréf til Tortólafélags fyrir nærri 330 milljónir króna. Fjögur systkini og móðir þeirra stýrðu félaginu sem hét Eliano Management Corp sem hóf lántökur upp á mörg hundruð milljónir króna í bönkum í Lúxemborg. Systkinin, meðal annars fyrrverandi fréttamaðurinn Helga Guðrún Johnson, neita að tala um Tortólafélagið. Skattasérfræðingur segir verulegt skattahagræði kunna að hafa verið af félaginu. 11 mín. lestur
ErlentEr Bretland á leið úr Evrópusambandinu? Unga fólkið vill vera áfram í Evrópusambandinu, en eldra fólk vill út. Bretland gæti verið á leið úr Evrópusambandinu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.
PistillJóhannes Björn Trump og bergmálið frá 1933 Ris Donalds Trump á sér rót í sömu hneigðum og ris fasismans. Jóhannes Björn skrifar um valdboðshneigð.
ÚttektForsetakosningar 2016Farvel Ólafur Ragnar: Konurnar, egóið og byltingin Ólafur Ragnar Grímsson skilur eftir sig gjörbreytt forsetaembætti. Karl Th. Birgisson, sem starfaði við framboð Ólafs Ragnars, skrifar um mismunandi útgáfur hans og áhrifin af konunum tveimur í lífi hans, í kveðjugrein eftir 20 ára valdatíð.
Gamla fréttinFræðimaðurinn sigraði frambjóðanda flokksins Í forsetakosningunum árið 1968 tókust á fræðimaðurinn Kristján Eldjárn og stjórnmálaskörungurinn Gunnar Thoroddsen. Kristján sigraði með yfirburðum.
PistillAnna Margrét PálsdóttirSviðakjamminn Anna Margrét Pálsdóttir mætir þeirri gulu með íslenskri húð.
ÚttektReyndi að kúga dreng til kynlífs með nektarmyndum Kynferðisleg kúgun ungmenna í gegnum samskiptamiðla er vaxandi vandamál á Íslandi, sem og um allan heim. Lögregla segir afar erfitt að eiga við þessi mál því oft sé um erlenda aðila að ræða. Í síðasta mánuði féll tímamótadómur er varðar kynferðislega kúgun þegar karlmaður var dæmdur fyrir að hóta að dreifa nektarmynd af 15 ára dreng ef hann hefði ekki kynferðismök við sig. Karlmenn eru í meirihluta þolendur í þessum málum hér á landi, að sögn lögreglu.
FréttirUppnám í Leifsstöð: „Ég kem aldrei aftur til Íslands“ Ferðamaður segir ljóta sögu af öryggisvörðum á Keflavíkurflugvelli. „Þeir spörkuðu í flugfarþega eins og götuhunda,“ segir ástralski prófessorinn Merryn Dawborn-Gundlach sem lenti í 13 klukkutíma töf vegna verkfalls flugumferðarstjóra.
InnlitÆvintýraheimur í Laugardalnum Allie Doersch ólst upp í Colorado og gekk í listaháskóla í Flórída þar sem hún lærði myndskreytingar og kynntist eiginmanni sínum, Guðjóni Erni Lárussyni. Nú hefur hún búið á Íslandi í tvö ár, vinnur sem teiknari hjá Össuri, syngur með pönkhljómsveitinni Tófu og var að klára myndskreytingar við barnabók. Hún segir myrkrið og hvítu veggina á Íslandi hafa verið þrúgandi í fyrstu en það hefur hún leyst með því að skapa litríkan ævintýraheim í tveggja herbergja íbúð í Laugardalnum.
ViðtalForsetakosningar 2016Hildur Þórðardóttir: „Ég er nýja Ísland“ Þjóðfræðingurinn og rithöfundurinn Hildur Þórðardóttir vakti strax athygli á sér í forsetaframboðinu eftir að vantrú á vísindum og óhefðbundnar hugmyndir hennar um heilun og læknisfræði komu við kaunin á mörgum. Sýn hennar á þessi málefni eru þó skiljanleg ef skoðuð í samhengi við litríkt lífshlaup hennar.
FréttirKennari fékk aðra áminningu fyrir að rassskella barn Kennari í Austurbæjarskóla var tilkynntur til barnaverndar fyrir að rassskella níu ára nemanda árið 2014. Foreldrar drengsins segjast hugsi yfir refsistefnu í grunnskólum en sonur þeirra átti mjög erfiðan vetur í skólanum. Kennarinn var áminntur fyrir brotið, en í vor fékk hann aðra áminngu fyrir sambærilegt atvik og segist hafa kiknað undan álagi. 16 mín. lestur
ReynslaAtli Már GylfasonHey prímadonna – sjáðu jökulinn loga! Ferðasaga frá Atla Má Gylfasyni sem fór til Frakklands að fylgjast með strákunum okkar keppa á sínum fyrsta leik á EM og upplifði algjörlega ógleymanlega stemningu með íslenska hópnum.
ViðtalVarð ólétt og verðlaunaði sig með reiðhjóli María Ögn Guðmundsdóttir vonast til þess að samskipti hjólreiðafólks, bílstjóra og gangandi fólks, batni. Maður grýtti hjólafólk. Fordómafullir og ógnandi bílstjórar. „Fólk á öllum getustigum getur hjólað"
FréttirFylgi Viðreisnar ört vaxandi Fylgi Viðreisnar hefur aukist jafnt og þétt á síðustu mánuðum og er nú komið upp í 9,1 prósent. Lektor í stjórnmálafræði segir pláss fyrir frjálslyndan hægriflokk sem muni að líkindum stela fylgi frá Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og Pírötum. Viðreisn hyggst bjóða fram í öllum kjördæmum en enn er hins vegar með öllu óljóst hverjir munu leiða flokkinn í komandi kosningum.
UppskriftJafnast ekkert á við gott stelpupartí Sumarið er tíminn, eins og skáldið sagði, og þá viljum við gjarnan safna í kringum okkur skemmtilegu fólki og halda sumarpartí – helst í garðinum. Það er þó ekki endilega víst að partíið verði eins flott og við höfðum hugsað okkur og því ekki úr vegi að leita góðra ráða hjá fólki með sérþekkingu. Marta María Jónasdóttir, drottningin af Smartlandi, kann flestum betur að halda gott partí, auk þess sem hún er eðalkokkur og var matreiðslubók hennar, MMM, tilnefnd til Gourmand-verðlaunanna í fyrra.
MenningAllt of kalt og allt of sexí Tryggvi Gunnarsson tapaði sex sinnum á Grímunni en átti eina umtöluðustu leiksýningu síðasta vetrar.
ListiÁtta ráð sem auka hamingjuna samstundis Hin enska Susie Moore er afar vinsæll markþjálfi sem hefur verið fengin til að skrifa pistla fyrir Marie Claire og The Huffington Post svo eitthvað sé nefnt, en hún heldur að auki úti vefsíðu þar sem hún deilir góðum ráðum um hvernig auka megi hamingju, sjálfstraust og starfsframa. Í nýlegum pistli gefur hún lesendum átta góð ráð sem auka hamingjuna...
FréttirForsetakosningar 2016Áhorfendum boðið að taka þátt í kappræðum Stundarinnar og Reykjavík Media Stundin og Reykjavík Media standa fyrir kappræðum með forsetaframbjóðendum á þriðjudag. Áhorfendur munu geta tekið virkan þátt í umræðunum.
PistillSnæbjörn RagnarssonBuxur á 500.000.– Snæbjörn Ragnarsson fær á tilfinninguna að það sé verið að níðast á honum þegar hann þarf að kaupa allan skemmtipakkann á Stöð 2 til að geta horft á eina þáttaröð.
PistillÞórdís Elva ÞorvaldsdóttirFöðurást er ekki ofbeldi Föðurást má ekki verða fórnarkostnaður í baráttunni gegn kynferðisofbeldi. Hvað velferð barna snertir er þeim fyrir bestu að eiga aðstandendur sem elska þau óhikað.
HamingjanÁgústa Kolbrún RobertsLærið að vera þakklát fyrir allar tilfinningar Ágústa Kolbrún Roberts segir leiðina að hamingjunni vera að leyfa öllum tilfinningum að njóta sín og leyfa þeim að streyma í gegn.
PistillValgeir MagnússonEigum við að flytja út rafmagn? Hvað gerir það fyrir okkur að selja grænu orkuna okkar úr landi um sæstreng, í stað þess að nýta hana innanlands?
PistillJón ÓlafssonHugrekki þess sem sker ekki: Um valdalaust vald forsetans Jón Ólafsson útskýrir af hverju það krefst hugrekkis að beita ekki valdi.
Áskrift hefur áhrif Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Áskrift styður tímafreka rannsóknarblaðamennsku. Ég vil fá áskrift Nei, takk Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn hér.