
Sumarið sem aldrei kom birtist í september
September hefur verið sólríkur og sumir vilja meina að sumarið hafi loks látið sjá sig. Borgarbúar hafa notið veðurblíðunnar í sólinni sem hefur skinið skært, sólskinsstundir eru yfir meðallagi sem hefur betur gegn kuldanum. „Þetta eru kannski kærkomin rólegheit,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
























