
Riftu samningi og greiddu átta milljónir í sáttagreiðslu
Stúdentaráð Háskóla Íslands rifti fimm mánaða gömlum samningi við rekstraraðila Októberfest, mánuði áður en hátíðin átti að fara fram. Samningurinn átti að gilda til fimm ára. Til að koma í veg fyrir dómsmál þurfti SHÍ að greiða 8 milljónir í sáttagreiðslu.





























