
„Íslensk stjórnvöld eru ekki að gera nóg“
Hópur nemenda úr Hagaskóla fóru í „skólaverkfall“ síðastliðinn þriðjudag og mótmæltu á Austurvelli. Mótmæltu þau aðgerðarleysi stjórnvalda í málefnum Palestínu fyrir framan Alþingishúsið. Mótmælin voru að mestu friðsæl en lögreglan þurfti að hafa afskipti af nokkurum ungmennum sem tóku upp á því að kasta eggjum í þinghúsið.



































