Land tækifæranna
Við erum búin að venja okkur á að það séu í raun tvær þjóðir í þessu landi. Við og þau. Ef við hugsum ekki of mikið um fólkið sem hingað flytur, og byggir upp landið, er auðvelt að gera lítið úr jaðarsetningu þess og því óréttlæti sem það býr stöðugt við. Gera úr þeim grýlur þegar það verða árekstrar, smætta þau niður í afætur og vandamál sem einhver annar þarf að leysa.