Menn sem eru sakaðir um ofbeldi krafðir svara

Ger­and­inn sagði af sér, honum var vikið frá störfum, hann steig til hliðar, honum var hafnað um ábyrgð­ar­stöður, hann var ekki val­inn í lands­liðs­verk­efni, hann var bók­aður úr verk­efnum. Allt eru þetta vís­bend­ingar um að ódæmi­gert rétt­læti sé að ryðja sér til rúms í kyn­ferð­is­brota­málum.

Réttarvörslukerfið
Rétt­ar­vörslu­kerfið Frá mót­mælum ungra kvenna sem árið 2019 mót­mæltu því hve lágt hlut­fall kyn­ferð­is­af­brota­mála færi ekki fyrir dóm. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ódæmi­gert rétt­læti í kyn­ferð­is­brota­málum kemur fram með fjöl­breyttum hætti en sprettur úr van­trausti á hefð­bundna rétt­ar­vörslu­kerfið og ákalli þolenda kyn­ferð­is­of­beldis um við­ur­kenn­ingu og rétt­læti, að sögn Hildar Fjólu Ant­ons­dóttur, lekt­ors í lög­reglu­fræði við félags­vís­inda­deild Háskól­ans á Akureyri.

Hún og Gyða Margrét Pét­urs­dóttir, pró­fessor í kynja­fræði við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, fluttu erindi um umbreyt­ingar og ódæmi­gert rétt­læti á ráð­stefnu Stíga­móta um ofbeld­is­menn á Íslandi í síð­ustu viku. 

Ódæmi­gert rétt­læti er and­stæðan við dæmi­gert rétt­læti, en hug­takið er tekið úr skrifum femíníska heim­spek­ings­ins Nancy Fraser til að lýsa því þegar aðilar sem berj­ast um rétt­lætið eru ekki lengur sam­mála um hvernig krafan um rétt­lætið eigi að líta út, hvert eigi að snúa sér til að ráða bót á rang­læt­inu, hvaða hug­mynda­kerfi liggur til grund­vallar rétt­læt­is­kröf­unni, og hvaða félags­legi mis­munur feli í sér rang­læti.

Breyt­ingar„Vís­bend­ingar eru um að í sumum málum séu þeir sem eru sak­aðir …
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár