
Hvalirnir upplifa „gríðarlega þjáningu og angist“
Síðasta sumar veiddi Hvalur hf. eina mjólkandi langreyðarkú, sem þýðir að hún hefur verið með kálf á spena. Sá hefur líklega ekki lifað lengi án móður sinnar. Ellefu kýr með fóstri voru veiddar. Sum þeirra höfðu náð um það bil 2/3 fæðingarstærðar sinnar. Eftirför í myrkri, allt að sex sprengiskutlum skotið að einu og sama dýrinu og tveggja klukkustunda dauðastríð þar sem langreyðurin synti særð um, kafaði og blés, er meðal þess sem átti sér stað á síðustu vertíð Hvals hf. Lög um velferð dýra voru ekki brotin að mati Matvælastofnunar.
8 mín. lestur

















































