Sendlastörf í verktöku „á dökkgráu svæði“

Mark­að­ur­inn fyrir heimsendan mat á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er mögu­lega að breyt­ast hratt. Eitt stærsta fyr­ir­tæki heims í þeim geira hefur numið land á Íslandi undir merkjum Wolt með við­skipta­módel sem ekki hefur þekkst hér­lendis – að sendlar fyr­ir­tæk­is­ins séu ekki starfs­menn heldur „sjálf­stæðir verk­takar“.

Giggverkamenn
Giggverka­menn Wolt kemur til Íslands í skugga mót­mæla­að­gerða og verk­falla sendla fyr­ir­tæk­is­ins í nokkrum öðrum ríkjum Evrópu. Hér á mynd­inni sjást sendlar fyr­ir­tæk­is­ins mót­mæla í Aþenu nýju kerfi sem Wolt tók í notkun til að reikna út hve mikið þeir fengju greitt fyrir send­ingar. Sendl­arnir þar töldu það skila sér í minni tekjum. Mynd: AFP

Send­la­þjón­ustan Wolt hefur hafið starf­semi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og býður til að byrja með upp á heim­send­ingar á mat og öðrum vörum mið­svæðis í Reykja­vík, Kópavogi og á Sel­tjarn­ar­nesi. Fyr­ir­tækið, sem stofnað var í Finn­landi en býður nú upp á þjón­ustu í hund­ruðum borga í 25 löndum, setur stefn­una á að stækka þjón­ustu­svæðið frekar þegar fram líða stundir.

Innreið Wolt á höf­uð­borg­ar­svæðið markar nokkur þátta­skil á mark­aði fyrir heimsendar vörur hér. Sá mark­aður er mjög stór víða um heim og nú hefur eitt af fjöl­þjóð­legu stór­fyr­ir­tækj­unum í þessum geira numið land á Íslandi.

Banda­ríska fyr­ir­tækið DoorDash, sem er með yfir helm­ings mark­aðs­hlut­deild á send­la­fyr­ir­tækja­mark­aði þar í landi, keypti öll hluta­bréf í Wolt í fyrra fyrir 3,5 millj­arða banda­ríkja­dala, jafn­virði 480 millj­arða króna. Mark­aðsvirði DoorDash í kaup­höll­inni í New York var á mið­viku­dag 26,7 millj­arðar banda­ríkja­dala, eða ríf­lega 3.660 millj­arðar íslenskra króna.

Það er því sann­kall­aður risi kom­inn á …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár