
Ekki farsæl lausn að vindorkuverkefni fari framhjá rammaáætlun
Að auðvelda uppbyggingu vindorku umfram aðra orkukosti er til þess fallið að „ala á sundrung og andstöðu” í samfélaginu, að mati Orkustofnunar. Afla þurfi frekari orku til orkuskipta en í núverandi lagaumhverfi, bendir stofnunin á, er hins vegar ekkert sem kemur í veg fyrir að orka úr nýjum virkjunum sé seld í eitthvað allt annað. Það gæti hreinlega aukið losun gróðurhúsalofttegunda.




























































