Allt sem þú vildir vita um Kóreufundinn

Kim Jong-un og Moon Jae-in hitt­ust á hlut­lausa svæð­inu á landa­mærum Kóreu­ríkj­anna tveggja í gær. Und­ir­rit­uðu þeir Pan­munjeom-sátt­mál­ann sem felur í sér að eyða kjarna­vopnum af Kóreu­skag­anum. Fund­ur­inn hafði mikið tákn­rænt gildi.

Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu og Moon Jae-in, for­seti Suður-Kóreu, und­ir­rit­uðu sátt­mála um eyð­ingu kjarna­vopna á Kóreu­skag­anum við lok fund­ar­ins sem hald­inn var í gær. Sátt­mál­inn hefur verið nefndur í höf­uðið á borg­inni sem leið­tog­arnir fund­uðu í, Pan­munjeom. Kjarninn fjall­aði um sögu Kóreu ríkj­anna tveggja áður en fund­ur­inn hófst.

Samn­ing­ur­inn er hálf­kveðin vísa að mati sér­fræð­inga og að vís­vit­andi hafi verið skilið eftir póli­tískt svig­rúm fyrir Kim. Kim Jong-un mun hitta Donald Trump Banda­ríkja­for­seta snemm­sumar og munu þeir einnig ræða afkjarna­vopna­væð­ingu. Í sátt­mál­anum er enn fremur kveðið á um að ríkin muni vinna að því ásamt Banda­ríkj­unum að binda enda á Kóreu­stríðið.

Sér­fræð­ingar í alþjóða­stjórn­málum segja það vera erfitt fyrir for­seta Suður-Kóreu að skuld­binda ríkið til athafna hvað varðar vopn og her­lið án þess að Banda­ríkja­menn komi að því. Allt frá Kóreu­stríð­inu hefur Banda­ríkja­her haft við­veru í Suður-Kóreu. Í kring um kjarna­vopna­brölt norð­an­manna í fyrra bættu Banda­ríkja­menn við her­lið sitt sunnan megin við landa­mærin. Trump er búinn að tísta um fund­inn og fagnar hann því að leið­tog­arnir hafi komið saman.

Leikhús ráðkænsku

Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu og Moon Jae-in, for­seti Suður-Kóreu, und­ir­rit­uðu sátt­mála um eyð­ingu kjarna­vopna á Kóreu­skag­anum við lok fund­ar­ins sem hald­inn var í gær. Sátt­mál­inn hefur verið nefndur í höf­uðið á borg­inni sem leið­tog­arnir fund­uðu í, Pan­munjeom.

Samn­ing­ur­inn er hálf­kveðin vísa að mati sér­fræð­inga og að vís­vit­andi hafi verið skilið eftir póli­tískt svig­rúm fyrir Kim. Kim Jong-un mun hitta Donald Trump Banda­ríkja­for­seta snemm­sumar og munu þeir einnig ræða afkjarna­vopna­væð­ingu. Í sátt­mál­anum er einnig kveðið á um að ríkin muni vinna að því ásamt Banda­ríkj­unum að binda enda á Kóreu­stríðið.

Sér­fræð­ingar í alþjóða­stjórn­málum segja það vera erfitt fyrir for­seta Suður-Kóreu að skuld­binda ríkið til athafna hvað varðar vopn og her­lið án þess að Banda­ríkja­menn komi að því. Allt frá Kóreu­stríð­inu hefur Banda­ríkja­her haft við­veru í Suður-Kóreu. Í kring um kjarna­vopna­brölt norð­an­manna í fyrra bættu Banda­ríkja­menn við her­lið sitt sunnan megin við landa­mærin. Trump er búinn að tísta um fund­inn og fagnar hann því að leið­tog­arnir hafi komið saman.

Það fór vel á með þeim Kim og Moon á fund­inum. Í upp­hafi fund­ar­ins gékk Kim skæl­bros­andi yfir landa­mærin og bauð svo kollega sínum í suðri að stíga í stutta stund yfir í norð­ur­hlut­ann.

Tíma­móta­fundur leið­toga Kóreu­ríkj­anna var hlað­inn tákn­rænum skila­boðum og var gefið upp mikið af nákvæmum smá­at­riðum, allt frá hversu langt bil var á milli leið­tog­anna á fund­inum til þess hvað sendi­nefndir ríkj­anna snæddu í kvöld­verð.

Stærðin á borð­inu sem leið­tog­arnir fund­uðu við er 2018 milli­metrar á breidd og 1953 milli­metrar á lengd. Breiddin er fyrir árið sem er núna 2018 og lengdin vísar til árs­ins sem Kóreu­stríð­inu lauk og vopna­hléssamn­ingar milli ríkj­anna und­ir­rit­aðir.

Áform um að reisa sam­eig­in­lega skrif­stofu Kóreu­ríkj­anna voru rædd á fund­inum og kom­ist að sam­komu­lagi að hún verði stað­sett í borg­inni Kaesong í Norður-Kóreu. Moon sagði að hann myndi heim­sækja til Pyongyang í haust og Kim sagði að ef honum yrði boðið í heim­sókn til Seoul myndi hann þiggja boðið.

Eftirrétturinn alræmdi.
Eft­ir­rétt­ur­inn alræmdi.

Þýðingarmikill matseðill

Mat­seð­ill­inn var ansi glæsi­legur og var gef­inn út með tveggja daga fyr­ir­vara. Á honum voru réttir sem inni­hald og upp­runi tengdir voru við upp­runa þeirra á fund­inum og sögu ríkj­anna. Meðal ann­ars var sviss­neskur kart­öflu­réttur til heið­urs skóla­veru Kim Jong-un í Sviss og fiskur veiddur fyrir utan bæinn sem Moon Jae-in ólst upp í. Það sem vakti hvað mesta athygli var eft­ir­rétt­ur­inn, mangómús. Bjartur litur mangómús­ar­innar táknar komu vors­ins og skír­skotar í að sátta sé að vænta á Kóreu­skag­anum eftir langt kalt stríð. Ofan á mangómús­ina var lögð mynd með útlínum Kóreu­skag­ans í bláum lit.

Suður-Kóreu­menn eru reyndar þekktir fyrir að senda skila­boð í gegnum mat. Í heim­sókn Donald Trump voru send köld skila­boð til Japans. Á mat­seðl­inum var rækju­réttur sem ber heitið Dokdo í Suður-Kóreu og er upp­runn­inn í Suður-Kóreu. Japanar neita að kalla rétt­inn því nafni og kall­ast hann Takes­hima. Viðstödd kvöld­verð­inn var kona sem neydd var í kyn­lífs­ánuð jap­anska hers­ins í síð­ari heim­styrj­öld­inni.

Yfirvöld í Japan sendu út opin­ber mót­mæli vegna eft­ir­rétt­ar­ins sem var fram­reiddur á fund­inum í gær. Maturinn sem leið­tog­arnir snæddu fékk því mikla athygli.

Fréttum af fund­inum var sjón­varpað um alla Suður-Kóreu og í Norður-Kóreu var sjón­varpað frétt af því að leið­tog­inn væri að halda á fund­inn. Fyrir utan ráð­húsið í hjarta Seoul var Kóreu­skag­inn mót­aður úr blómum. Hér fyrir neðan má sjá mynd­band af honum.

Það væri lík­leg­ast fljót­legra að telja upp það sem hafði ekki tákn­ræna merk­ingu á fund­inum. Blái lit­ur­inn var alls ráð­andi en hann er litur fána sam­einaðrar Kóreu. Gólfið í salnum sem leið­tog­arnir hitt­ust var blátt og var bindi Moon blátt. Kim var jakka­fötum í anda Maós til að senda skila­boð til þjóðar sinnar, að þó hann sé í landi óvin­ar­ins sé hann enn þá trúr þjóð sinni.

Eftir hádeg­is­verð­inn, sem sendi­nefndir ríkj­anna snæddu ekki saman, mok­uðu leið­tog­arnir mold í beðið við tré á landa­mær­unum í hlut­lausa­belt­inu. Tréð var gróð­ur­sett árið 1953, þegar vopna­hlé var und­ir­ritað og Kóreu­stríð­inu lauk. Moldin sem Kim mok­aði er frá Norður-Kóreu og moldin sem Moon mok­aði er frá Suður-Kóreu.

Er verið að plata Trump? Mynd: EPA
Er verið að plata Trump? Mynd: EPA

Tálsýn Kim

Trump tístir um tíma­mót og góðar fréttir en samt sem áður er aðstoð­ar­fólk hans á varð­bergi. Þrátt fyrir að Kim segi að Norður-Kórea muni hætta til­raunum með kjarna­vopn vantar í sátt­mál­ann skuld­bind­ingu fyrir Norður-Kóreu að standa við orð sín. Aðstoð­ar­fólk Trump Í Hvíta hús­inu grunar Kim um að vera að villa um fyrir Trump og að ekk­ert verði gefið í samn­inga­við­ræðum milli Banda­ríkj­anna og Norður-Kóreu.

Þau telja Kim vera að skapa þá tál­mynd að hann sé sann­gjarn og til­bú­inn til að gera mála­miðl­anir. Ef sér­fræð­ingum í Hvíta hús­inu lýst ekki á þá samn­inga sem Kim leggur á borðið á fund­inum í sumar getur það orðið erfitt fyrir Trump að neita honum eða gera breyt­ingar, stjórn­mála­lega séð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár