Hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna „reiðarslag“

Helga Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SAF, segir enga grein­ingu eða umræðu hafa farið fram á hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu. Ekkert sam­ráð hafi verið haft um málið. Stjórn­völd vilja tempra vöxt sem hefur verið hrað­ari en inn­viða­upp­bygg­ing ræður við.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Helga Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Mynd: SAF

Helga Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, segir að fólk í ferða­þjón­ustu sé „í sjokki“ yfir fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda um að færa stærstan hluta ferða­þjón­ust­unnar í efra þrep virð­is­auka­skatts. Þetta kom fram í við­tali við hana í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun. Staðan sé grafal­var­leg og greinin hafi „stór­kost­legar áhyggjur af“ henni.

Helga sagði að Samtök ferða­þjón­ust­unnar hefðu fengið að vita af fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda klukku­tíma áður en til­kynnt var um þær opin­ber­lega. Hún gagn­rýndi mjög sam­ráðs­leysi við grein­ina og sagði enga umræðu hafa farið fram um hana. Þá liggi ekki fyrir nein grein­ing á áhrifum hennar.

„Við erum langt frá því að vera ánægð með þetta og við bara teljum að þetta sé reið­ar­slag fyrir ferða­þjón­ust­una.“ Hún sagði að vissu­lega hafi ferða­mönnum fjölgað mjög, en víða úti á landi sé mikið verk óunnið og hægt að efla ferða­þjón­ust­una enn frekar.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra greindi frá áformunum um miðja síð­ustu viku. Hann spurði hvort það væri rétt­læt­an­legt að hafa grein­ina í und­an­þágu­þrep­inu, lægra þrepi virð­is­auka­skatts, í þeim til­gangi að styðja við og auka við­gang hennar.

Í fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra er svo nánar vikið að þessu. Þar kemur fram að breyt­ingin sé hluti af heild­stæðum breyt­ingum á virð­is­auka­skatts­kerf­inu. „Breyt­ingin tekur gildi um mitt ár 2018 og greinin hefur því 15 mán­uði til að laga sig að þess­ari breyt­ingu, frá kynn­ingu til gild­is­töku. Að því marki sem breyt­ingin hefur áhrif á fjölda ferða­manna er það til að tempra vöxt sem hefur verið hrað­ari en inn­viða­upp­bygg­ing ræður við.“

Það er á grund­velli þess­arar hækk­unar á virð­is­auka­skatt í ferða­þjón­ustu sem hægt verður að lækka virð­is­auka­skatt­inn úr 24 pró­sentum í 22,5 pró­sent.

[adspot]

„Umsvif í grein­inni hafa mikil áhrif á nátt­úr­una, sam­fé­lagið, vinnu­mark­að­inn og flesta inn­viði. Til við­bótar er hætt við að lítil opin hag­kerfi, líkt og hið íslenska, verði ber­skjald­aðra gagn­vart áföllum eftir því sem aukn­ing útflutn­ings­tekna lands­ins tak­markast við ein­stakar greinar. Ef til þess kæmi, t.d. vegna of mik­illar hækk­unar á raun­geng­inu, að veru­lega drægi úr komum ferða­manna gæti afleið­ingin orðið efna­hags­sam­dráttur, aukið atvinnu­leysi og lækkun eigna­verðs,“ segir einnig í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar.

Náttúra Íslands sé helsta ástæða þess að ferða­menn kjósi að sækja landið heim og það sé því mikið kapps­mál að landið og nátt­úran verði vernduð svo hámarka megi virði hennar til lengri tíma. „Jafn­framt er það hagur allra að búa við sterka sam­fé­lags­lega inn­viði. Það er því ekki endi­lega eft­ir­sókn­ar­vert að hámarka fjölda erlendra ferða­manna á hverjum tíma. Þess vegna er mik­il­vægt að skapa umgjörð og hvata sem eru til þess fallin að draga úr átroðn­ingi og tryggja sjálf­bæra upp­bygg­ingu ferða­þjón­ustu til lengri tíma litið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár