Fjör á ganginumFjölskyldurnar tvær máluðu og innréttuðu ganginn í sameiningu. Fyrir vikið er hann óvenju heimilislegur, af sameign að vera.Mynd: Heiða Helgadóttir
Nú til dags er algengara en áður fyrr að nágrannar þekkist lítið sem ekkert. Inni á milli eru þó þau sem telja gott grannasamband mikils virði og eru tilbún að gera ýmislegt til að glæða það lífi. Hér deila þrír hópar af góðum grönnum sögum af nánum nágrannatengslum.
„Megum við Bríet fara út á bak við sundlaugina á snjóþotur?“ spyr Elísabet og mömmurnar, þær Tinna Ásgeirsdóttir og Líf Magneudóttir, svara báðar í kór: „Já, endilega.“ Stundum er engu líkara en að pörin í íbúðunum á 2. og 3. hæðinni á Hagamel 32 eigi börnin sjö öll saman. Börnin sjálf þekkja í það minnsta varla annan veruleika en að vera í nánu samneyti við hina fjölskylduna, enda hafa þær deilt stigagangi í sjö ár. Börnin flæða á milli hæða og minna um margt meira á systkini en nágranna.
Gott að eiga hvert annað aðÞau Eiríkur, Snorri, Líf og Tinna eru sammála um að það sé mikill kostur að geta treyst á hjálp og stuðning nágranna sinna í hversdagslífinu. Börnin hafa líka mikinn félagsskap hvert af öðru.
Mynd: Heiða Helgadóttir
Á annarri hæð hússins búa þau Tinna Ásgeirsdóttir og Eiríkur …
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir