Meirihluti þingmanna fæðist inn í stjórnmálaelítuna

Nýlega kom út bók eftir Dr. Hauk Arn­þórs­son en þar veltir hann fyrir sér stjórn­mála­el­ít­unni á Íslandi. Hann kemst að því að það halli veru­lega á ákveðna hópa, einkum þá sem eru minna mennt­aðir, verr ætt­aðir, hafa veika þjóð­fé­lags­stöðu og á konur.

Dr. Haukur Arn­þórs­son gaf nýverið út bók­ina Um Alþingi – Hver kennir kenn­ar­anum? en athygli vakti í fjöl­miðlum við útgáf­una umræða um stöðu kvenna á Alþingi. Hér verður ekki farið í þann kafla, heldur verður athygl­inni beint að svo­kall­aðri stjórn­mála­el­ítu á Íslandi en Haukur skoðar hvort alþing­is­menn séu fremur úr hærri lögum þjóð­fé­lags­ins en lægri. Hann bendir á að stjórn­mála­el­ítan sé mik­il­væg­asta elíta sam­fé­lags­ins og reyni aðrar elítur að hafa áhrif á hana.

Yfir­stétt er sam­kvæmt nor­rænum skil­grein­ingum ann­ars vegar þeir sem eru með sterka ætt­ar­stöðu og hins vegar þeir sem eru úr hæstu lögum þjóð­fé­lags­ins. Meiri­hluti þing­manna á Íslandi er úr yfir­stétt, en minni­hluti hefur ætt­ar­tengsl og annar minni­hluti er úr hæstu lögum þjóð­fé­lags­ins. Saman mynda þessir tveir hópar yfir­stétt­ina.

En áður en áfram er haldið er nauð­syn­legt að skilja hug­takið elíta. Haukur tekur það fram að það sé notað yfir hóp eða hópa ein­stak­linga sem hafa hlut­falls­lega meiri völd en fjöldi þeirra segir til um. Þegar talað er um vald elítu sé fremur átt við aðstöð­una til að hafa áhrif á ákvarð­ana­töku í sam­fé­lag­inu en eig­in­lega beit­ingu þess. Um það hverjir hafi raun­veru­lega mögu­leika á að stjórna. Í bók­inni er ekki bent á ein­stak­linga sem til­heyra stjórn­mála­el­ít­unni, en sagt frá því hvað ein­kenni hana og hópa hennar.

Stjórnmálaelítan er grundvallarelítan

Haukur segir að menn geti orðið hluti af elítu á tvennan hátt, verið fæddir í hóp­inn eða áunnið sér þá stöðu.

„Jafnan er reiknað með því að margar elítur séu í hverju lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi og er oft miðað við að þær séu í aðal­at­riðum í stjórn­málum, atvinnu­lífi og stórum félaga­sam­tökum, auk sér­stakra elítna í mennta­lífi, miðlun, listum o.s.frv. Stjórn­mála­el­ítan er grund­vallar­el­ítan vegna stöðu sinnar gagn­vart rík­is­vald­inu og allar hinar reyna að hafa áhrif á hana og tengj­ast henni,“ kemur fram í bók­inni.

Haukur telur jafn­framt að elíta sé ekki nei­kvætt orð í sjálfu sér. Þótt hægt sé að hugsa sér alger­lega stétt­laust sam­fé­lag, þá hafi slíkt sam­fé­lag aldrei verið til og nútíma lýð­ræð­is­þjóð­fé­lag kalli á leið­sögn og þar með leið­toga. Lyk­il­at­riði sé hins vegar hversu opnar elítur séu. Opin­leiki stjórn­mála­el­ít­unnar sé mik­il­vægur til að lýð­ræðið fái að blómstra. Opin­leiki elítu sé mældur með tvennu, það er hverjir kom­ist í hana og hversu hratt hún end­ur­ný­ist.

Þá kemur fram hjá Hauki að á sein­ustu árum hafi stjórn­mála­fræð­ingar lagt aukna áherslu á þátt stjórn­mála­el­ít­unnar við að ná félags­legum og efna­hags­legum árangri.

Þetta sé lýð­ræð­is­leg nálgun og hafi þann boð­skap að lít­ill árangur geti leitt til mik­illar end­ur­nýj­unar í stjórn­mála­el­ít­unni, til dæmis í kosn­ingum. Reynsla síð­ustu ára­tuga sýni að stjórn­mála­el­ítur sem horfa fram hjá alvar­legum deilum og jafn­vel átökum, kúgun og nið­ur­læg­ingu kyn­þátta eða stétta, mik­illi mis­skipt­ingu auðs eða mik­illi fátækt séu ekki lík­legar til lang­lífis. Árangur sé þá að ein­hverju leyti mældur í ánægju almenn­ings, frelsi hans, lýð­rétt­indum og vel­sæld. Þá sé nokkuð rætt um sam­keppni milli elítna, aðskilnað þeirra og lýð­ræð­is­leg áhrif slíks aðskiln­aðar.

„Stundum er því haldið fram að tog­streita ríki milli ólíkra sjón­ar­miða við val á stjórn­mála­mönnum. Annars vegar eigi þeir að hafa menntun, reynslu og getu til þess að sinna störfum sínum, og styðja slík sjón­ar­mið elít­isma, og hins vegar skuli þeir end­ur­spegla þjóð­ina,“ skrifar Haukur.

Í raun­veru­leik­anum sé þessi tog­streita varla mjög mik­il­væg, enda bendi stjórn­mála­fræð­ingar á að almenn við­mið séu hug­mynda­fræði­legur grund­völlur vest­rænna stjórn­mála, ekki sjón­ar­mið ein­hvers konar sam­fé­lags­úr­vals. Það sé ekki sér­fræði­þekk­ing sem veitir ákvörð­unum stjórn­mála­manna lög­mæti, heldur almenn yfir­sýn og grein­ing á aðal­at­riðum hvers máls. Breyti hér engu þótt mál séu tækni­lega flókin – úr þeirri flækju vinni aðrir. Almenn við­mið séu því hin far­sæla hug­mynda­fræði­lega nálgun.

Samsetning stjórnmálaelítunnar önnur en annarra elítna

Haukur bendir enn fremur á að stjórn­mála­el­ítan hafi marg­hátt­aða sér­stöðu. Hún hafi mikið meira stofn­ana­legt vald en aðrar elítur. Hún hafi mið­læga stöðu í rík­is­kerf­inu og auk þess mikla mögu­leika á að hafa áhrif á almenn­ing. Sam­setn­ing stjórn­mála­el­ít­unnar sé líka önnur en ann­arra elítna. Hæsta­rétt­ar­dóm­ari þurfi til að mynda að vera leið­andi lög­fræð­ingur með langa starfs­reynslu og meðal ann­ars dóm­ara­reynslu, en ekki mað­ur­inn af göt­unni – en stjórn­mála­menn eigi að vera full­trúar almenn­ings, og skipti kjós­endur og kosn­ingar hér lyk­il­máli.

„Talið hefur verið að ákveðið sam­hengi sé milli opin­leika stjórn­mála­el­ít­unnar og sam­loð­unar elítna almennt og mögu­legrar hóp­vit­undar. Þessar kenn­ingar um sam­hengi hinna fræði­legu hug­taka eru kenndar við John Scott,“ skrifar Haukur en hann leggur fram töflu til að úrskýra hug­tökin betur:

Hann segir að þegar talað sé um lágt stig opin­leika sé átt við að stjórn­mála­el­ítan end­ur­nýi sig einkum frá hópi með ákveðna þjóð­fé­lags­stöðu, en hátt þýði hið gagn­stæða – að hlut­föll þjóð­fé­lags­hópa í elít­unni end­ur­spegli þjóð­ina og einkum að yfir­stéttir séu ekki í hærra hlut­falli en fjöldi í þeim segir til um. Þá mið­ist stig opin­leika einnig við tíðni útskipt­inga, sem í til­viki Íslend­inga væri það hversu lengi þing­menn sitja á Alþingi.

Samloðun sýni hins vegar hversu þétt tengdar elítur séu og þá um leið hvort þær hafi hóp­vit­und og hvort það ríki eins­leitni í skoð­unum, við­horfum og gildum milli elítna. Þessi ein­kenni beri merki um sam­starf milli elítna. Síðast en ekki síst fóstri sam­loðun og ekki síður hóp­vit­und lárétt sam­skipti milli elítna, þannig að kröfur frá lægra settum stéttum nái ekki fram að ganga, þær ógni ekki gagn­kvæmum skiln­ingi sam­loð­andi elítna og geti ekki eflt sam­keppni milli og innan þeirra.

Þingsetning haustið 2015
Þing­setn­ing haustið 2015

„Í sjálfu sér felst alltaf ákveðin ógn við lýð­ræðið í starfi elítn­anna, eins og leiða má af fram­an­sögðu. Auk þeirra atriða sem hér hafa verið nefnd kemur síðan til­hneig­ing allra valda­að­ila til að við­halda stöðu sinni,“ segir í bók­inni.

Haukir bendir á að kenn­ingar um stjórn­mála­el­ít­una séu á margan hátt mót­sagna­kenndar en eigi einnig margt sam­eig­in­legt. „Það sem er mik­il­vægur kostur í lýð­ræð­inu getur orðið því að falli ef illa fer. Margir fræði­menn benda á mik­il­vægi þess að jafn­vægi sé milli ólíkra þátta sem ein­kenna lýð­ræðið. Lýðræðið sé í raun­inni við­kvæmt gagn­vart misvægi þeirra.“

Ekki skrá endilega allir þingmenn ættartengsl sín

Skyld­leiki þing­manna og fjöl­skyldu­bönd við aðra alþing­is­þing­is­menn eru meðal þeirra atriða sem skráð eru í Alþing­is­manna­tal en Haukur kann­aði þennan skyld­leika í bók­inni. Hann kallar þau ætt­ar­tengsl og hug­takið ætt­ar­veldi notar hann um þau völd og aðstöðu sem slík tengsl veita. Hann segir þó að ekki sé hægt að full­yrða að allir þing­menn skrái ætt­ar­tengsl sín því það sé þeim í sjálfs­vald sett, þannig að skrán­ingin sé ef til vill ekki tæm­andi. Til dæmis vísi þing­menn sjaldan eða aldrei í ætt­ar­tengsl við þing­menn sem langt er síðan sátu á Alþingi, allt að öld eða meira.

Samkvæmt athugun Hauks höfðu 37,8 pró­sent þing­manna á tíma­bil­inu 1991 til 2018 ætt­ar­tengsl við aðra sem setið hafa á Alþingi. Það segi hins vegar ekki alla sög­una. Frá og með kosn­ing­unum 2013 hafi þeim fækkað sem höfðu ætt­ar­tengsl við aðra þing­menn og enn kröft­ug­legar í kosn­ing­unum 2017, og hafi þeir þá orðið 27 pró­sent þing­manna.

Fram kemur að um helm­ingur karla hafði ein­hver ætt­ar­tengsl við aðra þing­menn á fyrri­hluta tíma­bils­ins en konur í um 40 pró­sent til­fella. Þeim hafi síðan fækkað sem hafa ætt­ar­tengsl. Á síð­ara tíma­bil­inu hafi 32 pró­sent karla slík tengsl og 28 pró­sent kvenna.

„Alls eru þing­manna­færsl­urnar 1.796 og taka til 258 þing­manna. Þar af höfðu 87 ætt­ar­tengsl við aðra þing­menn eða 33,7 pró­sent ein­stakra þing­manna á tíma­bil­inu öllu. Það er athygl­is­vert að þegar miðað er við upp­lýs­ingar í þing­manna­færslum eru 37,8 pró­sent þing­manna tengdir ætt­ar­böndum, en aðeins 33,7 pró­sent ef miðað er við upp­lýs­ingar um ein­stak­ling­ana hvern og einn. Skýr­ingin er sú að þeir sem hafa ætt­ar­tengsl við aðra þing­menn sitja tölu­vert fleiri þing en hinir og koma því fyrir fleiri þing­manna­færslum. Þeim er síður skipt út en öðrum,“ skrifar Haukur.

Þá kemur fram að þing­menn með ætt­ar­tengsl séu rúm­lega þremur árum lengur á þingi en aðrir, eða tæp­lega heilt kjör­tíma­bil. Einnig kemur fram að þing­menn með ætt­ar­tengsl við aðra þing­menn séu ofar á fram­boðs­listum flokka sinna en aðrir.

„Gögnin benda tví­mæla­laust til þess að hér á landi geti stjórn­mála­el­ítan byggst að ein­hverju leyti á ætt­ar­tengslum og því að ákveðnar fjöl­skyldur verji stöðu sína svipað og á 19. öld og fyrri­hluta 20. aldar, og er það ein­kenni á lítt þró­uðum ættar sam­fé­lögum.“

Þingmenn með ættartengsl fá ráðherraembætti í meira mæli

Jafn­framt kemur fram í bók­inni að þing­menn sem hafa ætt­ar­tengsl fái ráð­herra­emb­ætti í meira mæli en aðrir þing­menn og hafi þannig meiri áhrif en fjöldi þeirra segir til um, til dæmis með því að ráð­herrar bera fram marg­falt fleiri mál sem verða að lögum en aðrir þing­menn. Annað ein­kenni hóps­ins sé að mál hans dagar uppi við þriðju umræðu ef þau geri það á annað borð – það sé ein­kenni ráð­herra­mála, en svo langt í máls­ferl­inu nái þing­mál ann­arra þing­manna alla­jafna ekki, þau dagi uppi á fyrri stigum og komi jafn­vel ekki til umræðu.

„Þannig fylgja völd og áhrif ætt­ar­tengslum. Þingmenn með ætt­ar­tengsl verða fremur fjár­mála­ráð­herrar en aðrir þing­menn, en það er lyk­il­staða í stjórn­kerf­inu. Að sama skapi taka þeir þing­menn sem hafa ætt­ar­tengsl síður þátt í með­flutn­ingi máls en aðrir.“

Þingsetning haustið 2019
Þing­setn­ing haustið 2019

Þeir sem hafa ætt­ar­tengsl eru meira mennt­aðir en aðrir þing­menn, sam­kvæmt Hauki, og er menntun þeirra einkum í lög­fræði, en síst í mennt­un­ar­fræðum og félags­vís­indum. „Þeir þing­menn sem hafa ætt­ar­tengsl við aðra þing­menn eru fremur full­trúar kjós­enda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á lands­byggð­inni og þegar málið er skoðað betur sést að karlar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru fremur með skyld­leika­tengsl en aðrir og konur af lands­byggð­inni síst.“

Lögfræðingar og jafnaðarmenn sterkustu ættarveldin

Haukur segir að í stærra sam­hengi sé af þessum stað­reyndum ljóst að sterk­astir séu tveir hópar íslensks ætt­ar­veldis, hópar sem lengi hafa haft sterka stöðu við stjórn lands­ins. Annars vegar sé átt við lög­fræð­inga og hins vegar jafn­að­ar­menn og séu báðir hóp­arnir full­trúar þétt­býlis. Full­trúar jafn­að­ar­manna séu til vinstri og hafi upp­haf­lega verið full­trúar verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar en lög­fræð­ing­arnir einkum til hægri.

„Ætt­ar­tengsl eru almenn­ust meðal Sjálf­stæð­is­manna og jafn­að­ar­manna. Þetta eru ólíkir hópar að mörgu öðru leyti. Senni­lega eru for­sendur Sjálf­stæð­is­manna og jafn­að­ar­manna við að halda þing­manns­sætum innan ætta og fjöl­skyldna bæði líkar og ólíkar. Fram­sókn­ar­menn skera sig ekki úr fyrir ætt­ar­tengsl, heldur fyrir það að þeir verða oft­ast ráð­herrar. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins verða raunar oft­ast ráð­herrar en þing­menn utan fjór­flokks­ins síst,“ skrifar hann.

Má spyrja um verðleika og leiðtogahæfni

Í sam­an­tekt kafl­ans segir Haukur að ekki beri á öðru en að meiri­hluti þing­manna, sá hluti þeirra sem hefur mest völd, fæð­ist í elít­una og megi þá spyrja um verð­leika og leið­toga­hæfni. Jafn­framt halli veru­lega á aðra hópa, einkum þá sem eru minna mennt­aðir, verr ætt­aðir, hafa veika þjóð­fé­lags­stöðu eða miðl­ungi sterka, á konur og á þá sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Enda þótt jöfn þátt­taka allra þjóð­fé­lags­hópa í stjórn­málum og þar með í stjórn­mála­el­ít­unni sé draum­sýn, og hlut­verk hins stjórn­mála­lega full­trúa sé miklu flókn­ara í nútím­anum en að verja hags­muni ein­stakra þjóð­fé­lags­hópa, stétta eða lands­hluta – og slembival á full­trúum komi ekki til greina nema við mjög sér­stakar aðstæður – þá er Alþingi illa statt hvað varðar full­trúa­hlut­verkið,“ skrifar hann. 

Þá gildi einu hvort litið sé á málið í ljósi almennra við­mið­ana eða með sam­an­burði við hin nor­rænu ríkin. Félags­leg sam­setn­ing þing­manna vísi langt til for­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár