Á heimili sínu í miðbæ Reykjavíkur skrifar Samson Habte, fréttastjóri sjónvarps- og útvarpsstöðvarinnar Erisat, fréttir af ástandinu í Eritreu. Hann þarf ekki flókinn tæknibúnað til þess; eina tölvu og nettengingu. En svo er það hugrekkið. Hann þarf heilmikið af því. Og Samson Habte er vel búinn þessu öllu. Hann er hugrakkur hugsjónamaður, kannski vegna harðrar lífsbaráttu sem hann hefur þurft að heyja. Hann er fæddur árið 1985 í Eritreu en þá var búið að vera stríð í heimalandi hans í tæpan aldarfjórðung. Sjálfstæðisbaráttu Eritreumanna lauk þegar Samson var sex ára og tveimur árum síðar fékk landið formlega sjálfstæði. Það var í maí árið 1993 og Eritreumenn litu um stundarsakir björtum augum til framtíðar. Fólk þyrptist út á götur og fagnaði nýfengnu frelsi. En sú gleði stóð stutt yfir því að nýr forseti hinnar sjálfstæðu Eritreu, Isaias Afwerki, sýndi fljótlega eftir að hann komst til valda að lýðræði myndi ekki fylgja …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir