Þessi langreyðartarfur var með alls fjóra sprengiskutla í sér, samkvæmt samtökunum Hard to Port. Á myndinni sjást þrír þeirra standa út úr dýrinu.
Þessi lang­reyð­art­arfur var með alls fjóra sprengiskutla í sér, sam­kvæmt sam­tök­unum Hard to Port. Á mynd­inni sjást þrír þeirra standa út úr dýr­inu. Mynd: Hard to Port

Fjórir sprengiskutlar notaðir til að granda einum langreyðartarfi

Hvalur 8, hval­veiði­bátur Hvals hf., land­aði í gær tveimur lang­reyðum í Hval­firði. Annað dýrið var með hvorki fleiri né færri en fjóra sprengiskutla í sér við kom­una til hafnar og hefur því lík­lega háð ansi langt dauða­stríð.

Hvalur 8, hval­veiði­bátur Hvals hf., kom að landi í Hval­firði í gær með tvær lang­reyðar. Annar hval­ur­inn, tarfur, var með fjóra sprengiskutla í sér, sem þýðir að fjögur skot hefur þurft til að deyða dýrið.

Þetta segir Arne Feu­er­hahn hjá sam­tök­unum Hard To Port, sem mynd­aði löndun hval­anna, gefa til kynna að hval­ur­inn hafi háð lang­dregið dauða­stríð, en að jafn­aði tók um 8 mín­útur fyrir hval­veiði­menn að end­ur­hlaða skut­ul­byss­una og skjóta að nýju ef fyrsta skotið geigar og dýrið deyr ekki sam­stundis, sam­kvæmt rann­sókn sem fram­kvæmd var fyrir Fiski­stofu á hval­veiði­ver­tíð­inni árið 2014.

Samkvæmt myndum sem Arne tók af löndun hvals­ins í Hval­firði í gær stóðu þrír skutlar út úr hvalnum er hann var dreg­inn á land. Sá fjórði segir Arne að hafi fyrst komið í ljós er gert var að hræ­inu í hval­stöð­inni.

Lýsir hann því í til­kynn­ingu að hval­skurð­ar­menn Hvals hf. hafi virst vera pirraðir yfir fjölda skota sem þurfti til að deyða hval­inn, áður en hval­skurð­ur­inn hófst. Er gert var að hvalnum kom í ljós að sprengjur á skutl­unum höfðu ekki sprungið í tveimur til­fellum. Voru ósprungnar sprengj­urnar færðar á brott af starfs­mönnum.

Í áður­nefndri rann­sókn sem Fiski­stofa lét gera árið 2014 kom í ljós að af 50 lang­reyðum sem fylgst var með veiðum á dóu 42 þeirra sam­stund­is. Í sumar hafa nokkur til­vik komið upp þar sem skot hval­veiði­manna hafa geigað og fleiri en einn sprengiskutul hafi þurft til að granda dýr­unum.

Ráðherra stefnir á reglugerðarbreytingu

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði í sam­tali við Kjarnann nýlega að það væri alveg skýrt í hennar huga að ef atvinnu­greinar sem byggðu á dýra­haldi eða veiðum gætu ekki tryggt mann­úð­lega aflífun dýra, ættu þær sér „enga fram­tíð í nútíma­sam­fé­lagi“.

Á myndinni sjást starfsmenn Hvals hf. vinna að því að fjarlægja fjórða skutulinn úr innyflum hvalsins í gær.
Á mynd­inni sjást starfs­menn Hvals hf. vinna að því að fjar­lægja fjórða skut­ul­inn úr inn­yflum hvals­ins í gær.

Svandís hefur lagt fram til kynn­ingar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda drög að breyt­ingum á reglu­gerð um hval­veiðar, en breyt­ing­arnar sem ráð­herra leggur til myndi hafa þau áhrif að skip­stjórum yrði skylt að til­nefna einn áhafn­ar­með­lim sem dýra­vel­ferð­ar­full­trúa. Sá ein­stak­lingur þyrfti að sækja nám­skeið hjá Mat­væla­stofnun, auk þess sem honum væri ætlað að taka upp myndefni um borð og láta eft­ir­lits­dýra­lækni stofn­un­ar­innar í té.

Hvalur hf. hefur sent inn umsögn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda um fyr­ir­hug­aðar reglu­gerð­ar­breyt­ingar ráð­herra, og seg­ist fyr­ir­tækið þar meðal ann­ars telja það „vand­séð, vægt til orða tekið, að umþrætta reglu­gerð­ar­breyt­ingar rúmist innan með­al­hófs­regl­unnar“ eins og hún hefði verið skýrð og túlkuð og kom fyr­ir­tækið því á fram­færi að það teldi ráð­herra skorta laga­stoð til þess að setja á umræddar kvaðir um dýra­eft­ir­lits­menn.

Hvalur 8 með tvær langreyðar við síðuna í Hvalfirði í gær.
Hvalur 8 með tvær lang­reyðar við síð­una í Hval­firði í gær.

Hags­muna­sam­tök útgerð­ar­fyr­ir­tækja, Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, komust einnig að þeirri nið­ur­stöðu í umsögn sinni um fyr­ir­hug­aðar reglu­gerð­ar­breyt­ingar að við­un­andi laga­stoð væri ekki til staðar, auk þess sem hægt væri að ná sömu mark­miðum og reglu­gerð­inni væri ætlað að ná með „öðrum og væg­ari aðferðum.“

Aðfarir sem séu í skýrri mótsögn við dýravelferðarlög

Í síð­ustu viku var fundað um þau atvik sem komið hafa upp í hval­veiðum sum­ars­ins hjá Mat­væla­stofnun og sagði Sig­ur­borg Daða­dóttir yfir­dýra­læknir í svari til Kjarnans í kjöl­farið að Mat­væla­stofnun væri með það til skoð­unar hvort, og þá hvern­ig, opin­berir aðilar gætu „enn fastar“ fram­fylgt ákvæðum laga um vel­ferð dýra hvað hval­veiðar varð­ar, að óbreyttri lög­gjöf.

Sam­kvæmt lögum er Mat­væla­stofnun ekki ætlað að hafa reglu­bundið eft­ir­lit með veiðum villtra dýra, en stofn­un­inni er þó almennt ætlað að fram­fylgja lögum um vel­ferð dýra, þar á meðal því sem fram kemur í 27. grein lag­anna.

Þar segir meðal ann­ars að ávallt skuli „staðið að veiðum þannig að það valdi dýr­unum sem minnstum sárs­auka og aflífun þeirra taki sem skemmstan tíma“ og að veiði­mönnum sé skylt „að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aflífa þau dýr sem þeir hafa valdið áverk­um.“ Þá segir einnig í laga­grein­inni að við veiðar sé „óheim­ilt að beita aðferðum sem valda dýri óþarfa lim­lest­ingum eða kvöl­u­m“.

Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum Hard to Port er haft eftir Arne Feu­er­hahn að veið­arnar á hval­veiði­skip­inu Hval 8, sem end­uðu með því að skutla þurfti sama dýrið fjórum sinnum áður en það drapst, sé í skýrri and­stöðu við þessar laga­greinar.

„Þessir nýju og óhuggu­legu atburðir sýna hve mik­il­vægt það er að fylgj­ast með þessum veiðum á afi úti, þar sem þær eiga sér stað. Ef að Hvalur hf. getur ekki upp­fyllt grunn­við­mið dýra­vel­ferðar við veið­arnar, sem þeir aug­ljós­lega geta ekki, ættu þeir ekki að vera með hval­veiði­leyfi,“ segir Arne Feu­er­hahn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvalveiði

Mest lesið undanfarið ár