Orkupakkinn skekur stjórnmálin

Nokkuð óvænt varð þriðji orku­pakki Evr­ópu­sam­bands­ins að miklum póli­tískum bastarði á Íslandi. Titr­ing­ur­inn varð ljós í Valhöll þar sem kom saman hópur Sjálf­stæð­is­manna, aðal­lega eldri karla, og ályktaði á þann veg að það væri óskyn­sam­legt að taka hann upp

„Við hina ungu for­ystu­sveit Sjálf­stæðis­flokks­ins í dag lang­ar mig að segja: Gætið að ykk­ur. Sá þráður í sál­ar­lífi þessa flokks sem snýr að full­veldi og sjálf­stæði er mjög sterk­ur. Flokk­ur­inn virð­ist hafa misst var­an­lega um þriðj­ung af sínu fylgi. Hann má ekki við meiru. Sýnið þeirri sögu sem hér hef­ur verið rak­in virð­ingu.“
Þannig lauk Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og áhrifa­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum í ára­tugi, erindi sem hann flutti í Valhöll 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Á fund­inum var hinn svo­nefndi þriðji orku­pakki Evr­ópu­sam­bands­ins til umfjöll­unar, og full­veldi Íslands var heldur ekki langt undan, í bæði erindum og umræðum á fund­inum. Það voru hverfa­fé­lög Sjálf­stæðis­flokks­ins í Smá­í­búða-, Bú­staða- og Foss­vogs­hverfi og Hlíða- og Holta­hverfi í Reykja­vík sem stóðu fyrir fund­inum.

Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, for­sæt­is­ráð­herra, borg­ar­stjóri, seðla­banka­stjóri og nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins - svo eitt­hvað sé nefnt - sat á fremsta bekk og hlust­aði. Greina mátti mik­inn sam­hljóm með orðum Styrmis og skrifum um orku­pakk­ann í rit­stjórn­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins. Það sem helst ein­kennir þau eru efa­semdir um EES-samn­ing­inn og hvernig hags­munir Íslands eru best varðir.

Á þessum fundi í Valhöll - sem setti af stað mik­inn póli­tískan skjálfta í íslenskum stjórn­málum - var rætt um málin út frá þeim sjón­ar­hóli að orku­pakk­inn væri í raun fram­sal á full­veldi til Brussel. Kom Styrmir ekki síst inn á þessi mál í sinni ræðu, og sagði að EES samn­ing­ur­inn væri búinn að þró­ast þannig - með Evr­ópu­sam­band­inu - að nú þyrfti að spyrna við fótum.

„Við stönd­um á ákveðnum tíma­mót­um í sam­skipt­um okk­ar við Evr­ópu­sam­bandið. Frá því að EES-samn­ing­ur­inn var gerður fyr­ir ald­ar­fjórð­ungi hef­ur Evr­ópu­sam­bandið þró­ast á þann veg að það koma upp stöðug fleiri álita­mál um hversu langt við get­um gengið í þessu sam­starfi án þess að við af­söl­um okk­ur sjálf­stæði okk­ar í smá­pört­um hér og þar til Brussel,“ sagði Styrmir og bætti um betur: „Verði orku­pakk­inn sam­þykkt­ur hef­ur Evr­ópu­sam­band­inu verið opnuð leið til þess að ná síðar yf­ir­ráðum yfir einni af þrem­ur helstu auð­lind­um okk­ar Íslend­inga.“

Í salnum - sem var fyrst og fremst skip­aður eldri körlum í Sjálf­stæð­is­flokknum - var sam­hljómur meðal áheyr­enda og flestir á einu máli um að Styrmir væri að lýsa mál­unum með réttum hætti. Þetta var eins og góð kóræf­ing og allir sungu í takt, sagði einn fund­ar­gesta í sam­tali við Kjarnann.

Kynslóðaskipti

Óháð tækni­legum- og efn­is­legum rök­ræðum um inni­hald orku­pakk­ans, þá var fund­ur­inn til marks um deildar mein­ingar ólíkra kyn­slóða í Sjálf­stæð­is­flokknum. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra iðn­aðar-, ferða­mála- og nýsköp­unar, hefur svarað þessum sjón­ar­miðum sem komu fram á fund­inum, um að orku­pakk­inn feli í sér frek­legt fram­sal á full­veldi þjóð­ar­innar, sem rang­indum. Hún hefur meðal ann­ars vitnað til lög­fræði­á­lita sem unnin voru af hennar beiðni. Í vik­unni not­aði hún Twitter-aðgang­inn til að bera fyrr­nefnd sjón­ar­mið til baka, og sagði skýrt og skil­merki­lega að Ísland myndi stjórna sínum orku­auð­lindum alveg óháð þriðja orku­pakk­anum.

Þar á meðal er ítar­legt lög­fræði­á­lit Birgis Tjörva Pét­urs­sonar hrl. Þar sem fjallað er um ýmsar hliðar þriðja orku­pakk­ans og hvað það þýði að taka hann upp í íslenskan rétt. Nið­ur­staða hans er þver­öfug við það sem Styrmir hélt fram á fyrr­nefndum fundi.

„At­hugun á inni­haldi þriðja orku­pakk­ans styður ekki sjón­ar­mið um að inn­leið­ing hans fæli í sér slík frá­vik frá þverpóli­tískri stefnu­mörkun og rétt­ar­þróun á Íslandi að það kalli sér­stak­lega á end­ur­skoðun EES-­samn­ings­ins. Með inn­leið­ingu hans væri ekki brotið blað í EES-­sam­starf­in­u,“ segir meðal ann­ars í nið­ur­stöðukafla álitis Birgis Tjörva.

Segja má að þessi mein­ing­ar­munur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins krist­all­ist í þeim kyn­slóð­ar­skiptum sem eru að verða í flokknum og hafa orðið á síð­ustu árum. Á fund­inum í Valhöll áttu eldri karlar í flokknum sviðið, sem á árum áður réðu miklu innan flokks­ins. Eins og staða mála er nú er ný kyn­slóð for­ystu­fólks - með Þórdísi Kolbrúnu þar á meðal - með aðra sýn á hlut­ina. Frjáls­lynd­ari við­horf, gagn­vart EES samn­ingnum og alþjóða­sam­vinnu yfir höfuð, eru þar áber­andi.

Miðflokkurinn og Framsókn að ná saman?

Í umræð­unni um orku­pakk­ann - sem hefur verið áber­andi allt frá fyrr­nefndum fundi í Valhöll - þá má segja að Mið­flokk­ur­inn hafi náð að gera sig veru­lega gild­andi. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefur varað við þriðja orku­pakk­anum og sagði í við­tali við RÚV ótt­ast að með inn­leið­ingu hans, þá myndi ákvörðun um sæstreng og sölu raf­orku um hann fara úr höndum Íslend­inga. Svipuð sjón­ar­mið hafa heyrst innan úr gamla flokki Sig­mundar Davíðs, Fram­sókn­ar­flokki. Þar hefur mið­stjórn flokks­ins raunar ályktað á þann veg að það eigi að hafna orku­pakk­anum, og það má segja um ein­stök félög innan flokks­ins, eins og til dæmis Fram­sókn­ar­menn í Reykja­vík hafa gert.

Þrátt fyrir afdrátt­ar­lausa afstöðu Þórdísar Kol­brúnar í mál­inu, þá er málið nú þegar orðið að vand­ræða­máli fyrir rík­is­stjórn­ina. Hún hefur nú þegar frestað afgreiðslu máls­ins fram á vor, meðal ann­ars til að taka til­lit til gagn­rýni sem komið hefur fram.

Eftir heiftug átök virð­ist vera kom­inn fram mögu­leiki fyrir Mið­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn til að ná saman, í það minnsta um þetta ein­staka mál.

Þessi fræ efa­semda um EES-samn­ing­inn sem slíkan birt­ast nokkuð ber­sýni­lega í umræðum um 3. orku­pakk­ann. Þær eru alveg skýrar í Sjálf­stæð­is­flokknum, Fram­sókn­ar­flokknum og Mið­flokknum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist klof­inn í mál­inu, jafn­vel þó ráð­herra mála­flokks­ins, sem jafn­framt er vara­for­maður flokks­ins, tali með skýrum hætti gegn þeim efa­semda­röddum sem komið hafa fram. Ekki virð­ist það duga til að eyða efa­semd­unum.

Skarpar línur

Allt annað er uppi á ten­ingnum hjá frjáls­lynd­ari flokk­unum á þingi, Sam­fylk­ing­unni og Viðreisn. Viðhorf þeirra flokka til Evr­ópu­sam­bands­ins er þekkt; báðir flokkar hafa verið hlynntir því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið og taka upp evru sem mynt, en þeir eru líka báðir hlynntir frekara alþjóða­sam­starfi og áfram­hald­andi við­skipta­sam­bands við Evrópu á grund­velli EES-samn­ings­ins.

Vinstri græn eru með meiri efa­semdir, en skýr afstaða flokks­ins til 3. orku­pakk­ans liggur ekki fyrir. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður flokks­ins, lét þó hafa eftir sér að mikið af rang­færslum hafi fengið að stýra umræð­unni um orku­pakk­ann, og að það kunni aldrei góðri lukku að stýra.

Innan Vinstri grænna er sú afstaða nokkuð almenn - eins og stefna flokks­ins hefur lengi verið - að best sé fyrir Ísland að standa fyrir utan Evr­ópu­sam­bandið. Innan flokks­ins hafa einnig lengi verið uppi efa­semdir um EES-samn­ing­inn og nauð­syn­legt sé að end­ur­skoða hann. Má segja að afstaða flokks­ins til þessa mál sé að mörgu leyti óskýr, sökum þessa.

Það mæðir mikið á Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í umræðum um þriðja orkupakkann.
Það mæðir mikið á Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur í umræðum um þriðja orku­pakk­ann.

Þó sumir noti stór orð um þriðja orku­pakk­ann - ýmist til að gera lítið úr mál­inu eða að það sé háal­var­legt og varði full­veldi þjóð­ar­innar - þá sýnir það öðru fremur að nokkuð skýrar línur hafa verið dregnar í sand­inn í mál­inu. Annars eru það þeir sem hafa efa­semdir um EES-samn­ing­inn, og það sem tekið er upp í íslensk lög á grund­velli hans, og síðan þeir sem telja samn­ing­inn vera afar mik­il­vægan efna­hag lands­ins. Og sé þannig í raun frekar til þess fall­inn að styrkja full­veldi og sjálf­stæði lands­ins frekar en hitt.
Líklegt verður að telj­ast að umræðan um orku­pakk­ann eigi eftir að vinda enn meira upp á sig eftir því sem líður á þennan þing­vetur. Und­ir­liggj­andi er síðan stefnu­mörkun í orku­málum almennt og þá hvort Íslandi eigi að tengj­ast umheim­inum með sæstreng eða ekki. Deildar mein­ingar eru um það á vett­vangi stjórn­mál­anna, og má segja að lín­urnar sker­ist með svip­uðum hætti og í mál­unum sem tengj­ast þriðja orku­pakk­anum. Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, hefur látið hafa eftir sér að sala raf­orku um sæstreng til Bret­lands gæti verið stærsta við­skipta­tæki­færi sem komið hafi upp á Íslandi nokkru sinni, en það sé stjórn­mála­manna að ákveða hvað sé skyn­sam­leg­ast að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár