Kjararáð ákvarðar laun framkvæmdastjóra Íslandssjóða

Kjararáð úrskurð­aði um laun fram­kvæmda­stjóra Íslands­sjóða í síð­ustu viku. Hann fær um 1,5 milljón á mán­uði eftir úrskurð­inn. Breyt­ingar verða á lögum um kjara­ráð í sumar.

http://www.kjararad.is/media/urskurdir/2017.4.015-framkvaemdastjori-_islandssjoda-hf..pdfKjararáð hefur úrskurðað um laun fram­kvæmda­stjóra Íslands­sjóða í fyrsta sinn, en Íslands­sjóðir heyra undir Íslands­banka sem varð rík­is­eign um mitt síð­asta ár. Samkvæmt úrskurði kjara­ráðs á fram­kvæmda­stjór­inn, Kjartan Smári Hösk­ulds­son, að vera með 1.058.376 krónur í mán­að­ar­laun, auk 478 þús­und króna í fasta yfir­vinnu.

Þetta er gert til sam­ræmis launa­kjör ann­arra for­stöðu­manna fjár­mála­stofn­ana sem heyra undir kjara­ráð. Fyrr á þessu ári úrskurð­aði ráðið um laun Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, móð­ur­fé­lags Íslands­sjóða.

Stjórn Íslands­sjóða kom á fund kjara­ráðs til að ræða málið og leit­aði einnig úrskurðar frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu um það hvort að fram­kvæmda­stjóri Íslands­sjóða ætti að heyra undir kjara­ráð. Ráðu­neytið komst að þeirri nið­ur­stöðu að það sé kjara­ráðs að ákveða laun hans og starfs­kjör.

Þetta verður þó vænt­an­lega í eina skiptið sem kjara­ráð úrskurðar um laun hans, þar sem breyt­ingar á lögum um kjara­ráð taka gildi þann 1. júlí næst­kom­andi. Breyt­ing­arnar voru sam­þykktar á Alþingi í lok síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár