Mynd: Bára Huld Beck

Með landið að láni

Páll Skúlason var braut­ryðj­andi þegar kemur að umræðu um umhverf­is­mál en hann taldi meðal ann­ars mikil mis­tök vera falin í því við­horfi að líta á nátt­úr­una sem eign manna og að leyfi­legt væri að gera hvað sem er undir því yfir­skini.

Nátt­úru­um­ræða á Íslandi hefur verið fyr­ir­ferð­ar­mikil síð­ustu ára­tugi. Hún hefur ein­kennst af mis­mun­andi sjón­ar­miðum og hafa hags­muna­á­rekstrar verið áber­andi. Umræðan náði hámarki í aðdrag­anda bygg­ingar Kára­hnjúka­virkj­unar árið 2002 og þar til virkj­unin var gang­sett árið 2007. Þjóðin var að vissu leyti klofin í tvennt, mörg álita­mál köll­uð­ust á og oft og tíðum vant­aði upp á vand­aða umfjöllun um mál­efnið.

Ýmsar raddir heyrð­ust um að nýt­ing nátt­úr­unnar í þágu fólks­ins vægi meira en ásýnd lands­lags­ins og áhrif rösk­unar á líf­ríkið á Aust­ur­landi. Margar spurn­ingar sputtu upp um gildi nátt­úru, gagn­vart mönnum en einnig óháð þeim. Umræðan ein­kennd­ist oft af skiln­ings­leysi gagn­vart and­stæðum skoð­unum. Það sama má sjá í umræðu um fyr­ir­hug­aðar virkj­ana­fram­kvæmdir í dag.

Þegar þannig er komið fyrir umræð­unni er nauð­syn­legt að fjalla um nátt­úrusið­fræði, þar sem gildi nátt­úru er skegg­rætt og staða manns­ins í nátt­úru einnig. Þetta á ekki síður við núna; við erum stöðugt í þessum dansi nýt­ingar og varð­veislu þegar íslensk nátt­úra er ann­ars vegar.

Að upplifa sig sem hluta af heild

Páll Skúlason heit­inn, pró­fessor í heim­speki og fyrr­ver­andi rektor, var frum­kvöð­ull í nátt­úru­um­ræðu á Íslandi og fram­lag hans til nátt­úru­hugs­unar og sið­fræði verður ekki dregið í efa. Kjarninn fer hér yfir Nátt­úr­upæl­ingar hans sem komu út árið 2014 en bókin er sam­an­safn hug­leið­inga, greina og erinda um heim­speki nátt­úr­unnar.

Árið 1998 gaf hann út bók­ina Umhverf­ing sem var vel tekið og segir í grein í Morg­un­blað­inu frá árinu 1999: „Lands­virkjun aug­lýsti á dög­unum eftir rökum í stað til­finn­inga. Umhverf­ing Páls Skúla­sonar heim­spek­ings er næstum því eins og svarið við þeirri aug­lýs­ingu, enda hefur Páll fyrr en hér véfengt skipt­ingu manns­and­ans í skyn­sam­lega rök­vísi ann­ars­vegar og óreiðu­kenndar, óskyn­sam­legar til­finn­ingar hins­vegar. Hann hefur haldið á lofti gildi rök­studdra til­finn­inga.“

Páll gaf út Nátt­úr­upæl­ingar árið 2014 sem er sam­an­safn hug­leið­inga, greina og erinda um heim­speki nátt­úr­unnar. Að vissu leyti má taka undir rit­dóm­inn hér að framan í sam­bandi við Nátt­úr­upæl­ingar Páls. Um leið og hann færir rök fyrir skoð­unum sínum með grein­ar­góðum hætti, þá er umhyggja og til­finn­ing fyrir líf­inu aldrei langt undan. Hann reynir eftir fremsta megni að orða það sem ómögu­legt er að setja í orð; að lýsa til­finn­ingum sem mann­eskja finnur fyrir þegar hún upp­lifir sjálfa sig sem hluta af heild, það sem lífið er.

Hvort okkur auðn­ast að lifa áfram á þess­ari jörð í sam­býli við aðrar líf­verur er öllu öðru fremur komið undir því að við sigrumst á þeirri heimsku­legu til­hneig­ingu að skoða lífið og nátt­úr­una ein­göngu út frá sjón­ar­horni okkar sjálfra.

Frumforsenda siðferðis felst í hversdagslegri umhyggjusemi

Elsta erindið er frá árinu 1989 og nefn­ist Siðfræði nátt­úr­unnar. Þar fjallar hann um gæði lífs­ins, afstöðu mann­fólks­ins til nátt­úr­unnar og skyldur okkar gagn­vart dýr­unum. Hann tekur fram strax í byrjun hversu mik­il­vægt það sé að ræða þessi mál. Hann gagn­rýnir harð­lega þá mann­hverfu hugsun að „við höfum rétt til að ráðskast með aðrar líf­verur eftir því sem okkur sýn­ist og við teljum sam­ræm­ast best okkar eigin hags­munum.“ Það sé brýnt verk­efni sið­fræð­innar að sýna fram á mik­il­vægi þess að hafa fleira í huga en þessi mann­hverfu við­horf.

Páli er umhugað að finna út hvað sé sið­ferð­is­lega rétt að gera og hvað ekki, þrátt fyrir að hann setji þá varnagla að þessir sið­ferð­is­dómar séu ekki end­an­legir og geti aldrei orðið það. „Hvort okkur auðn­ast að lifa áfram á þess­ari jörð í sam­býli við aðrar líf­verur er öllu öðru fremur komið undir því að við sigrumst á þeirri heimsku­legu til­hneig­ingu að skoða lífið og nátt­úr­una ein­göngu út frá sjón­ar­horni okkar sjálfra,“ skrifar hann. Páll endar grein­ina á þeirri stað­hæf­ingu að frum­for­senda alls sið­ferðis felist í hvers­dags­legri umhyggju­semi og til­lits­semi gagn­vart öllu sem lifir. Hann lýsir af miklu inn­sæi sýn sinni á lífið og með mik­illi nær­gætni. Þessi orð gefa tón­inn fyrir nátt­úrusið­fræði Páls Skúla­sonar sem liggur eins og rauður þráður í gegnum alla bók­ina.

Hug­leið­ingar við Öskju er stutt bók eftir Pál sem kom út árið 2005 og er fyrsta hug­leið­ingin í Nátt­úr­upæl­ingum. Hún er hval­reki fyrir íslenska heim­speki og hugsun og er löngu orðin skyldu­lesn­ing fyrir alla þá sem áhuga hafa á nátt­úru­um­ræðu. Í þessu stutta riti lýsir hann á ein­lægan hátt upp­lifun og reynslu sinni í sinni fyrstu ferð á eld­stöð­ina Öskju. Á tímum þar sem nýt­ing nátt­úru er hjá sumum alltaf talin rétt­læt­an­leg og ofurá­hersla er á skyn­semi og fram­fara­hugsun, þá er þessi hug­leið­ing kær­komið inn­legg.

Þessi lýs­ing Páls ber með sér djúpa virð­ingu fyrir líf­inu og nátt­úr­unni sem býr í öllu. Í stað þess að lýsa dvöl­inni í Öskju þá byrjar hann á því að lýsa til­finn­ing­unni og spurn­ing­unum sem vökn­uðu. Hann veltir því fyrir sér hvernig heildir verði til og hvers konar heildir séu til. Hvernig mynd­ast tengsl og hvers konar tengsl eru til?

Að vera jarðarbúi er að finna líf sitt bundið jörðinni

Páll veltir fyrir sér nokkrum mögu­leikum og við­ur­kennir að ekki sé auð­velt að fá end­an­leg svör og að jafn­vel séu þau ekki til. Kjarni reynsl­unnar sé því lík­leg­ast eitt­hvað sem hægt væri að kalla and­lega reynslu og það sem skáld og lista­menn basla við að lýsa í sínum störfum. „Að koma til Öskju hefur því – í mínum huga – ein­falda og skýra þýð­ingu: Að upp­götva jörð­ina og sjálfan sig sem jarð­ar­búa. Að vera jarð­ar­búi er að finna líf sitt bundið jörð­inni, ef ekki bein­línis sprottið af henni, finna að hún er for­senda lífs­ins,“ skrifar hann. Páll segir að með því að öðl­ast slíka reynslu sé mað­ur­inn að stað­setja sig í veru­leik­anum og þá sjái hann jafn­vel um hvað lífið snú­ist.

Páll fylgir eftir Hug­leið­ingum við Öskju með erind­unum Náttúran í and­legum skiln­ingi, Andi og óbyggðir og Bréf til Gerdien. Viðtal með yfir­skrift­inni „Við þurfum að kenna börn­unum okkar að skynja og hugsa“, sem Þröstur Helgason tók við hann árið 2005, rekur svo lest­ina. Þar má fá nokk­urs konar útskýr­ingar á fyrri skrifum og reynsl­unni við Öskju. Fyrir þá sem halda upp á Hug­leið­ingar við Öskju er þetta kær­komin við­bót við það rit.

Framtíð lífs á jörðinni undir því komið að mennirnir tileinki sér heilsteypta hugsun

Í síð­ari hluta Nátt­úr­upæl­inga er skipt um áherslur, þrátt fyrir að svipuð heild­ar­hugsun skjóti upp koll­inum í næst­síð­asta erind­inu, Að ganga og að hugsa, þar sem Páll fjallar um þá upp­lifun sem ganga er. Í fyrstu hug­leið­ingu seinni hluta bók­ar­innar, Hvað er sið­fræði nátt­úr­unnar?, byrjar hann að skil­greina sið­fræði nátt­úr­unnar með ein­földum og skýrum hætti.

Páll telur að ástæðan fyrir því að gott sé að skil­greina þessa teg­und sið­fræði sér­stak­lega sé sú að van­inn sé að tengja sið­fræði við reglur sem fólk setur sér í sam­skiptum við aðra og lifn­að­ar­hætti. Röng og rétt breytni er iðu­lega tengd menn­ing­ar­sam­fé­lögum en síður við nátt­úr­una sjálfa. Þannig hefur umhverfi manns­ins og nátt­úra staðið fyrir utan þetta sið­ferði mann­anna. Þetta er þó ekki svona ein­falt og útskýrir Páll skor­in­ort hvaða þýð­ingu hann telur nátt­úr­una hafa fyrir menn­ina.

Náttúran er í senn móðir alls lífs á jörð­inni, upp­spretta þeirra gæða sem menn þurfa til að lifa og svo býr hún í okkur sjálfum. „Um þetta fjallar sið­fræði nátt­úr­unnar. Hún leit­ast við að skýra boð og bönn, dygðir og lesti, verð­mæti og gildi sem eru í húfi í hegðun manna gagn­vart nátt­úr­unni og fyr­ir­bærum hennar,“ skrifar hann.

Páll endar þessa litlu hug­leið­ingu á að benda á mik­il­vægi sið­fræði nátt­úr­unnar, að fram­tíð lífs á jörð­inni sé undir því komið að menn­irnir til­einki sér heil­steypta og sið­ferð­is­lega hugsun. Í þessum orðum felst mikil ábyrgð fyrir mann­kynið og skyldur mann­anna liggja ljósar fyrir.

Merking hinnar dauðu nátt­úru og gildi felst einmitt í þessu: að vera grunnur og umgjörð hinnar lif­andi nátt­úru – bera uppi lífið, umvefja það – og taka svo við leifum þess þegar það lygnir aug­unum í hinsta sinn.

Er hægt að gera illt gagnvart „dauðri“ náttúru?

Páll veltir fyrir sér gildi nátt­úru á nokkrum stöðum í bók­inni en það er eitt af höf­uð­við­fangs­efnum nátt­úrusið­fræð­innar. Hann veltir fyrir sér í erindi frá árinu 1995, Að búa á landi, hvort land eða staðir, fjöll og melar, holt og hólar hafi sið­ferð­is­gildi, þ.e. hvort hægt sé að gera illt gagn­vart „dauðri“ nátt­úru og hugs­an­lega gera henni rangt til.

„Merking hinnar dauðu nátt­úru og gildi felst einmitt í þessu: að vera grunnur og umgjörð hinnar lif­andi nátt­úru – bera uppi lífið, umvefja það – og taka svo við leifum þess þegar það lygnir aug­unum í hinsta sinn,“ skrifar hann. Mönnum beri því sið­ferði­leg skylda til dauðrar nátt­úru af þessum sökum, þeir séu af jörðu komnir og háðir henni.

Þess vegna finnst Páli mikil mis­tök vera falin í því við­horfi að líta á nátt­úr­una sem eign manna og að leyfi­legt sé að gera hvað sem er undir því yfir­skini. Við eigum ekki landið í þeim skiln­ingi og getum hrein­lega ekki gert það sem okkur lystir. Hann lítur svo á að við séum með landið að láni frá for­feðrum okkar og að okkur beri að skila því í góðu ásig­komu­lagi fyrir kom­andi kyn­slóðir. Heiti erind­is­ins er lýsandi fyrir það við­horf að menn­irnir eigi ekki landið, heldur séu þeir íbúar þess. „Sið­ferð­is­lögin gildi ekki bara í sam­skiptum milli manna eða í tengslum þeirra við dýr eða aðrar líf­verur, þau gildi ekki síður í sam­skiptum þeirra við landið og jörð­ina alla, foss­ana og fjöllin, mel­ana og móana,“ skrifar hann.

Skrif Páls skipta miklu máli fyrir alla þá sem nema þessi fræði og þá sem leggja áherslu á þessi mál­efni. Og flestir sem fjallað hafa um sið­fræði nátt­úr­unnar eru sam­mála um að við þurfum að end­ur­skoða margar hug­myndir og kenn­ingar sem í dag ráða mestu um afstöðu okkar til umhverfis og nátt­úru. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár