„Ég er tilbúin að berjast með öllu sem til þarf“

„Ég er þriðja kyn­slóðin sem stendur í bar­áttu gegn virkj­unum,“ segir Pálína Axels­dóttir Njarðvík sem varð flök­urt, fann kvíða og varð and­vaka eftir að frétt­ist að Lands­virkjun hefði sótt um virkj­ana­leyfi fyrir Hvamms­virkjun.

Hún er sveita­stelpa. Þó að hún hafi verið með annan fót­inn í borg­inni síð­ustu árin vegna náms líður henni best í kringum dýrin og við sveita­störfin á bænum Eystra-Geld­inga­holti í Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi. Þar er „heima“ í hennar huga og hefur verið allt frá því hún var barn þótt hún hafi fyrstu árin alist upp á prest­setr­inu Tröð í sömu sveit því faðir hennar, Axel Árnason Njarðvík, var sókn­ar­prestur. Tengslin við Geld­inga­holtið voru alltaf til staðar. Þar ólst móðir hennar, Sig­þrúður Jóns­dóttir, upp og frænd­fólk hennar tók við því búi.

Er hún var ung­lingur byggðu for­eldrar hennar hús á jörð­inni og búa þar enn. „Þegar ég var sextán ára flutti ég til Reykja­víkur til að fara í skóla og hef síðan þá lifað tvö­földu lífi í borg og sveit,“ segir hún og hlær.

Pálína lærði sál­fræði í háskóla og lauk masters­prófi í félags­sál­fræði vorið 2019. Í loka­verk­efn­inu rann­sak­aði hún hugs­ana­skekkjur, álykt­ana­villur og notkun fortalna í þjóð­fé­lags­um­ræðu. Við­fangið var fjöl­miðlaum­fjöll­unin um Norð­linga­öldu­veitu sem fyr­ir­huguð var í Þjórs­ár­verum – skammt frá hennar æsku­slóðum.

Hún hefur aflað sér vin­sælda á Instagram þar sem hún heldur úti síðu undir nafn­inu FarmlifeIceland og segir frá sveita­líf­inu sem er henni svo kært. Fylgj­end­urnir nálg­ast 77 þús­und. Margir þeirra eru útlend­ingar sem þyrstir í að fræð­ast um Ísland, menn­ingu þjóð­ar­innar og nátt­úru lands­ins.

„Mér verður flök­urt við að lesa þessa frétt, kvíði og áhyggjur hell­ast yfir mig,“ skrif­aði Pálína óvænt á mið­il­inn sinn í vik­unni. Hún er vön að vera jákvæð. Full bjart­sýni og birta fal­legar myndir af kind­unum á bænum sem hún virð­ist ná ein­stökum tengslum við. Þær kúra hjá henni – sækja í hana.

En nú var tónn­inn annar. Fréttin sem hún hafði lesið fjall­aði um orð Harðar Arn­ar­sonar, for­stjóra Lands­virkj­unar, sem upp­lýsti í grein á Vísi að sótt hefði verið um virkj­ana­leyfi fyrir Hvamms­virkjun sem fyr­ir­tækið áformar að reisa í neðri hluta Þjórsár. Í sveit­inni hennar Pálínu. Skammt frá bænum hennar.

Þetta hreyfði veru­lega við henni. Og fyrir því eru margar ástæður sem tengj­ast atburðum sem spanna hálfa öld. Atburða­rás sem hófst löngu áður en hún kom í heim­inn árið 1991.

Mannskemmandi barátta

„Ég er þriðja kyn­slóðin sem stend í bar­áttu gegn virkj­unum,“ segir Pálína, spurð um við­brögð sín við grein Harðar. „Og það er bók­staf­lega mann­skemm­andi að standa í henni.“

Afi Pálínu, Jón Ólafsson bóndi í Eystra-Geld­inga­holti, var einn þeirra sem hóf bar­átt­una gegn Norð­inga­öldu­veitu í Þjórs­ár­verum um árið 1970. Þá voru þær virkj­ana­hug­myndir að koma fyrst fram á sjón­ar­sviðið. „Mamma tók svo við af honum og bar lengi og ásamt öðrum kyndil­inn í Þjórs­ár­vera­bar­átt­unni. Hún fékk nátt­úru­vernd­ar­verð­laun Sigríðar í Bratt­holti fyrir þá ötulu bar­áttu sína. Og með aldr­inum hef ég farið að láta meira að mér kveða í bar­átt­unni og nú gegn Hvamms­virkjun.

Þetta virkj­ana­stapp segir hún er sem sagt eitt af því sem erf­ist í Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi því þetta tekur aldrei enda.

Ég hef oft sagt að ég voni svo inni­lega að börnin mín þurfi ekki líka að standa í þessu og þá á þeirri for­sendu að það verði ekki lengur þörf á bar­áttu vegna þess að við verðum búin að vinna hana – ekki tapa henni.“

Við bakka Þjórsár er gott land­bún­að­ar­svæði. Frá Eystra-Geld­inga­holti er fal­leg fjalla­sýn. Frá bænum sést aðeins til árinnar og „nið­ur­inn frá Þjórsá er partur af þessu umhverfi sem ég er alin upp í,“ segir Pálína. „Við höfum í gegnum kyn­slóð­irnar notað hljóðin frá ánni til að spá fyrir um veður. Það er hluti af okkar menn­ing­ar­arf­leifð. Hljóðin frá Minna-Núps­flúðum spá fyrir um það sem framundan er í veðri, hvort von sé á þurrki eða vætu­tíð. Fólk á öðrum bæjum hér í kring gerir það sama. En hljóðin myndu þagna með virkjun.“

Virkjanahugmyndir sem breyta um nafn

Pálína var enn í grunn­skóla er hún heyrði fyrst af virkj­un­ar­á­formunum í neðri hluta Þjórsár. Þá voru þau kölluð Núps­virkjun og sam­an­stóðu af þremur virkj­ana­hug­myndum, hverri fyrir neðan aðra. „Virkj­ana­kostir eiga það til að skipta um nafn þó að hug­myndin sé nokkurn veg­inn sú sama,“ segir hún. „Til dæmis hét inn­takslónið fyrir Núps­virkjun Hagalón, rétt eins og það er kallað í Hvamms­virkj­un­ar­á­formunum. Þetta er sama lónið – og það er þetta lón og rennsl­is­skerð­ingin í árfar­veg­inum sem er stærsta málið.“

Pálína (t.h.) ásamt unnustu sinni, Maríu Kristínu Árnadóttur, fyrir neðan fyrirhugað stíflusvæði Hvammsvirkjunar.
Pálína (t.h.) ásamt unn­ustu sinni, Maríu Kristínu Árna­dóttur, fyrir neðan fyr­ir­hugað stíflu­svæði Hvamms­virkj­unar.

Það eru margar ástæður fyrir því að Pálína er and­víg virkj­un­inni.

„Í fyrsta lagi þá vil ég ekki láta sökkva sveit­inni minni fyrir fram­leiðslu á raf­magni sem við í þokka­bót þurfum ekki,“ byrjar hún á að útskýra. „Svo ein­falt er þetta í mínum huga. En það hlustar eng­inn á slík rök. Þetta eru kölluð til­finn­ingarök – að ég vilji ekki eitt­hvað ein­fald­lega af því að mér finn­ist það ekki góð hug­mynd. Af því að mér þyki vænt um landið mitt. Að ég vilji geta farið um Þjórs­ár­dal­inn án þess að fara fram hjá lóni og sjá þær skemmdir á nátt­úru og lands­lagi sem það veldur.

En já, þetta eru kölluð til­finn­ingarök og á þau er ekki hlustað. Jafnvel þótt að við tökum allar stærstu ákvarð­anir lífs okkar út frá til­finn­ingum. Hverjum við gift­umst – það er ákvörðun sem er byggð á til­finn­ingum – ekki hag­kvæmni. En í þessu sam­bandi, þegar fara á í óaft­ur­kræfar fram­kvæmdir, þá bíta þessi rök ekki.

En það er allt í lagi. Því það er meira en nóg af öðrum rökum gegn Hvamms­virkjun til staðar.“

Virkj­unin myndi hafa í för með sér óaft­ur­kræfa eyði­legg­ingu á grónu landi á þeim stað sem lónið kæmi. „Gróið land er auð­lind. Jarð­vegseyð­ing er vanda­mál. Talið er að gróið land hafi minnkað um helm­ing frá land­námi. En svo á að fara að skemma gróið land og dýr­mætan gróður, dýra­líf og búsvæði, á sama tíma og eitt af okkar helstu verk­efnum er að end­ur­heimta skemmd vist­kerfi.

Landið í far­veg­inum fyrir neðan stíflu mun stundum vera á kafi í vatni og stundum ekki, allt eftir því hvernig hleypt verður úr lón­inu. Því fylgir aug­ljós hætta á foki og frek­ari eyð­ingu úr jarð­veg­inum.

Ég fór eitt sinn á fund með Lands­virkjun þar sem kom fram að þessu myndu þeir mæta með upp­græðslu. En það er alveg ljóst að ekki er hægt að græða upp land sem er ýmist á þurru eða á kafi í vatni.“

Pálína ásamt foreldrum sínum, Axel og Sigþrúði, upp á Arnarfelli hinu Mikla. Þjórsárver í baksýn.
Pálína ásamt for­eldrum sínum, Axel og Sigþrúði, upp á Arn­ar­felli hinu Mikla. Þjórs­ár­ver í bak­sýn.

Fyrir neðan stíflu, þar sem aðeins brot (um 3 pró­sent) af með­al­rennsli árinnar myndi renna hluta árs, er hin sér­stæða og því frið­aða Viðey. „Í dag verndar Þjórsá hana fyrir ágangi manna og dýra. Hún myndi standa á þurru og allar leiðir að henni færar. Þá hefur það verið nefnt sem mót­væg­is­að­gerð að girða hana af sem er ekki lausn sem dugar auk þess sem girð­ing í þurrum far­vegi Þjórár lítur ekki vel út.

Svo er Þjórsá í dag varn­ar­girð­ing vegna sauð­fjár­sjúk­dóma. Kindur mega ekki fara á milli Árnes­sýslu og Rang­ár­valla­sýslu. Ég hef séð girð­ingar Lands­virkj­unar við Sult­ar­tanga­virkjun. Það er þekkt að kindur fara í gegnum þær. Þannig að ég gef lítið fyrir þessar fyr­ir­hug­uðu mót­væg­is­að­gerðir, að ætla að girða Viðey af.

En eft­ir­læt­is­mót­væg­is­að­gerðin mín sem Lands­virkjun hefur nefnt er sú að vegna lands­ins sem fari undir lónið eigi í stað­inn að fara í end­ur­heimt vot­lendis í Skál­holti. Það er eins og að fara í frjó­sem­is­á­tak í Úganda því það vanti börn í Danmörku.

End­ur­heimt vot­lendis í Skál­holti er ágætis hug­mynd en Skálholt getur séð um það verk­efni sjálft.“

Í kynningarefni Landsvirkjunar á Hvammsvirkjun er að finna myndir sem sýna eiga breytingar á ásýnd Þjórsá sem myndu verða.
Í kynn­ing­ar­efni Lands­virkj­unar á Hvamms­virkjun er að finna myndir sem sýna eiga breyt­ingar á ásýnd Þjórsá sem myndu verða.

Pálína bendir enn­fremur á að umhverf­is­matið fyrir Hvamms­virkjun sé að mestu leyti frá árinu 2004. „Það er því orðið eld­gam­alt. Það væri að detta í bíl­próf í ár, væri það mann­eskja. Allar for­sendur hafa breyst og sömu­leiðis hugs­un­ar­háttur fólks.

Þegar ákveðnir þættir í mat­inu voru metnir árið 2015 var það nið­ur­staða Skipu­lags­stofn­unar að Hvamms­virkjun myndi hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á ásýnd lands og að hún væri lík­leg til að hafa nei­kvæð áhrif á ferða­mennsku.

Svo hafa sam­fé­lags­leg áhrif virkj­ana í neðri hluta Þjórsár aldrei verið metin.“

Á þetta leggur Pálína mikla áherslu. „Í stórum ákvörð­unum er varða óaft­ur­kræfar fram­kvæmdir verðum við að horfa á heild­ar­mynd­ina. Það er ekki hægt að sleppa stórum þætti sem skiptir miklu máli. Og á sama tíma státa sig af því að vera að stuðla að sjálf­bærri þróun.“

Hin samfélagslega ábyrgð

Hún bendir á að á heima­síðu Lands­virkj­unar standi að grund­vall­ar­mark­mið sam­fé­lags­legrar ábyrgðar fyr­ir­tæk­is­ins sé að stuðla að sjálf­bærri þróun í íslensku sam­fé­lagi. „En ein grunn­stoð sjálf­bærar þró­unar, sam­kvæmt skil­grein­ingu á því hug­taki, er sam­fé­lags­leg. En samt hafa sam­fé­lags­leg áhrif þess­arar virkj­unar aldrei verið skoðuð!

Fyr­ir­tæki sem státar sig af því að vera sam­fé­lags­lega ábyrgt og stuðla að sjálf­bærri þróun, er búið að splundra litlu sam­fé­lagi í næstum því tutt­ugu ár. Á því tíma­bili með Hvamms­virkjun en þrjá­tíu árin þar á undan með Norð­linga­öldu­veitu. Þannig að þetta hefur verið að eiga sér stað í raun­inni í fimm­tíu ár. Það er ekk­ert sam­fé­lags­lega ábyrgt við það.“

Hvernig hefur þessi sundr­ung í sam­fé­lag­inu sem þú talar um birst þér?

„Þetta hefur haft alvar­leg áhrif á sam­skipti fólks í sveit­inni. Bók­staf­lega breytt vin­skap innan fjöl­skyldna. Þetta er tabú umræðu­efni. Það er tiplað á tánum í kringum þetta. Margir þora ekki að segja sína skoðun upp­hátt og tala um hana. Eru á móti virkjun en þora ekki að segja neitt – ekki skrifa undir neitt. Það vill ekki að nafnið þeirra sé bendlað við ákveðna afstöðu.

Í litlu sveit­ar­fé­lagi skiptir öllu máli að fólk standi saman. Við eigum að fá að vera eins og önnur sveit­ar­fé­lög, fá að eyða orkunni okkar í að ríf­ast um hvort að leik­skól­inn eigi að vera gjald­frjáls eða hvort byggja eigi íþrótta­hús. Svona hluti sem flest sveit­ar­fé­lög eru að glíma við. En í stað­inn erum við í allt öðru sam­tali. Sem er samt ekki raun­veru­legt sam­tal því þetta er svo mikið tabú og eld­fimt mál.“

Pálína segir að and­stæð­ingar Hvamms­virkj­unar neiti því ekki að Búr­fells­virkjun hafi á sínum tíma haft góð áhrif á sam­fé­lagið. Henni fylgdi atvinna og þá þurfti sann­ar­lega raf­magn. „Hún var ein­hvers konar sam­hjálp. En það er ekki það sama uppi á ten­ingnum í dag.

Ég hef heyrt fólk segja að Lands­virkjun hafi alla tíð verið svo góð við okkur að við þurfum líka að vera góð við hana. En það er ekk­ert til sem heitir að vera góður við stór­fyr­ir­tæki. Lands­virkjun spjarar sig alveg án þess að við hjálpum henni.

Ef ein­hver heldur að litla sveit­ar­fé­lagið okkar eigi eftir að græða eitt­hvað stór­kost­lega á að fá Hvamms­virkjun til við­bótar við hinar virkj­an­irnar sem þegar eru í Þjórsá þá þarf við­kom­andi að kynna sér málið betur. Með virkjun yrðu ekki til fram­tíð­ar­störf í Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi og stöðv­ar­húsið yrði handan árinnar svo sveit­ar­fé­lagið fengi ekki einu sinni fast­eigna­gjöldin. Það er bók­staf­lega ekk­ert í þessu fyrir okkur.“

Myndi það breyta þinni afstöðu ef tekjur af virkj­un­inni kæmu í þína sveit, orkan yrði notuð þar eða að minnsta kosti ekki í stór­iðju?

„Nei, því þessi fram­kvæmd gengur gegn öllum mínum grunn­gildum. Og ég er ekki að fara henda þeim þó að mér yrðu boðnir pen­ingar.

Ég var enn í grunn­skóla þegar hug­myndir um virkj­an­irnar í neðri hluta Þjórsá komu fram. En ég hafði strax áhyggjur, þetta skipti mig strax máli sem barn. Og nú mörgum árum seinna skiptir þetta mig enn máli. Hér eru á ferð­inni mjög sterk við­horf og eftir því sem við­horf eru sterk­ari, þeim mun meiri áhrif hafa þau á hegðun. Það er aðeins sá sem hefur þessi sterku við­horf sem eyðir orkunni sinni, í sínum frí­tíma, í að skrifa enda­lausar athuga­semdir við skipu­lags­til­lögur, ramma­á­ætlun og frum­mats­skýrslur. Setja sig inn í flókin mál sem sett eru fram af stórum fyr­ir­tækjum með tugum starfs­manna.

Ég held að við öll sem höfum verið að berj­ast gegn þessu eigum það sam­eig­in­legt að hafa upp­lifað heilsu­spill­andi ein­kenni sem fylgja bar­áttu sem útheimtir gíf­ur­lega orku.

Kvíðaviðbragð strax í gang

Þegar maður les fréttir um að Lands­virkjun sé að sækja um leyfi til að virkja eða að eitt­hvað annað sé í gangi tengt þessum fram­kvæmdum þá fer kvíða­við­bragð strax í gang. Maður getur ekki sofið. Þetta hefur svo djúp áhrif á okkur. Ég hef heyrt marga tala um nákvæm­lega þetta og lýsa þessu. Ég las frétt­ina um að Lands­virkjun hefði sótt um virkj­ana­leyfi snemma dags. Um kvöldið var heil­inn minn ennþá á fullu og ég gat ekki sofnað.

Þar sem ég lærði sál­fræði þætti mér mjög áhuga­vert að rann­sakað yrði hvort að þeir sem eru hlynntir virkjun upp­lifi svip­aða hluti þegar þeir lesa fréttir um að það þurfi ekki að virkja meira fyrir raf­bíla­væð­ing­una því að það sé nóg til af orku. Hvort að það fólk myndi missa svefn yfir því að fá ekki Hvamms­virkjun. Hvort að það myndi hringja í vini sína nið­ur­brotið og segja því að sleppa því að fara á for­síðu Vísis, það myndi eyði­leggja fyrir þeim dag­inn að sjá fréttir um að hætt hefði verið við virkj­un­ina.

Mín til­finn­ing er sú að þannig sé það ekki. Við sem erum í and­stöð­unni höfum barist gegn virkjun per­sónu­lega. Með öllu sem við eigum til. Við höfum lagt líf og sál í þá bar­áttu. Þeir sem eru hlynntir hafa ekki þurft að standa í því.“

Viðey er stök eyja í Þjórsá, suðaustan við bæinn Minna-Núp í Gnúpverjahreppi. Vegna þess hve áin er djúp og straumþung á þessum stað hefur hún að mestu fengið að vera í friði fyrir ágangi manna og búfjár.
Viðey er stök eyja í Þjórsá, suð­austan við bæinn Minna-Núp í Gnúp­verja­hreppi. Vegna þess hve áin er djúp og straum­þung á þessum stað hefur hún að mestu fengið að vera í friði fyrir ágangi manna og búfjár.

Þú skrif­aðir einmitt í færslu þinni að þetta væri bar­átta Davíðs við Golíat.

„Já, þannig hefur það verið ofboðs­lega lengi. Stór­fyr­ir­tæki á annarri hlið­inni og við á hinni.

En við vitum hvernig sú saga fór. Og við vitum hvernig Þjórs­ár­vera­deilan fór. Við gef­umst ekki upp. Það hefur oft blásið ansi hressi­lega á móti, sér­stak­lega í bar­átt­unni fyrir vernd Þjórs­ár­vera. En hér erum við enn. Að berj­ast.“

Þú lýsir slæmri líðan, svefn­leysi og öðrum áhrifum máls­ins á heilsu þína. Hefur það hvarflað að þér að hætta að berj­ast?

„Nei,“ svarar Pálína ákveðið. „Það er eitt­hvað sem ég gæti ekki lifað með. Ég er til­búin að berj­ast með öllu sem til þarf. Og ég veit að það eru margir aðrir á þeim sama stað.

Ég fylgd­ist með Þjórs­ár­vera­bar­átt­unni sem barn. Ég sá það sem for­eldrar mínir gerðu í þeirri bar­áttu. Ég sá mömmu mína leggja heils­una sína að veði og fjár­hag fjöl­skyld­unnar. En samt hef ég aldrei nokkurn tím­ann hugsað: Ó, ég vildi að hún hefði ekki farið í þetta.

Ég hef þvert á móti verið óend­an­lega stolt af því sem hún gerði. Ég er henni og þeim sem börð­ust gegn virkjun í Þjórs­ár­verum alltaf inni­lega þakk­lát þegar ég geng þar um á hverju ári. Er svo þakk­lát þessu fólki sem hafði kjark og þor til að standa upp á sínum tíma og segja: Nei.

Það var og verður allt þess virði. Því þegar við öll erum farin verður nátt­úran hér enn. Næstu kyn­slóðir fá að taka við henni. Og ég vil að næstu kyn­slóðir fái líka að taka við nátt­úr­unni í og við Þjórsá óskemmdri.

Lón fyll­ast á ákveðnum tíma. Þau eru ekki eilíf. Þau er ekki enda­laust hægt að nota til að fram­leiða raf­orku. Þess vegna er skrítið að tala um þetta sem end­ur­nýj­an­legan orku­gjafa – bara af því að árnar halda áfram að renna. Stærsta vanda­málið við vatns­afls­virkj­anir eru landið sem fer undir lón. Það land eyði­leggst. Verður aldrei aftur eins og það var.“

For­stjóri Lands­virkj­unar skrif­aði í grein sinni að bráðnun jökla væri fyr­ir­séð og að rennsli í ám á borð við Þjórsá myndi aukast. Því hlytum við að reyna að vinna orku úr þeim mikla flaumi. Hvað finnst þér um þessi orð?

„Hug­ar­heimur fólks er nátt­úr­lega ólíkur. Það er mis­mun­andi hvað við sjáum þegar við horfum á sama hlut­inn. Mér dettur alltaf í hug saga sem mamma sagði mér. Hún var að tala við verk­fræð­ing sem sagði að þegar hann horfði á Þjórsá renna óbeisl­aða til sjávar sæi hann mega­vött fljóta í burtu. Mamma lærði nátt­úru­fræði. Og hún svar­aði honum og sagð­ist sjá vist­kerfi sem fengju að lifa.

Við erum að fram­leiða nóg raf­magn. Í kerf­inu í dag er meira að segja raf­magn sem er ekki verið að nota. Bjarni Bjarna­son for­stjóri Orku­veit­unnar hefur und­an­farið verið dug­legur að benda á að það þurfi ekki að virkja meira til að raf­væða 100 þús­und bíla.

Samkvæmt virkj­ana­kostum sem teknir voru til með­ferðar í fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar kemur fram að hægt yrði að fá 210 MW með því að stækka virkj­anir Lands­virkj­unar við Vatns­fell, í Hraun­eyjum og Sigöldu. Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar setti þessar þrjár stækk­anir í orku­nýt­ing­ar­flokk í til­lögum sínum. Enn á eftir að afgreiða þær en af hverju ekki að leggja áherslu á þær stækk­anir og leyfa Hvamms­virkjun, sem yrði 93 MW, að verða skóla­bók­ar­dæmi um virkj­un­ar­hug­mynd sem aldrei varð að veru­leika?

Þó að jökl­arnir haldi áfram að bráðna og það hraðar en áður þá er það ekki nátt­úru­lög­mál að við þurfum að beisla hvert mega­vatt sem kemur úr þeim.“

Á Arnarfelli hinu Mikla. Horft yfir Þjórsárver.
Á Arn­ar­felli hinu Mikla. Horft yfir Þjórs­ár­ver.

For­stjóri Lands­virkj­unar skrif­aði líka að ekki væri ljóst hvort og þá hvenær sótt yrði um fram­kvæmda­leyfi vegna Hvamms­virkj­unar. Hver eru við­brögð þín við því?

„Það er verið að dæma okkur til þess að hafa þessa virkj­un­ar­hug­mynd hang­andi yfir okkur í enn fleiri ár og jafn­vel ára­tugi. Við höfum unnið okkur inn tíma en ekki unnið bar­átt­una. Auðvitað væri best ef þessi hug­mynd myndi ekki hanga lengur yfir okkur og þá vegna þess að ákveðið yrði að gera hana ekki að veru­leika.

Að nota það svo sem rök að virkj­unin hafi verið í und­ir­bún­ingi í tutt­ugu ár er hugs­ana­villa sem teng­ist því sem kall­ast sokk­inn kostn­aður. Það ger­ist þegar ákvörð­un­ar­taka end­ur­speglar þá hneigð okkar að láta þann kostnað sem þegar hefur verið útlagður hafa áhrif seinna. En auð­vitað eiga ákvarð­anir að vera teknar út frá þeim afleið­ingum sem þær munu hafa í fram­tíð­inni en ekki vegna þess sem þegar hefur verið til­kostað.“

Pálína nokkurra ára gömul í réttum ásamt móðurafa sínum, Jóni Ólafssyni, og móður sinni, Sigþrúði Jónsdóttur.
Pálína nokk­urra ára gömul í réttum ásamt móð­urafa sínum, Jóni Ólafs­syni, og móður sinni, Sigþrúði Jóns­dóttur.

Þú end­aðir á að skrifa í færsl­unni þinni: Lands­virkjun látið okkur vera. Hefur þú fengið ein­hver við­brögð frá fyr­ir­tæk­inu?

„Nei, engin. Ég tagg­aði Lands­virkjun og veit að ein­hver hjá þeim sá skila­boðin frá mér. Það er fínt, allir mega vita hvaða skoð­anir ég hef. Þær eru ekk­ert leynd­ar­mál. Og þær munu standa óhagg­aðar.

Ég efast um að afi minn hefði getað ímyndað sér að barna­barnið hans væri enn að berj­ast gegn virkj­unum fimm­tíu árum eftir að hann hóf sína bar­áttu. Hann lést árið 2001. Rétt áður en mesta og ill­víg­asta bar­áttan um vernd Þjórsár varð. Fram á síð­asta dag ævi sinnar hafði hann áhyggjur af Þjórs­ár­verum. Hann lifði það ekki að upp­lifa sig­ur­inn og létt­inn sem honum fylgdi hjá mörgum.

Þegar maður er í góðum tengslum við landið sitt þá skiptir nátt­úran öllu máli. Hún er ein­fald­lega heim­ilið okkar. Núna get ég gengið um ósnortin Þjórs­ár­ver. Og alltaf þegar ég kem þangað þá finn ég töfrana. Það er engin til­viljun. Þeir eru þarna enn út af fólki eins og afa og mömmu sem börð­ust fyrir svæð­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvammsvirkjun

Mest lesið undanfarið ár