Styttist í meira „fóður“ fyrir upplýsta umræðu um Borgarlínu

Árið 2024 á hún að hálf­hringa sig frá Hamra­borg að Höfða. Borg­ar­línan nálg­ast og brátt fer að sjást í afurðir skipu­lags­vinnu sem ætti að verða frekara fóður í upp­lýsta umræðu um verk­efnið.

Stefnt er að því að fyrsti áfangi Borg­ar­línu kom­ist í rekstur árið 2024, en þá á að vera búið að byggja sér­rými fyrir stræt­is­vagna frá Hamra­borg í Kópavogi, út á Kárnes, yfir nýja Foss­vogs­brú, fram­hjá háskóla­svæð­inu í Vatns­mýr­inni, að Lækj­ar­torgi og svo upp í gegnum mið­borg Reykja­víkur að Hlemmi. Þaðan á svo sér­rýmið að teygj­ast áfram eftir Suð­ur­lands­braut, í gegnum Voga­hverfið sem er að rísa, yfir ósa Elliða­ánna og upp á Höfða.

Í dag er gengið út frá því að borg­ar­línu­leið­irnar sem feti sig um sér­rýmið árið 2024 verði tvær tals­ins og einnig að leið­irnar sjálfar verði lengri en ein­ungis sem nemur lengd sér­rým­is­ins. Eins og áætl­anir líta út í dag myndi önnur leiðin fara frá Lækj­ar­torgi upp á Höfða og um Gull­in­brú upp í Graf­ar­vog, en hin frá ná Lækj­ar­torgi að Hamra­borg og svo áfram upp í efstu byggðir Kópavogs, að Vatns­enda. Vagn­arnir verða því ekki í sér­rými, aðskildir annarri umferð, alla leið.

Þetta útskýrðu þau Hrafn­kell Á. Proppé og Lilja G. Karls­dóttir starfs­menn Verk­efna­stofu Borg­ar­línu nokkuð skil­merki­lega fyrir blaða­manni Kjarnans nýlega. „Þó að þetta séu bara 13 kíló­metrar sem eru undir í fram­kvæmd­inni í fyrsta áfanga, þá erum við að tala um að það séu tvær borg­ar­línu­leiðir sem myndu nota þessa inn­viði,“ segir Hrafn­kell, en Lilja skýtur því inn að það sé reyndar til skoð­unar hvort álit­legra væri að hafa borg­ar­línu­leið­irnar í þessum fyrsta áfanga ein­ungis eina, í stað tveggja. Verið er að meta hvort það geti verið fýsi­legt, en á þessum tíma­punkti er unnið út frá því að þær verði tvær.

Það að láta borg­ar­línu­vagn­ana, sem verða stærri en venju­legir stræt­is­vagnar, fara umfram sér­rýmið er ætlað til þess að reyna að lág­marka skipt­ingar í kerf­inu og það mun útheimta ein­hverjar breyt­ingar á götu­mynd­inni utan sér­rým­is­ins til þess að þeir geti farið um. Hring­torg, til dæmis, eru afar óhentug fyrir stóra stræt­is­vagna. Nákvæmar útfærslur á þessu munu liggja fyrir þegar for­hönnun lýkur, haustið 2021, segir Lilja.

Gagnast fleiri leiðum í almenningssamgöngukerfinu

Það verða þó ekki ein­ungis fyrstu borg­ar­línu­leið­irnar, sem hefja akstur um sér­rýmið þegar það verður klárt. Almennar strætó­leiðir, sem geta nýtt sér sér­rýmið til tíma­sparn­aðar munu einnig gera sér það.

„Þú ert þá að fá sér­rými þar sem við erum að upp­lifa mestu umferð­ar­taf­irnar. Þetta á tví­mæla­laust eftir að verða þjón­ustu­bæt­ing og tíma­sparn­aður fyrir mjög margar leiðir,“ segir Hrafn­kell og bætir við að til dæmis Mos­fell­ingur sem taki Strætó í átt að mið­borg Reykja­víkur til vinnu á morgn­ana muni finna fyrir miklum breyt­ingum, þrátt fyrir borg­ar­línu­leið upp í Mos­fellsbæ sé ekki inni­falin í fyrsta áfang­anum í fram­kvæmd­inni.

„Þegar hann kemur niður á Höfða fer sú leið bara inn í sér­rýmið og hann kemst miklu hraðar niður í mið­borg heldur en með eldra kerfi,“ segir Hrafn­kell.

„Af hverju bæt­iði ekki bara strætó­kerfið?“ segja sumir sem telja Borg­ar­línu óþarfa fram­kvæmd. „Við erum einmitt að því,“ segir Lilja.

Borg­ar­línu­vagn­arnir verða frá­brugðnir hef­bundnum gulu stræt­is­vögn­unum sem aka um götur höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í dag. Sumir verða stærri, en ekki liggur enn fyrir hvernig vagnar verða fyrir val­inu.

Vagn­arnir sem verið er að tala um eru ann­ars vegar 18 metra lið­vagnar, svip­aðir þeim stærstu sem Strætó bs. notar þar sem mestra afkasta er þörf í strætó­kerf­inu í dag, en svo er líka verið að skoða 24 metra langa tví­liða vagna.

„Við erum að sjá að árið 2029 munum við þurfa tví­liða vagna alla­vega á einni leið,“ segir Lilja, en vagna­út­boð tekur á bil­inu 2-3 ár. Þau Hrafn­kell segja mik­il­vægt að hugsa ekki of smátt þegar kemur að vagna­kaup­unum, enda séu dæmi um að borgir hafi byrjað með of litla vagna í rekstri hrað­vagna­kerfa sinna og hafi síðan neyðst til þess að fjár­festa í stærri vögnum nokkrum árum eftir að kerfið var tekið í notkun. Líftími vagna er um 10-15 ár og þess vegna þarf að kaupa inn vagna sem duga líka eftir 10 ár.

„Þetta á líka að vera „upgrade“ í þjón­ustu,“ segir Lilja og bætir við að í dag séu leiðar þar sem allt sé smekk­fullt á morgn­ana. „Fólki finnst það ekki gott, sér­stak­lega ekki núna,“ segir hún og vísar til veiru­á­stands­ins.

COVID-kvíðinn

Og talandi um það. Ótti við nálægð sem oft fylgir almenn­ings­sam­göngum hefur gert ýmsa afhuga stræt­ó­ferðum. Inn­stigum í strætó fækk­aði um 30 pró­sent á milli ára í maí og enn meira þegar far­ald­ur­inn á vor­mán­uðum stóð sem hæst, er margir strætónot­endur tóku fram hjólið eða hrein­lega unnu heiman frá sér.

Hrafn­kell og Lilja segj­ast þó ekki telja að það verði lang­tíma­breyt­ing á vilja fólks til þess að nýta almenn­ings­sam­göngur og bendir Hrafn­kell á að um leið og veiran var nær horfin úr sam­fé­lag­inu hér á landi snemm­sum­ars hafi fólk byrjað að streyma á kaffi­hús, veit­inga­staði og við­burði á ný. Þau vona þó eins og aðrir að veiran verði ekki meðal okkar til langrar fram­tíðar.

Þau Lilja og Hrafn­kell segja að íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ættu að verða þess veru­lega varir að fram­kvæmdir verði farnar af stað síðla árs 2022. En fram­kvæmd­irnar eru þó í reynd þegar hafnar, að því leyti að sér­stak­lega er byrjað er að gera ráð fyrir Borg­ar­línu á þeim stöðum þar sem hún á að fara um og aðrar fram­kvæmdir eru yfir­stand­andi.

Til dæmis er verið að huga að legu Borg­ar­línu í þeirri miklu upp­bygg­ingu sem á sér stað á Land­spít­ala­svæð­inu um þessar mundir, en þar er passað upp á að bil á milli húsa sé nægi­legt til að Borg­ar­línan geti farið um í fram­tíð­inni.

Margir hafa miklar skoð­anir á Borg­ar­lín­unni og und­an­farin ár hafa hér á Kjarn­anum og víðar birst pistlar og greinar þar sem hag­kvæmni verk­efn­is­ins er dregin í efa og for­sendur þess sagðar brostnar, eða þá að verk­efnið sé orðið allt of víð­femt.

Í sam­hengi við það síð­ast­nefnda minnir Hrafn­kell á að verk­efnið sé sam­eig­in­legt verk­efni allra sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem styðji auk þess við þá stefnu sem ríkið hafi sett sér um að auka þurfi hlut vist­vænna ferða­máta. Hann segir að það stytt­ist í að hægt verði að varpa frekara ljósi á margt af því sem sætt hefur gagn­rýni á umliðnum miss­erum, gagn­rýni sem hefur bæði verið mál­efna­leg og ekki.

„Við þurfum bara að vera auð­mjúk. Það verða allir fram­kvæmda­að­ilar að vera það.“

„Við viljum bara eiga fag­lega umræðu. Nú eru að koma mjög mörg mik­il­væg púsl að koma saman, það eru að koma nið­ur­stöður úr umferð­ar­lík­an­inu, það er að koma félags­hag­fræði­leg grein­ing, það eru að koma frum­drög; skýrsla sem mun hjálpa fólki að skilja þetta og það er líka að koma ákveðin grein­ing á því hvaða mögu­leika við höfum í inn­lendum vist­vænum orku­gjöfum. Það er alveg heil­mikið skref, það er að koma fóður til að eiga upp­lýst­ari og betri umræðu, en það verða alltaf ein­hverjir sem kjósa að eiga umræð­una á ein­hverjum öðrum for­sendum,“ segir Hrafn­kell.

„Almenn­ings­sam­göngu­verk­efni eru bara drullu­flókin,“ segir Lilja og bætir því við að það helgist af því hvað verk­efnið hafi marga snertifleti. Það er allt undir, umferð gang­andi, hjólandi, einka­bíla og annað, sem Lilja segir að ekki sé mikil hefð fyrir að rúmist allt innan sama sam­göngu­verk­efn­is­ins hér á landi.

„Við þurfum bara að vera auð­mjúk. Það verða allir fram­kvæmda­að­ilar að vera það. Við verðum alltaf að vera með ferli í gangi sem er sam­tal við sam­fé­lagið [...] og við verðum að geta gert ráð fyrir að það komi eitt­hvað „input“ úr því ferli sem gæti haft áhrif á loka­nið­ur­stöð­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár