Mikil hækkun á flugmiðum annan mánuðinn í röð

Flug­far­gjöld hækk­uðu um 23% milli júní og júlí, í kjöl­far 15,2% mán­uð­inn á undan. Samhliða verð­lækkun á fötum og skóm hélst vísi­talan þó nær óbreytt í júlí , en 12 mán­aða verð­bólga mælist í 2,7 pró­sentum.

Sumarútsölur ná að draga vísitöluna niður og halda henni óbreyttri milli mánaða.
Sum­ar­út­sölur ná að draga vísi­töl­una niður og halda henni óbreyttri milli mán­aða. Mynd: Pexels

Verð á flug­miðum hækk­aði um 23% milli júní og júlí, sam­an­borið við 15,2% hækkun milli maí og júní. Samtals stóð vísi­tala neyslu­verðs þó nær óbreytt fyrir sama tíma­bil, en verð­bólgan er enn yfir mark­miðum Seðla­bank­ans. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu.

Samkvæmt Hagstofu hækk­aði vísi­tala neyslu­verðs um 0,04% milli mán­aða í júlí, en með því mælist verð­bólga síð­ustu tólf mán­aða þá 2,7%. Án hús­næðis mælist verð­bólgan þó helm­ingi minni, eða um 1,4%.[adspot]

Helstu breyt­ingar sem áttu sér stað milli júní og júlí voru í fötum og skóm, flug­far­gjöldum og í húsa­leigu. Þar lækk­aði verð á fötum og skóm um 11,3%, lík­lega vegna sum­ar­út­salna, en hún útskýrir tæpan helm­ing af breyt­ingu vísi­töl­unnar milli mán­aða. Hækkun flug­far­gjalda um 23% milli sum­ar­mán­að­anna útskýrir svo tæpan þriðj­ung breyt­ing­ar­innar og 1% hækkun leigu­verðs­vísi­tölu útskýrir rúman fimmt­ung.

Þriðja skiptið á fjórum árum

[links]Flug­far­gjöld og hús­næð­is­verð reynd­ust einnig vera helstu þættir hækk­unar á vísi­tölu neyslu­verðs í síð­asta mán­uði, en óvænt verð­hækkun flug­miða um 15,2% í júní var nær þrefalt hærri en búist var við. Sömu­leiðis átti hækkun fast­eigna­verðs milli mán­aða mikil áhrif, en það hafði staðið í stað og lækkað nokkuð mán­uð­ina á undan. Grein­inga­deildir Arion banka og Lands­bank­ans nefndu einnig ytri þætti sem stuðl­uðu að verð­hækk­unum, líkt og hærra heims­mark­aðs­verði á olíu auk dýr­ari inn­flunt­ings­vara.

Tólf mán­aða verð­bólga hefur nú mælst yfir 2,5% verð­bólgu­mark­miðum Seðla­bank­ans í þrjá mán­uði á þessu ári, en í júní og mars síð­ast­liðnum mæld­ist hún 2,8%. Þessar hækk­anir eru þær fyrstu sem farið hafa yfir verð­bólgu­mark­miðið í rúm fjögur ár, eða alveg síðan í jan­úar árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið undanfarið ár