Konur í meirihluta í efstu 5 sætum en karlar leiða flesta lista

Fleiri konur en karlar sitja í efstu fimm sætum fram­boðs­lista en karlar leiða flesta lista. Meira en helm­ingur allra fram­bjóð­enda í Alþing­is­kosn­ing­unum 28. októ­ber eru karlar.

Fram­boðs­frestur til Alþing­is­kosn­ing­anna 2017 rann út á föstu­dag­inn var, 13. októ­ber. Kjör­stjórnir kjör­dæmanna tóku þá á móti fram­boðs­listum og með­mæla­listum frá fram­boð­unum. Aðeins eitt fram­boð dró alla sína lista til baka eftir að hafa skilað þeim inn, vegna athuga­semda kjör­stjórnar við með­mæla­listana.

Alls eru 11 fram­boð í boði í kjör­dæm­unum sex. Björt fram­tíð (A), Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn (B), Viðreisn (C), Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn (D), Flokkur fólks­ins (F), Mið­flokk­ur­inn (M), Píratar (P), Sam­fylk­ingin (S) og Vinstri græn (V) bjóða fram í öllum kjör­dæmum. Alþýðu­fylk­ingin (R) býður fram í fjórum kjör­dæmum; Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur, Suð­vest­ur­kjör­dæmi og Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Dögun (T) býður aðeins fram í Suð­ur­kjör­dæmi.

1.234 fram­bjóð­endur eru skráðir í gagna­grunn Kjarnans um fram­boðs­lista og full­trúa í Alþing­is­kosn­ing­unum 2017. Hægt er að nálg­ast alla lista allra fram­boða í öllum kjör­dæmum í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans.

Þegar rýnt er í fram­boðs­listana má finna ýmis­legt áhuga­vert. Hér að neðan má sjá grein­ingu á kynjum fram­bjóð­enda í öllum kjör­dæmum.

Fleiri karlar bjóða sig fram

Kjarninn hefur safnað saman öllum fram­boðs­listum allra þeirra fram­boða sem bjóða fram í kosn­ing­unum 28. októ­ber næst­kom­andi. List­arnir bár­ust ýmist í frétta­til­kynn­ingum eftir að þeir voru kynntir, Kjarninn óskaði sér­stak­lega eftir list­unum eða sótti þá á vefi fram­boð­anna.

Þegar allir 1.234 fram­bjóð­end­urnir eru taldir saman eftir kynjum sést að heilt yfir eru fleiri karlar í kjöri en konur. 686 fram­bjóð­end­anna í skrá Kjarnans eru karlar, 56 pró­sent allra, miðað við 548 konur, 44 pró­sent allra.

Hlutfall kynja í efstu fimm sætum allra lista er hins vegar aðeins öðru­vísi. Þar eru konur í meiri­hluta, eða 54 pró­sent. Ef við­mið­unin er þrengd enn frekar um odd­vita allra lista eru karlar aftur komnir í meiri­hluta. Á 63 pró­sent allra list­anna eru karlar í efsta sæt­inu.

F, M og P skera sig úr

Af þeim fram­boðum sem mæl­ast með meira en tvö pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni þá skera Flokkur fólks­ins, Mið­flokk­ur­inn og Píratar sig úr þegar litið er til kynja­skipt­ingar á fram­boðs­listum.

Á listum Bjartrar fram­tíðar, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Við­reisnar, Sjálf­stæð­is­flokks, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna má sjá jafn­ræði með kynj­unum, heilt yfir.

Hjá Flokki fólks­ins, Mið­flokknum og Pírötum er hlut­fall karla í fram­boði hærra eða að jafn­aði 63 pró­sent.

Hjá Alþýðu­fylk­ing­unni og Dögun – fram­boð­unum sem ekki hafa fengið meira en tvö pró­sent í kosn­inga­spánni fyrir þessar kosn­ingar – er hlut­fallið hins vegar allt öðru­vísi. 73 pró­sent fram­bjóð­enda Alþýðu­fylk­ing­ar­innar eru karlar á meðan 70 pró­sent fram­bjóð­enda Dögunar eru konur.

Karlar fámennari í efstu fimm

Séu efstu fimm sæti allra lista í öllum kjör­dæmum borin saman eftir flokkum kemur í ljós að konur eru all­staðar fleiri en karlar, nema á listum Sjálf­stæð­is­flokks og Alþýðu­fylk­ing­ar­innar. Á listum Fram­sókn­ar­flokks­ins, Við­reisnar og Flokks fólks­ins er algert jafn­ræði meðal kynj­anna í efstu fimm sætum list­anna.

Þegar við­mið­unin er þrengd enn frekar og efstu fjögur sætin á öllum listum skoðuð með til­liti til kyns fram­bjóð­enda er hlut­fall karla og kvenna jafnt. Það á líka við um efstu þrjú sætin á öllum listum.

Í efstu tveimur sætum allra lista eru karlar hins vegar í meiri­hluta, eða 52 pró­sent.

Karlar leiða frekar lista

Skoðum þá odd­vita­sæti allra listana. Þar eru karlar í meiri­hluta, 63 pró­sent allra lista eru leiddir af körlum. Hér munar þónokkru á þeim flokkum sem bjóða fram í öllum kjör­dæmum.

Kjarninn hefur tekið saman alla fram­boðs­lista allra flokka í kjör­dæm­unum sex. Fram­boðs­listana má alla finna hér á vefnum í gagn­virku formi. Þar er hægt að flokka listana eftir konum og körlum, eftir ein­staka kjör­dæmum og flokkum. Þar má einnig leita að fram­bjóð­endum eftir nafni.

Auk allra fram­boðs­lista má finna ýmsan fróð­leik um kosn­ing­arnar í kos­inga­mið­stöð Kjarnans. Það er til dæmis heim­ili kosn­inga­spár­innar, þar sem allar skoð­ana­kann­anir sem birtar eru í aðdrag­anda kosn­ing­anna eru birtar.


17. októ­ber 2017 kl. 11:23 – Gagna­villa olli því að mynd­ritið um odd­vita á D-listum var rangt. Það hefur verið lag­fært og önnur mynd­rit yfir­farin á ný til að úti­loka sömu villu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár