Stríð og friður um jólin

Þótt ein­hverjir telji sig eiga til­kall jól­anna og vilji hafa þau sam­kvæmt sínu höfði, trú eða hefðum, þá virð­ist jóla­and­inn ávallt verða öllu yfir­sterk­ari. Hermenn hafa í gegnum tíð­ina til að mynda frið­mælst við and­stæð­inga og mennskan sigrar að lokum.

Jólin eru tími gleði, friðar og kær­leika en þau geta líka orðið póli­tískt bit­bein og glitr­andi jóla­ljósin vopn í milli­ríkja­deilum. Þannig skil­greindu Norður-Kóreu­menn 30 metra hátt jóla­tré sem Suður-Kóreu­menn tendr­uðu ljósin á við landa­mæri ríkj­anna sem sál­fræði­hernað. Þetta flokk­ast sjálf­sagt með sér­kenni­legri dæmum um hvernig jólin flétt­ast inn í alþjóða­sam­skipti en síðan eru til fal­legar sögur sem sann­ar­lega eru í anda jól­anna. Þær sýna okkur að jólin koma, þvert á landa­mæri og trú­ar­brögð.

Jólavopnahléið 1914

Það var á aðfanga­dags­kvöld árið 1914 að stríðs­á­tök hættu af sjálfs­dáðum á nokkrum víg­stöðvum þar sem jóla­söngur í skot­gröf­unum sner­ist fljót­lega upp í sam­tal á milli þýskra, breskra, franskra og belgískra her­manna. Á aðfanga­dag héldu her­menn beggja vegna víg­lín­unnar inn á einskis­manns­landið til að jarða látna félaga og óvinir skipt­ust á gjöfum. Einnig fer sögum af því að spil­aður hafi verið fót­bolti á þessu ann­ars hættu­lega land­svæði.

Þó jóla­vopna­hléið árið ​​1914 sé hvað þekkt­ast hefur fund­ist bréf skrifað af her­manni sem sem bendir til þess að þessi hátíð­legu vopna­hlé hafi haldið áfram að eiga sér stað allt til loka stríðs­ins. Var gjarnan gert lítið úr þeim í skýrslum yfir­manna til her­stjórnar, því þau voru ekki í þeim stríðsanda sem þótti til­hlýði­legur. Raunar voru þau svo illa séð að leyniskyttur voru hafðar til­tækar ef örla skyldi á ein­hverjum sjálf­sprottnum frið­ar­stundum, sem þó mun ekki hafa latt her­menn við að ving­ast við and­stæð­inga sína um jólin.

Á þessum tíma var litið á hið full­valda ríki sem eins­konar svartan kassa, hags­munir rík­is­ins sem heildar voru aðal­at­riðið og fólkið í þeim skipti ekki máli. Ungir menn voru í fyrri heims­styrj­öld­inni látnir slátra hver öðrum í for­inni í nafni rík­is­ins, en slíkur hugs­un­ar­háttur hefur að mestu vikið og mann­rétt­indum almennt farið jafnt og þétt fram. Þessar mis­fal­legu sögur sýna okkur í raun hvernig jólin draga fram mennsk­una, sem er þarna aug­ljós ógn við ríkið og afhjúpa ómennsku ein­ræð­is­stjórna nútím­ans.

Mismunandi jólasiðir

Flest eigum við Íslend­ingar okkur jólasiði sem standa hjart­anu næst, kristna sem heiðna; laufa­brauðs- og pip­ar­köku­bakstur, skreyt­ingar og helgi­hald. Þetta eru siðir sem okkur finnst gjarnan þjóð­legir og hljóti margir að eiga sér langa sögu sem teygi sig aftur í aldir. Það á vissu­lega við um suma hverja en þegar vel er að gáð kemur í ljós að rætur þeirra liggja víða, ekki endi­lega mjög djúpt, en þeir hafa síðan þró­ast á mis­mun­andi máta á ferð sinni um heim­inn.

Gott dæmi er þegar nán­ast öll heim­ili á Íslandi höfðu sjö arma aðventu­ljós í glugga undir lok 20. aldar og hafa lík­lega sum hver enn – vegna þess að Gunnar Ásgeirs­son heild­sali, sem meðal ann­ars flutti inn Volvo og Husquarna frá Svíþjóð, rakst á þau þar í landi og hóf inn­flutn­ing til Íslands. Hafa vin­sældir ljósanna verið nefndar sem dæmi um inni­halds­leysi jóla­halds­ins því þetta séu gyð­inga­ljós sem eigi sér engan stað í íslenskri trú eða hefðum.

Málið er þó ekki alveg svo ein­falt því ljósin byggja á eins­konar aðventu­tré eða kerta­stjökum sem höfðu þekkst í Svíþjóð frá lokum 19. aldar, en þangað barst sið­ur­inn frá Þýska­landi. Jafn­framt má segja að þetta sýni okkur hvað jólin snú­ast í raun um. Uppruni hlut­anna eða trú­ar­legur bak­grunnur skiptir ekki öllu máli því á jól­unum reynir fólk að finna það sem færir frið, feg­urð og gleði, sem er sammann­legt.

Jólin hafa þó víða verið nátengd krist­inni trú, eins og hér á Íslandi, þar sem fæð­ing Frels­ar­ans gefur tón­inn hjá mörgum. Fyrir aðra er þetta alfarið heiðin hátíð enda til komin áður en kristnir menn felldu hana inn í sín hátíða­höld. Hér á norð­ur­hveli eru jólin, með sinni ljósa­dýrð og huggu­leg­heitum, kær­komin í svartasta skamm­deg­inu. Þau boða end­ur­komu ljóss­ins með rísandi sól og bjart­ari dögum, hvað sem trú­ar­brögðum líður.

Hverjir eiga jólin?

Þegar eitt­hvað er mönnum jafn kært og jólin er lík­legt að ein­hverjir vilji kasta eign sinni á það. Þó jólin séu frið­ar­há­tíð þar sem flestir reyna að finna hinn sanna jóla­anda og vera góðir við menn og dýr, verður hátíðin sjálf og inn­tak hennar því stundum deilu­efni í sjálfu sér.

Mis­mun­andi siðir og venjur við jóla­hald geta þannig varpað ljósi á menn­ing­ar­mun í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lögum eins og Banda­ríkj­unum. Fyrir jólin í fyrra varð uppi fótur og fit í Wisconsin-ríki þegar nýkjör­inn rík­is­stjóri úr röðum demókrata reyndi að höfða til mis­mun­andi sjón­ar­miða og trú­ar­bragða við jóla­skreyt­ingar. Til­kynnti hann að hið risa­vaxna jóla­tré sem sett var upp í hvelf­ingu þing­húss­ins yrði kallað hátíða­tré. Þetta fór öfugt í repúblik­ana og þing­menn deildu um málið í rík­is­þing­inu.

Slíkar deilur hafa skotið upp koll­inum hér á Íslandi sem hefur þró­ast hratt í átt að fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagi á aðeins nokkrum ára­tugum. Íslenskur stjórn­mála­maður lýsti því yfir fyrir nokkru að stríð stæði yfir gegn jól­unum. Vísaði hann þar til þess að skóla­börn væru hætt skipu­lögðum heim­sóknum í kirkjur fyrir jól, hætt væri að setja upp jóla­leik­rit og jafn­vel að halda litlu jólin. Ástæðan var að í sam­fé­lagi þar sem trú­frelsi ríkir mætti ekki skylda alla til að taka þátt í trú­ar­legum athöfnum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur haldið því fram að stríð standi yfir gegn jólunum.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur haldið því fram að stríð standi yfir gegn jól­unum.

Fyrir Íslend­inga sem almennt hafa ekki verið þjak­aðir af trú­ar­hita virð­ist þetta ekki vera mikið til­töku­mál. Sagan um Jesú­barnið og jólin er fyrir mörgum Íslend­ingum hluti af hefð sem jafn­vel örg­ustu trú­leys­ingjum þykir lík­lega bara vænt um. Öðru máli kann að gegna um þá sem taka trú sína mun alvar­legar. Spurn­ingin er svo hversu langt á að ganga í að þókn­ast öllum þeim mis­mun­andi við­horfum. Kannski felst lausnin í að var­ast að nota þennan nún­ing til að skerpa á and­stæðum og reyna að leysa málið í anda jól­anna.

Hnattvæðing Jólasveinsins

Aðrir siðir og venjur læða sér inn án þess að bein­línis valda deilum og er hinu gamla þá gjarnan varpað fyrir róða án mik­illar eft­ir­sjár. Á fyrri hluta 20. aldar sló Coca-Cola-fyr­ir­tækið eign sinni á hinn rauð­klædda Santa Claus sem varð þar með þekktur um heims­byggð­ina. Íslend­ingar létu ekki sitt eftir liggja og fljót­lega klædd­ust hinir sann-íslensku jóla­sveinar allir rauðu og hvítu og mild­uð­ust í allri fram­komu. Hafði hún þó þegar farið batn­andi allt frá árinu 1746 þegar lagt var bann við því að for­eldrar hræddu börn sín með jóla­sveinum, með svo­kall­aðri Húsaga­til­skipun. Hættu þá jóla­svein­arnir að vera lífs­hættu­legir og urðu ein­ungis hrekkj­óttir þjófar.

Íslensku jólasveinarnir klæðast líka rauðu og hvítu, eins og jólasveinn Coca-Cola fyrirtækisins.
Íslensku jóla­svein­arnir klæð­ast líka rauðu og hvítu, eins og jóla­sveinn Coca-Cola fyr­ir­tæk­is­ins.

Sjálf­sagt hefur þó ein­hverjum þótt nóg um þessa inn­rás hins alþjóð­lega stór­fyr­ir­tækis. Sé allrar sann­girni gætt er þó skilj­an­legt að blessuðum börn­unum hafi líkað betur við þann bústna rauð­klædda en íslenska frændur hans, trölls­legir ruddar sem þeir voru, mamman át jú börn og skrímslið kött­ur­inn þeirra líka. Að ein­hverju leyti féll hinn góð­legi sveinki betur að hinu ljósum skrýdda jóla­haldi og hefur tekið á sig ein­hvers­konar guð­lega mynd í popp­menn­ingu nútím­ans.

Á síð­ari árum hafa þeir gömlu íslensku sveinar þó hlotið upp­reist æru og hafa aftur fengið að vera með í jóla­hald­inu. Það er kannski tím­anna tákn að Stúfur sem er þeirra minnstur, mesta mein­leys­is­greyið sem lét sér nægja að stel­ast í við­brunna afganga, er orð­inn þeirra vin­sælastur.

Hnattvæðing siðvæðir

Því hefur verið haldið fram að Íslend­ingar geti þakkað alþjóða­sam­starfi þær fram­farir sem hafa orðið í sam­fé­lag­inu, sið­menn­ingin og ýmis mann­rétt­indi sem okkur hafa hlotn­ast komi allt að utan. Í því sam­hengi er þessi sam­runi hinna óhefl­uðu íslensku jóla­sveina við Coca-Cola-svein­inn athygl­is­verður því þar mæt­ast tals­verðar and­stæður. Má hæg­lega nefna það sið­væð­ingu þar sem ofbeld­is­fullu rusta­mennin, hverra líf gekk út á hús­brot og þjófn­aði, snúa lífi sínu til betri vegar og fara að dreifa gjöfum til barna með bros á vör.

Þrátt fyrir að ein­hverjir telji sig eiga til­kall jól­anna og vilji hafa þau sam­kvæmt sínu höfði, trú eða hefðum, þá virð­ist jóland­inn ávallt verða öllu yfir­sterk­ari. Eins og her­menn­irnir sem héldu áfram að frið­mæl­ast við and­stæð­inga sína, með söng, gjöfum og fót­bolta­leik, þvert ofan í skip­anir yfir­manna og hættu á að verða skotnir á færi – þá sigrar mennskan að lokum. Jólin munu því vænt­an­lega áfram gefa von um kær­leika og frið á jörð, hver sem þyk­ist eiga þau.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið undanfarið ár