Kostnaðurinn við að grípa banka í áfalli meiri en að vera með borð fyrir báru

Fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands segir íslenskt banka­kerfi standa frammi fyrir þremur megin áhættu­þáttum. Þeir eru ferða­þjón­usta, íbúð­ar­hús­næði og atvinnu­hús­næði.

Harpa Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, segir að íslenska banka­kerfið sé mun betur í stakk búið til að mæta áföllum en það var fyrir hrun. Þetta sýna meðal ann­ars álags­próf sem Seðla­banki Íslands fram­kvæmir á bönk­unum. „Í raun­inni er banka­kerfið bara mikið minna, það starfar bara inn­an­lands og það er ákveðið öryggi í því fyrir okkur því að það er umhverfi sem að við þekkjum. Og við erum miklu betur í stakk búin til að meta þá áhættu sem er til staðar hér inn­an­lands. Bank­arnir eru bæði með mikið meira laust fé og eigið fé þannig að geta þeirra til að mæta áföllum er mun meiri en hún var hér áður fyrir hrun. Ein af megin ástæðum þess að þessar kröfur hafa verið settar á með þessum hætti er til þess að standa vörð um fjár­mála­kerfið og það verndar hags­muni almenn­ings á end­anum.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Hörpu í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýnt var í gær­kvöldi. Þar ræddu þau inni­hald nýs Fjár­mála­stöð­ug­leika­rits Seðla­banka Íslands. Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Harpa segir að Seðla­banki Íslands hafi þá skoðun að bank­arnir verði áfram með mikið eigið fé og hátt eig­in­fjár­hlut­fall til að við­halda góðum við­náms­þrótti. „Það er í sjálfu sér dálít­ill pen­ingur sem situr þar inni. En kostn­að­ur­inn við það að þurfa að grípa bank­ana í áfalli er mun meiri heldur en það að vera með borð fyrir báru.“

Aðspurð um hvaða áhættu­þættir það séu sem bankar standi frammi fyrir í dag segir hún ýmis­legt hafa breyst hvað það varðar á síð­ustu mán­uðum. „Við getum sagt að við séum í ákveðnum beygju­skilum. Það er margt að breyt­ast í okkar umhverfi. Það er að hægja á hag­vexti, það er að meiri órói á mörk­uðum, hreyf­ing á gengi krón­unnar og ýmis­legt sem er svona almennt, sem eykur óviss­una almennt. En ann­ars eru það þrír áhættu­þættir sem við lítum sér­stak­lega til. Það eru íbúð­ar­hús­næði, atvinnu­hús­næði og ferða­þjón­usta.“

Hægt er að horfa á 21 gær­dags­ins í heild hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár