Aðili

Útvarp Saga

Fréttir

Boðist til að falla frá málsókn gegn þögn um fram­bjóðanda Framsóknar­flokksins

Lögfræð­ing­urinn Sævar Þór Jónsson, sem er í þriðja sæti á lista Framsóknar­flokksins í Reykjavík, sendi Stundinni innheimtu­kröfu upp á 7,5 milljónir króna vegna birtingar mynda af Arnþrúði Karls­dóttur sem Útvarp Saga notaði til kynningar á dagskrár­liðum. Fulltrúi Sævars bauðst til þess að fallið yrði frá kröfunni gegn því að Sævari yrði haldið fyrir utan umfjöllun blaðsins um útvarps­stöðina.
Fréttir

Útvarps­stjóri sakar hælis­leitendur um tengsl við ISIS

Arnþrúður Karls­dóttir útvarps­stjóri hjá Útvarpi Sögu fullyrðir að Ali Nasir og Majed, hælis­leitendur frá Írak, sem dregnir voru út úr Laugar­neskirkju, liggi undir grun um að vera í „undir­búningi fyrir ISIS samtökin hér á Íslandi“. Hún vill að séra Kristínu Þórunni Tómasdóttur verði vikið úr starfi og hvetur lögreglu til að kæra prestana, og biskup, fyrir að trufla störf lögreglunnar.

Mest lesið undanfarið ár