Aðili

Samherji

Greinar

Útgerðarfélagið Samherji birtir upplýsingar úr ársreikningi félags sem það á ekki
FréttirSamherjaskjölin

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji birtir upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingi félags sem það á ekki

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji birtir upp­lýs­ingar úr árs­reikn­ingi félags­ins Samherji Holding ehf. inni á heima­síðu þess þrátt fyrir að félagið hafi hætt að til­heyra sam­stæðu Samherja árið 2018. Samherji á ekki Samherja Holding lengur heldur er eign­ar­haldið á síð­ar­nefnda félag­inu hjá stofn­endum Samherja, Þor­steini Má Bald­vins­syni og Krist­jáni Vil­helms­syni á meðan eign­ar­haldið á íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu er nú hjá börnum þeirra.
Hollenskt félag Þorsteins Más og fjölskyldu á 18 milljarða eignir
FréttirSamherjaskjölin

Hol­lenskt félag Þor­steins Más og fjöl­skyldu á 18 millj­arða eignir

Fyrsti árs­reikn­ingur nýs hol­lensks félags í eigu stofn­enda Samherja gerður opin­ber. Félagið tók við eignum frá Kýpur-félögum Samherja, sam­kvæmt orðum Þor­steins Más Bald­vins­sonar. Tengsl Samherja við Holland eru orðin æði mikil og hafa þrír lyk­il­að­ilar hjá útgerð­inni sest að í land­inu frá því að Namib­íu­málið kom upp í nóv­em­ber árið 2019.
Arðgreiðslur í sjávarútvegi í fyrra: Guðmundur og Guðbjörg í algjörum sérflokki
ÚttektSjávarútvegsskýrslan

Arð­greiðslur í sjáv­ar­út­vegi í fyrra: Guð­mundur og Guðbjörg í algjörum sér­flokki

Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi og Guðbjörg Matth­í­as­dóttir í Ísfé­lag­inu í Vest­manna­eyum eru í sér­flokki þegar kemur að hlut­deild þeirra í arð­greiðslum úr sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í fyrra. Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja náðu sögu­legu hámarki í fyrra þegar arð­ur­inn út úr grein­inni rúm­lega tvö­fald­að­ist og fór í 21,5 millj­arða króna.
Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu
FréttirNý Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu

Hlutverk Baldvins Þor­steins­sonar, sonar Þor­steins Más Bald­vins­sonar, hjá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, hefur ekki legið alveg ljóst fyrir á liðnum árum. Hann hefur borið hina ýmsu starfstitla og jafn­vel stýrt félagi sem Samherji hefur keypt en á sama tíma alltaf líka verið með putt­ana í útgerð­inni á bak við tjöldin. Þetta sýna rann­sókn­ar­gögnin í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu þar sem nafn Baldvins kemur það mikið fyrir að ætla má að hann sé eins konar aðstoð­ar­for­stjóri föður síns hjá Samherja.
KPMG breytti skýrslu um völd Þorsteins Más vegna „óánægju“ hans
FréttirNý Samherjaskjöl

KPMG breytti skýrslu um völd Þor­steins Más vegna „óánægju“ hans

End­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið KPMG breytti skýrslu sinni um stjórn­endastrúktúr Sam­herj­a­sam­stæð­unnar eftir að Þor­steinn Már Bald­vins­son lýsti yfir óánægju með drög að skýrsl­unni. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefur yfir­heyrt starfs­mann KPMG, sem sá um skýrslu­gerð­ina, sem vitni og er ljóst að ákæru­valdið hefur mik­inn áhuga á valdsviði Þor­steins Más innan Samherja.
Jón Óttar sagðist ekki skyldugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Jón Óttar sagð­ist ekki skyld­ugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu

Eitt af því sem Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja, gerði ítrekað fyrir útgerð­ar­fé­lagið var að reyna að stuðla að því að mútu­greiðsl­urnar til ráða­mann­anna í Namibíu færu leynt. Jón Óttar sagð­ist ekki bera skylda til að fela þessar greiðslur en hélt samt áfram að gera það í rúm þrjú ár eftir að hann hóf störf hjá Samherja í Namibíu.
Bankastjóri og stjórnarmaður Íslandsbanka liðkuðu til fyrir viðskiptum Samherja í Namibíu
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Banka­stjóri og stjórn­ar­maður Íslands­banka liðk­uðu til fyrir við­skiptum Samherja í Namibíu

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, fund­aði með stjórn­ar­manni og banka­stjóra Íslands­banka, Birnu Ein­ars­dóttur, um aðstoð við að stunda fisk­veiðar í Namibíu. Fund­ur­inn leiddi til þess að Samherji fékk með­mæla­bréf sem sent var til Bernhard Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Birna Ein­ars­dóttir segir að hún hafi ein­ungis verið að aðstoða við­skipta­vin bank­ans og að hún hafi aldrei vitað til hvers fund­ur­inn leiddi.
Jón Óttar yfirheyrður í Samherjamálinu í Namibíu  og er kominn með réttarstöðu sakbornings
FréttirSamherjaskjölin

Jón Óttar yfir­heyrður í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu og er kom­inn með rétt­ar­stöðu sak­born­ings

Fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn, Jón Óttar Ólafsson, var sendur til Namibíu, að sögn Samherja, til að skoða rekstur fyr­ir­tæk­is­ins þar í landi. Hann átti í sam­skiptum við menn­ina sem þáðu mútur frá Samherja í skiptum fyrir fisk­veiði­kvóta í Namibíu. Upp­lýs­inga­full­trúi Samherja segir að hann starfi ekki hjá félag­inu í dag.
Fjármálastjóri Samherja í Namibíu vissi ekkert um mútugreiðslurnar
FréttirSamherjaskjölin

Fjár­mála­stjóri Samherja í Namibíu vissi ekk­ert um mútu­greiðsl­urnar

Adéll Pay, fjár­mála­stjóri Samherja í Namibíu á árunum 2016 til 2020, vissi að eigin sögn ekki um mútu­greiðslur félags­ins til ráða­manna í land­inu. Pay gerð­ist upp­ljóstr­ari hjá ákæru­vald­inu í Namibíu í mál­inu, með sams konar hætti og Jóhannes Stef­áns­son'. Fjár­mála­stjóri Samherja á Spáni, Ingvar Júl­í­us­son, segir Pay hafa vitað af greiðsl­unum.

Mest lesið undanfarið ár