Aðili

Samherji

FréttirSamherjaskjölin

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur ekki svarað hvort hann hafi verið í lax­veiði í boði Samherja

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji hefur stundað það um ára­bil að bjóða starfs­mönnum sínum og velunn­urum í lax­veiði. Eitt slíkt holl hefur Samherji verið með í Rangá í ágúst og hefur Stundin undir höndum ljós­myndir úr einni ferð þangað. Stundin hefur heim­ildir fyrir að Kristján Þór Júl­í­us­son hafi verið í boðs­ferð í veiði á vegum Samherja.
FréttirSamherjaskjölin

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu bjart­sýn á aðstoð íslenskra stjórn­valda við að sak­sækja Sam­herj­a­menn

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu, Martha Imalwa, er bjart­sýn á sam­vinnu við Ísland við sak­sókn gegn þremur Sam­herj­a­mönnum. Helgi Magnús Gunn­ars­son aðstoð­ar­rík­is­sak­sókn­ari segir sam­starf við Namibíu hafa átt sér á grund­velli rétt­ar­beiðna en að Ísland fram­selji ekki rík­is­borg­ara sína til Namibíu.
FréttirSamherjaskjölin

Sak­born­ingur í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu vill að ríkið greiði lög­manns­kostnað hans

Sacky Shangala, fyrr­ver­andi rík­is­sak­sókn­ari og dóms­mála­ráð­herra Namibíu, vill að ríkið útvegi honum lög­mann eða greiði lög­manns­kostnað hans. Upp­lýs­ingar hafa komið fram sem bendla for­seta Namibíu við Sam­herj­a­málið og gæti krafa Shangala byggt á því að hann hafi verið að fylgja skip­unum.
ErlentSamherjaskjölin

Namibískur lög­maður segir for­set­ann aðal­mann­inn í Sam­herj­a­mál­inu

Namibíski lög­mað­ur­inn Maren de Klerk segir að for­seti Namibíu Hage Geingob hafi verið aðal­mað­ur­inn í spill­ing­ar­mál­inu sem kallað er Sam­herj­a­málið á íslensku. Ef de Klerk segir rétt frá er málið, sem hófst með því að sagt var frá mútu­greiðslum Samherja í land­inu, dýpra og stærra en áður hefur verið talið og snýst meðal ann­ars um æðsta ráða­mann þjóð­ar­innar.
Nærmynd

Þrjátíu ára stuðn­ingur Krist­jáns Þórs við hags­muni Samherja

Kristján Þór Júl­í­us­son, núver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Dalvík, Ísafirði og Akureyri, hefur í 30 ár verið sagður hygla útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja. Á síð­ast­liðnum ára­tugum hefur Kristján Þór verið stjórn­ar­for­maður Samherja, unnið fyrir útgerð­ina sem sjó­maður, umgeng­ist Þorstein Má Bald­vins­son við mýmörg til­felli, verið við­staddur sam­komur hjá útgerð­inni, auk þess sem eig­in­kona hans hann­aði merki fyr­ir­tæk­is­ins.

17 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár