Flokkur

Leigumarkaður

Fréttir

Samfé­lags­legar lausnir á sjúkum leigu­markaði

Lengi hefur verið talað um neyðar­ástand á leigu­markaði. Leiguverð á höfuð­borgar­svæðinu hefur hækkað töluvert umfram tekjur síðastliðin ár með þeim afleiðingum að æ fleiri flytja út fyrir borgina, úr landi eða enda hreinlega á götunni. Þá búa leigjendur á Íslandi við afar takmörkuð réttindi sé tekið mið af nágranna­löndunum. Lausnin gæti falist í því að auka vægi óhagnaðar­drifinna leigu­félaga sem rekin eru á samfélags­legum forsendum.
Reynsla

Jón Bjarki Magnússon

Þegar lúxemborgskt skúffu­félag eignaðist heimilin okkar

Berlínar­búar beita ýmsum ráðum til þess að halda niðri leigu­verði í borg sem trekkir að sér sífellt fleiri íbúa. Þegar lúxemborgskt skúffu­félag keypti nýlega litla íbúðar­blokk í austur­hluta borgarinnar tóku leigj­end­urnir sig saman og börðust gegn sölunni. Íslend­ing­arnir í húsinu höfðu litla trú á að slík barátta gæti skilað árangri.

12 mín. lestur

Viðtal

„Neita að eyða allri ævinni í að vinna fyrir einhvern stein­kassa“

Jóhann Jónsson á Akureyri hefur alltaf verið drasla­safnari en vinnur nú í því að einfalda lífið með því að taka upp mínimalískan lífsstíl. Jóhann gekk í gegnum ýmiss konar missi síðustu misseri sem varð til þess að hann ákvað að breyta til og njóta lífsins á meðan hann getur. Jóhann segir uppátækið hafa vakið mikla athygli og er þess fullviss að fleiri munu minnka við sig til þess að geta leyft sér meira.
FréttirGAMMA

Ásgeir mælir gegn opinberu eignar­haldi leigu­félaga: „Hef ekki komið nálægt GAMMA síðan 2014“

Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði, hélt fyrir­lestur um leigu­félög og húsnæðis­markaðinn fyrir stærsta leigu­félag landsins fyrr í dag. Hann var áður efnahags­ráðgjafi GAMMA sem á eitt stærsta leigu­félag landsins. Ásgeir segist ekki hafa komið nálægt GAMMA frá 2014 og að hann vinni ekki fast fyrir neina hags­munaðila á leigu­markaðnum í dag.

Mest lesið undanfarið ár