Flokkur

Leiðari

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Stjórn­mála­menn sem velja að draga ekki línu í sand­inn

Almenn­ingur á að geta gert ríkar kröfur til þeirra sem bjóða sig fram sem kjörnir full­trúar. Þótt þeir geri slíkt fyrir hönd ákveð­inna stjórn­mála­flokka, og þar af leið­andi til að beita sér fyrir ákveð­inni hug­mynda­fræði, þá eru mörg mál sem falla utan þess ramma. [links]Í þeim málum reynir á getu stjórn­mála­manna að standa í lapp­irnar og taka rétta sið­ferð­is­lega afstöðu....
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hvað finnst Íslend­ingum um þriðja orku­pakk­ann?

Umræðan um þriðja orku­pakk­ann heldur áfram. Síðustu daga hafa birst margs­konar vís­bend­ingar um hversu djúpt sú umræða ristir í íslensku sam­fé­lagi. Álykt­unin sem hægt er að draga af þeim vís­bend­ingum er að hún ristir ekki mjög djúpt. Líkast til er umræðan mest að eiga sér stað á milli háværra hópa á sitt­hvorum pólnum, þeirra sem eru mjög and­snúnir inn­leið­ingu pakk­ans...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Tengj­umst Afríku

Við höfum verið minnt á það að und­an­förnu að ýmis­legt sem ger­ist út í heimi getur haft mikil bein áhrif á þjóð­ar­hag. Kyrr­setn­ing á til­teknum teg­undum flug­véla frá Boeing, 737 Max, er t.d. orðin að nokkuð stórum óvissu­þætti fyrir íslenskt efna­hags­líf og þá einkum ferða­þjón­ust­una. Fyrir lítið eyríki, sem er þátt­tak­andi í alþjóða­væddu efna­hags­lífi heims­ins, þá geta svona hlutir orðið...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Baráttan um flug­brúna

Í aðdrag­anda og við fall WOW air skap­að­ist umræða um eitt atriði, sem skiptir Ísland miklu máli. Það er flug­brúin - teng­ingin við umheim­inn með flug­vélum. Um 43 pró­sent af gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­búss­ins hefur mátt rekja til þeirra ferða­manna sem koma til lands­ins en um 98 pró­sent þeirra kemur með flug­vélum og afgang­ur­inn með skemmti­ferða­skipum. Fall WOW air var áfall fyrir...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Horfum lengra

Scott Bedburry, þraut­reyndur ímyndar- og mark­aðs­maður og goð­sögn í aug­lýs­inga­geir­anum, kom til Íslands til að halda fyr­ir­lestur á ÍMARK-deg­inum árið 2011. Í tengslum við komu hans veitti hann við­töl og svar­aði spurn­ingum. Ég ákvað á þeim tíma að senda honum tíu spurn­ingar, sem hann svar­aði mjög skemmti­lega og af mik­illi sam­visku­semi. Sumt af því var svo birt í Við­skipta­blað­inu, og...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Tölum um þriðja orku­pakk­ann

Nýverið birt­ist leið­ari á þessum vett­vangi þar sem farið var yfir póli­tík­ina sem drífur áfram umræðu um hinn svo­kall­aða þriðja orku­pakka. Hann er hægt að lesa hér. Á þeim örfáu dögum sem liðnir eru frá því að hann var birtur þá hefur umræðan um þetta mál orðið enn ofsa­fengn­ari og marg­falt þvæld­ari. Stað­reyndir virð­ast ekki skipta neinu máli og orð­ræðan...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Tvær leiðir til að bæta ákvarð­anir

Stærsti eigna­mark­aður Íslands er fast­eigna­mark­að­ur­inn. Hann er jafn­framt sá mark­að­ur­inn þar sem almenn­ingur á mest undir. Á honum hvílir sparn­að­ar­upp­bygg­ing fólks að miklu leyti. Í gegnum eigið hús­næði og einnig í gegnum líf­eyr­is­kerfið. Stór hluti eigna líf­eyr­is­sjóða lands­manna er tengdur fast­eigna­mark­að­anum. Sjóð­irnir eiga yfir 3.200 millj­arða í inn­lendum verð­bréfa­eignum, sem meðal ann­ars eru í skuldum heim­il­anna í land­inu. Þá eiga...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Vopnahlé í stétta­stríði

Það fór líkt og spáð var á þessum vett­vangi fyrir fimm mán­uðum síðan, að kjara­samn­ingar fyrir 110 þús­und manns, rúman helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar, voru kláraðir með stór­auk­inni aðkomu stjórn­valda sem ætlað er að stuðla að ann­ars konar lífs­kjara­bótum en launa­hækk­unum. Það var talað við fólk, í stað þess að tala á það. [links]Við blasti að annað hefði verið ómögu­legt. Til...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Tenging sem fram­tíð­ar­sýn

Í nýlegu bréfi heim­spek­ings­ins Yngve Slyngstad, sem er æðsti stjórn­andi norska olíu­sjóðs­ins - stærsta fjár­fest­inga­sjóðs í heimi - lýsir hann sýn sinni og stefnu sjóðs­ins á stöðu efna­hags­mála í heim­inum og hvernig sjóð­ur­inn eigi að nálg­ast mark­að­ina. Bréfið var meðal ann­ars gert að umtals­efni í ítar­legu og sjald­gæfu við­tali við Slyngstad við Bloomberg á dög­unum. Bréfið var sent til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Í varn­ar­stell­ingum

Til­kynn­ingin frá því í gær um að Icelandair hefði fengið lán upp á 80 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 10 millj­arða króna, frá inn­lendri lána­stofnun (sem reynd­ist vera Lands­bank­inn, að sögn Morg­un­blaðs­ins í morgun), sýnir að félagið er að takast á við gjör­breyttan veru­leika í íslenskri ferða­þjón­ustu. Eins og áður hafði verið greint frá var félagið að brjóta gegn skil­málum í fjár­mögnun,...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Svona tapa stjórn­mál til­trú almenn­ings

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er lögð umtals­verð áhersla á traust. Þar stendur meðal ann­ars: „Rík­is­stjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu.“ Til að fylgja þessu mark­miði eftir skip­aði Katrín starfs­hóp strax í jan­úar 2018 sem hafði það hlut­verk að efla traust á stjórn­mál og stjórn­sýslu. Sá hópur skil­aði af sér nið­ur­stöðum í byrjun...

Mest lesið undanfarið ár