Flokkur

Leiðari

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þeir sem eru án sóma­kenndar sigra

Klaust­ur­málið fór á þann veg sem við var búist. Í afstöðu­bréfum þeirra fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins – hóps sem mannar einnig stjórn þess flokks – er því lýst að ger­endur séu þolendur. Að fólkið sem klæmd­ist um og nídd­ist á sam­þing­mönnum á Klaustri, lét nið­ur­lægj­andi orð falla um fatl­aða bar­áttu­mann­eskju, sam­kyn­hneigðan tón­list­ar­mann og ýmsa fleiri, væru fórn­ar­lömb póli­tísks sam­særis. Formaður flokks­ins,...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Eru Íslend­ingar æski­legri en útlend­ingar?

Í Stak­steinum Morg­un­blaðs­ins í gær, sem skrif­aðir eru nafn­lausir en á ábyrgð rit­stjór­anna tveggja, er fjallað um það að Íslend­ingar séu að flýja Reykja­vík­ur­borg. Það er ekk­ert nýtt að í rit­stjórn­ar­skrifum Morg­un­blaðs­ins birt­ist mikil andúð á flestallri þróun sem á sér stað í höf­uð­borg­inni en rök­semd­ar­færslan í þetta skiptið vekur athygli. Í Stak­stein­unum, þar sem fyr­ir­sögnin er „Íslend­ingar flýja borg­ina“,...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Lausnin er að draga tjöldin frá

Breski auð­kýf­ing­ur­inn Jim Ratcliff - sem hagn­ast hefur á efna­iðn­aði, ekki síst innan olíu­geirans - heldur áfram að kaupa jarðir á Norð­ur­landi og Aust­ur­landi. Nú síð­ast var greint frá kaupum hans á Brú­ar­landi 2 í Þistil­firði, sem er óskipt jörð í landi Gunn­ars­staða. Þetta hefur valdið deilum og áhyggjum, ekki síst hjá þeim sem eiga jarðir í nágrenni og þykir...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Það er val að líta undan

Enn á ný stendur til að vísa börnum sem hafa komið til Íslands í leit að öryggi, tæki­færum og betra lífi aftur í óboð­legar flótta­manna­búðir vegna þess að þau lentu ekki fyrst á Íslandi þegar þau komu til Evrópu. Það á að senda Sawari-fjöl­skyld­una (faðir með tvo syni) og Safari-fjöl­skyld­una (móður með tvö börn) aftur í flótta­manna­búðir í Grikk­landi. Það...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Styðjum litlu fyr­ir­tækin

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur stendur nú frammi fyrir sínu stærsta verk­efni til þessa, sem er að móta áætlun og stefnu til að bregð­ast við erf­ið­leikum í efna­hags­líf­inu. Eftir mik­inn upp­gangs­tíma og hag­vaxt­ar­skeið - sem keyrt var áfram af vexti í lág­launa­störfum innan ferða­þjón­ust­unnar og bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins - þá er veru­leik­inn breyttur. Hagspár gera ráð fyrir dramat­ískri breyt­ingu frá því sem var í...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Vandi er um slíkt að spá

Und­an­farin tvö ár eða svo hafa umfjall­anir um bylt­ingu í fjár­mála­geir­anum verið fyr­ir­ferða­miklar. Þær hafa oft snú­ist um bálka­keðjur (Blockchain) og raf­myntir (cryptocurrency), og hvernig ný tækni er að opna leiðir til að stunda við­skipti með öðrum hætti en áður hefur þekkst. Fréttir af íslenska sprota­fyr­ir­tæk­inu Monerium, sem hefur nú fengið leyfi frá FME til að gefa út raf­eyri í...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Skyn­sam­legar til­lögur en óvissu­ský í aug­sýn

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, og Þor­steinn Víglunds­son, vara­for­maður, kynntu efna­hags­til­lögur flokks­ins í dag, en eðli­legt er að tala um þær sem við­spyrnu­til­lögur í ljósi þess sam­drátt­ar­skeiðs sem nú er í kort­unum, eftir mikið hag­vaxt­ar­tíma­bil. Til­lög­urnar eru skyn­sam­legar og ábyrgar og miða að því að vinna gegn sam­drætti með auk­inni opin­berri fjár­fest­ingu. Hún hefur verið undir sögu­legu með­al­tali lengi og...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hunda­flaut

Í gær­morgun birt­ist frétt á for­síðu Morg­un­blaðs­ins. Meginmál hennar var 79 orð og hún vís­aði ekki inn á frek­ari umfjöllun inni í blað­inu, líkt og vani er með stutt­orðar for­síðu­fréttir. Fyr­ir­sögn hennar var „Hæl­is­leit­andi safn­aði geyma­sýru á Ásbrú“. Hér er meg­in­mál frétt­ar­innar í heild sinni: „Hæl­is­leit­andi í búsetu­úr­ræði Útlend­inga­stofn­unar á Ásbrú í Reykja­nesbæ var í vor stað­inn að því að...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Tölum um þjóðar­ör­yggi

Í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi í vik­unni sem leið mátti heyra auk­inn áhuga á umhverf­is­málum, hjá svo til öllum flokkum. Vakning er í umhverf­is­málum um allan heim, þar sem miklar áskor­anir til að vinna gegn mengun og hlýnun jarðar - og umfangs­miklum vist­kerf­is­breyt­ingum vítt og breytt í nátt­úr­unni henni sam­hliða - eru almennt taldar mik­il­væg­ustu mál stjórn­mála þessi miss­erin. Ein af...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Aðkallandi að hag­ræða í banka­kerf­inu

Það var ánægju­legt þegar pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað að lækka meg­in­vexti bank­ans úr 4,5 pró­sent í 4 pró­sent. Þetta kemur á góðum tíma fyrir hag­kerfið, þar sem sam­dráttur er nú í kort­unum eftir for­dæma­laust hag­vaxt­ar­skeið frá árinu 2010. Bráða­birgða­tölur Hagstofu Íslands segja að hag­vöxtur í fyrra hafi verið 4,6 pró­sent, en spá Seðla­bank­ans - sem birt­ist í pen­inga­málum á mið­viku­dag...
Leiðari

Magnús Halldórsson

2020-kyn­slóðin

Við sem eigum for­eldra sem upp­lifðu hug­mynda- og upp­lýs­inga­bylt­ing­una á árunum 1965 til 1975 - sem kalla má 68-kyn­slóð­ina - vitum að sá tími risti djúpti í sam­fé­lagið og hafði mót­andi áhrif á fólk. Lista­menn eins og Bob Dylan voru boð­berar aðhalds gagn­vart yfir­vald­inu, og sungu um það með sker­andi beittum textum. Mörg hund­ruð þús­und manns fylltu plássin á fjölda­fundum...
Leiðari

Magnús Halldórsson

Brjál­æð­ing­ur­inn Duterte og hávaxt­ar­svæðið Fil­ipps­eyjar

Kveikjan að ítar­legri umfjöllun rit­stjórnar New York Times, um fjöldamorðin á Fil­ipps­eyjum, voru myndir sem ljós­mynd­ar­inn Raffy Lerma, sem vinnur hjá The Phil­ippine Daily Enquirer, hefur tekið yfir langan tíma. Mynd­irnar sýna fórn­ar­lömb brjál­æð­is­ins sem Duterte for­seti hefur staðið fyrir, en hann beitir nú aftöku­sveitum til að drepa fíkla - tug­þús­undum saman. Aðgerð­irnar eru í gangi sam­kvæmt stefnu for­set­ans. Fjöldamorð...

Mest lesið undanfarið ár