Flokkur

Kynferðislegt ofbeldi

Fréttir

Varaði barna­verndar­yfirvöld við bróður sínum áður en dætur hans kærðu hann fyrir kynferðis­brot

Systir manns, sem er grunaður um að hafa misnotað dætur sínar, tilkynnti hann til barna­verndar­yfirvalda, en fékk þau svör að ekkert væri hægt að gera fyrr en kominn væri upp rökstuddur grunur um að hann hefði brotið gegn þeim. Í mörg ár hefur fjöl­skyldan setið hjá, full vanmáttar og vonað það besta en óttast það versta. Nú hafa tvær dætur hans kært hann fyrir kynferðis­ofbeldi, en fyrir er hann dæmdur fyrir brot gegn elstu dóttur sinni.

9 mín. lestur

ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

„Vona að pabbi fái þann dóm sem hann verðskuldar“

Guðrún Kjartans­dóttir var barn að aldri þegar faðir hennar misnotaði hana. Nýlega var hann færður í gæslu­varðhald vegna gruns um að hafa brotið gegn þriðju dóttur sinni. Guðrún hefur alltaf haft áhyggjur af systkinum sínum, reynt að fylgjast með og höfða til samvisku föður síns, en furðar sig á því af hverju dæmdir barna­níðingar fái að halda heimili með börnum. Hún stígur fram með móður sinni, Katrínu Magnúsdóttur, í von um að stjórn­völd endur­skoði misbresti í kerfinu svo betur sé hægt að vernda börn.

34 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár