Fréttamál

Kvika og útrásin til Bretlands

Fréttir

Kaup Kviku á Ortus: Kjartan hagnaðist um nærri 200 milljónir sama ár

Einn af þeim almennings­hluta­félagið Kvika keypti hlutabréf í breska veðlána­fyrirtækinu Ortus af árið 2022 var félag í eigu fjár­festisins Kjartans Gunnars­sonar, fyrr­verandi framkvæmda­stjóra Sjálfstæðis­flokksins. Hann og Ármann Þorvaldsson, þáverandi aðstoðar­forstjóri Kviku og núverandi forstjóri, eru viðskipta­félagar og áttu meðal annars báðir hlutabréf í Ortus á sama tíma.
Viðskipti

Viðskipta­vild helmingurinn af 5,5 milljarða kaupum Kviku af hluthöfum bankans

Almennings­hluta­félagið Kvika, sem er meðal annars í eigu lífeyris­sjóða, keypti meirihluta í bresku fasteigna­veðlána­fyrirtæki árið 2022. Fyrir­tækið var áður í eigu forstjóra Kviku, Ármanns Þorvalds­sonar, sem starfaði þar í nokkur ár. Þeir sem seldu Kviku fyrir­tækið voru meðal annars stærsti einka­aðilinn í hluthafa­hópi bankans, Stoðir. FME hefur áður sektað Kviku út af viðskiptum sem tengjast Ortus. Kvika segir ekkert athuga­vert við viðskiptin og að hlutlaustir utan­aðkomandi sérfræðingar hafi komið að þeim.

Mest lesið undanfarið ár