Aðili

Kristján Skúli Ásgeirsson

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Kári um brjósta­skurð­aðgerðirnar: „Það er verið að galopna á einka­væðingu íslensks heilbrigðis­kerfis“

Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, hafnaði samvinnu við Klíníkina vegna kvenna með BRAC-stökk­breytinguna árið 2014. Kára hugnaðist ekki að einka­fyrirtæki myndi ætla að framkvæma fyrir­byrggj­andi skurð­aðgerðir á konum sem eru arfberar fyrir stökk­breytinguna sem valdið getur krabba­meini. Nú hefur Klíníkin hins vegar fengið leyfi til að gera fyrir­byggjandi aðgerðir á konum með BRAC-stökk­breytinguna.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­tryggingar reyna að fá Kristján Þór til að samþykkja einka­væðingu á brjósta­skurð­aðgerðum

Klíníkin gerir brjósta­skurð­aðgerðir á færeyskum konum í aðstæðum sem heilbrigðis­ráðuneytið vildi ekki samþykkja fyrir konur sem eru sjúkra­tryggðar á Íslandi. Stein­grímur Ari Arason segir að forsendur hafi breyst frá því að heilbrigðis­ráðuneytið hafnaði beiðni Klíník­ur­innar 2014. Land­læknis­embættið segist ekki hafa vald til þess að hlutast til um á hvaða sjúklingum Klíníkin gerir brjósta­skurð­aðgerðir. Heil­brigð­is­ráu­neytið hafnaði beiðninni í desember.

Mest lesið undanfarið ár