Svæði

Ísland

Viðtal

„Ég er hvort sem er að deyja“

Eysteinn Skarp­héðinsson er með 4. stigs krabba­mein í vélinda og eru reykingar og óhófleg áfengis­neysla helstu áhættu­þættir. Meðal­aldur þeirra sem greinast er um 72 ár. Eysteinn er 41 árs, hefur reykt frá 14 ára aldri og hefur verið alkóhól­isti í 24 ár auk þess að vera í neyslu annarra vímuefna. „Það er þannig með alkóhólisma; það er alveg sama hvert maður fer - hann kemur alltaf með. Hann eyði­leggur, eyði­leggur og eyði­leggur,“ segir hann.

24 mín. lestur

Fréttir

Gagnrýnir ríkis­stjórnina fyrir skort á samráði: Samráðs­nefnd ekki með í ráðum

Katrín Jakobs­dóttir gagnrýnir stjórnar­meirihlutann fyrir skort á samráði við gerð aflands­krónu­frumvarps Bjarna Benedikts­sonar. Hún segir ólíklegt að gjaldeyris­höft verði afnumin fyrir kosningar í haust. „Staðreyndin er sú að frum­varpið mun ekki aflétta höftum af íslenskum almenningi, fyrir­tækjum og lífeyris­sjóðum og enn liggur ekki fyrir hvenær það verður gert.“
Fréttir

Reiðhjóli bæjar­fulltrúans stolið: Lögreglan brýnir fyrir fólki að geyma þau innandyra

Friðjón Einarsson, bæjar­fulltrúi í Reykja­nesbæ, varð fyrir því óláni á föstudags­kvöldið að reiðhjóli hans var stolið. Nú þegar nær dregur sumri aukast þjófnaðir af þessu tagi. Varð­stjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, Bjarney Annels­dóttir segir þessa þjófnaði nú eiga sér stað allan ársins hring en hennar reiðhjóli var stolið þar sem það stóð læst fyrir utan heimili hennar í fyrra.
ÚttektForsetakjör 2016

Sigurplan Davíðs Oddssonar

Stundin kynnti sér hernaðar­áætlun umdeildasta stjórn­málamanns síðari ára, sem vinnur að endurkomu á valdastól. Kosninga­stjórar hans úr röðum Sjálfstæðis­flokksins og útgáfu­félagi Morgun­blaðsins hyggjast virkja hóp til að breyta viðhorfi til hans á samfélags­miðlum. Davíð Oddsson hefur mótað goðsögn um sjálfan sig sem hann kynnir markvisst. Hann ætlar að verða mótvægið við „sálrænum vanda“ þjóðarinnar. Goðsögnin sem hann kynnir þjóðinni samræmist hins vegar ekki sögunni.

26 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár