Svæði

Ísland

FréttirFjölmiðlabann Útlendingastofnunar

Íslenska ríkið má ekki banna heim­sóknir til flótta­fólks

Útlend­inga­stofnun lagði árið 2016 blátt bann við heim­sóknum fjöl­miðla­manna á heim­ili flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. Inn­an­rík­is­ráðu­neytið lagði blessun sína yfir verk­lagið og sagði það stuðla að mannúð. Ung­verska ríkið hlaut nýlega dóm fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu vegna sam­bæri­legrar fjöl­miðla­tálm­unar.

9 mín. lestur

FréttirEinkavæðing bankanna

Finnur Ing­ólfs­son „skamm­ast“ sín út af blekk­ingum í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.
Fréttir

Svandís ávítti lækna fyrir gíf­ur­yrði um bráða­mót­tök­una: „Töluverð áskorun fyrir ráð­herra að standa með Land­spít­ala“

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði lækna Land­spít­al­ans „tala spít­al­ann niður“ með yfir­lýs­ingum um neyð­ar­á­stand á bráða­mót­töku. Þetta sagði hún á lok­uðum fundi með lækna­ráði. Þá sagð­ist hún vilja fleiri „hauka í horni“ úr röðum lækna.
Fréttir

Málið fer fyrir dóm og fjöl­skyldan verður ekki send úr landi á næst­unni

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur sam­þykkt umsókn um frestun rétt­ar­á­hrifa í máli Razia Abassi og Ali Ahmadi, átján og nítján ára nýbak­aðra for­eldra frá Afganistan sem hefur verið synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Í frest­un­inni felst að þeim er heim­ilt að dvelja hér á landi þar til að mál þeirra fer fyrir dóm. Verjandi hjón­anna segir að mál verði höfðað á næstu dögum.

Mest lesið undanfarið ár