Svæði

Grikkland

Fréttir

Börn verða send til Grikk­lands í fyrsta sinn á morgun

Ungir foreldrar frá Írak með fjögur börn verða að óbreyttu sendir til Grikk­lands á morgun. Þrátt fyrir að mörgum fjöl­skyldum hafi að undan­förnu verið synjað um vernd hér hefur ekkert barn verið sent til Grikk­lands, enn sem komið er. Talsmaður Rauða krossins segir mikið óvissu­ástand ríkja þar. Þrjú Evrópu­ríki hafa tekið ákvörðun um að taka við fólki frá Grikk­landi, vegna þess.
Fréttir

Málið fer fyrir dóm og fjöl­skyldan verður ekki send úr landi á næstunni

Kærunefnd útlendinga­mála hefur samþykkt umsókn um frestun réttar­áhrifa í máli Razia Abassi og Ali Ahmadi, átján og nítján ára nýbakaðra foreldra frá Afganistan sem hefur verið synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Í frestuninni felst að þeim er heimilt að dvelja hér á landi þar til að mál þeirra fer fyrir dóm. Verjandi hjónanna segir að mál verði höfðað á næstu dögum.
Viðtal

Varoufakis: Íslendingar heppnir að standa utan Evrópu­sambandsins

Yanis Varoufakis kynntist skugga­hliðum Evrópu­samstarfsins sem fjármála­ráðherra Grikk­lands en nú berst hann fyrir róttækum breytingum á umgjörð ESB. Stundin spurði Varoufakis um framtíð umbóta­stjórnmála í Evrópu, uppgang nútíma­fasisma og efnahags­vandann á evru­svæðinu. Hann telur að Evrópa hefði farið betur út úr alþjóð­legu fjármála­kreppunni ef fordæmi Íslands hefði verið fylgt í auknum mæli og byrðum velt yfir á kröfuhafa fremur en skatt­greiðendur.

11 mín. lestur

Úttekt

Flóttinn aftur til Sýrlands

Fjöldi fólks sem flúði viðvarandi stríðs­ástand í Sýrlandi gefst upp á voninni um betra líf í Evrópu og leggur líf sitt aftur í hættu til að komast heim. Þórunn Ólafs­dóttir ræddi við fólk sem sneri aftur í aðstæður sem eru svo óhugnanlegar að talið er að um 13 milljónir þurfa á neyðar­aðstoð í landinu. „Hér héldum við að við yrðum örugg og fengjum hjálp. Aðstæðurnar sem við búum við eru það versta sem við höfum séð og við höfum ekki lengur von um að þær lagist. Frekar tökum við áhættuna,“ sagði barna­fjölskylda.

Mest lesið undanfarið ár