Flokkur

Fréttir

Fréttir

20 millj­arða við­skipti í húfi

Bann við inn­flutn­ingi á mat­vælum til Rúss­lands frá Vest­ur­löndum, sem stjórn Vladímir Pútíns, for­seta Rúss­lands, hefur sam­þykkt og komið í fram­kvæmd, getur haft víð­tæk áhrif hér á landi. Útflutn­ingur til Rúss­lands frá Íslandi hefur verið mjög vax­andi frá árinu 2008, en þá nam heild­ar­verð­mæti útflutn­ings þangað 6,2 millj­örðum króna sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands. Árið 2013 var þessi tala komin...
Fréttir

Uppgjör Björg­ólfs tryggir honum ævin­týra­legan auð

Í gær var til­kynnt að skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar væri lokið og að hann hefði greitt kröfu­höfum sínum, að mestu stórum alþjóð­legum bönkum, sam­tals um 1.200 millj­arða króna. Magnús Hall­dórs­son blaða­maður og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, fjöll­uðu ítar­lega um skulda­upp­gjör Björg­ólfs Thors í bók sinni Ísland ehf.-Auðmenn og áhrif eftir hrun, sem kom út í ágúst 2013. Kaflinn um...
FréttirLekamálið

Vill að Hanna Birna verði yfir­heyrð á opnum nefnd­ar­fundi

Píratar hafa kraf­ist þess að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra, Stefán Eiríks­son frá­far­andi lög­reglu­stjóri og Sigríður Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari verði kölluð fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis vegna meintra afskipta ráð­herra af lög­reglu­rann­sókn á leka­mál­inu svo­kall­aða. Ekki liggur fyrir hvort Pírötum verður að ósk sinni, en það mun ráð­ast eftir næsta fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sem enn hefur ekki verið dag­settur. Birgitta Jóns­dóttir,...
FréttirLekamálið

Umboðs­maður vill fá skýr­ari svör frá inn­an­rík­is­ráð­herra

Umboðs­maður Alþingis hefur sent Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra og Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra sitt­hvort bréfið vegna leka­máls­ins. Bréfið til Sig­mundar Davíðs er vegna siða­reglna ráð­herra. Hitt bréfið er sent til inn­an­rík­is­ráð­herra vegna þess að umboðs­manni finnst svör Hönnu Birnu við spurn­ingum sem hann sendi henni í síð­ustu viku ekki full­nægj­andi. Hanna Birna hefur til 15. ágúst að svara bréf­inu. Í...
Fréttir

Kjarninn og Locatify til­nefnd til alþjóð­legra verð­launa

Kjarninn hefur verið til­nefndur til hinna alþjóð­legu WSA-mobile (World Summit Awards) verð­launa Sam­ein­uðu þjóð­anna í flokknum m-Media&news, eða í staf­rænna miðla og frétta. Alls eru 454 verk­efni til­nefnd í átta flokkum. Kjarninn er eitt af tveimur íslenskum fyr­ir­tækjum sem hlaut til­nefn­ingu. Hitt er Locatify,sem er til­nefnt í flokknum m-Tourism&Culture, eða staf­rænnar ferða­þjón­ustu og menn­ingar. Hægt er að lesa allt um...
FréttirLekamálið

Búist við nið­ur­stöðu í leka­mál­inu um miðjan ágúst

Búist er við að rík­is­sak­sókn­ari muni til­kynna um nið­ur­stöðu sína í leka­mál­inu svo­kall­aða fyrir miðjan ágúst, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Nið­ur­staða emb­ætt­is­ins getur verið á þrjá vegu: það getur ákveðið að ákæra í mál­inu, fella það niður eða vísa því aftur til lög­reglu til frek­ari rann­sóknar. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur rann­sakað leka­málið svo­kall­aða síðan í febr­úar. Málið snýst um það að...
FréttirLekamálið

Hanna Birna gagn­rýndi seina­gang og fund­aði með lög­reglu­stjóra

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, inn­an­rík­is­ráð­herra, gagn­rýnir seina­gang við rann­sókn á leka­mál­inu svo­kall­aða í bréfi til Tryggva Gunn­ars­sonar, Umboðs­manns Alþingis. Bréfið hefur verið birt á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins en Tryggvi sendi fyr­ir­spurn á ráð­herra eftir að hafa rætt um málið við Stefán Eiríks­son og Sigríði Frið­jóns­dóttur rík­is­sak­sókn­ara. Hanna Birna seg­ist ekki hafa hafta óeðli­leg afskipti af rann­sókn máls­ins en emb­ætti rík­is­sa­sókn­ara hefur það...

Mest lesið undanfarið ár