Flokkur

Fréttir

Fréttir

Deutsche Bank keypti Icesave-kröf­una fyrir aðra

Þýski bank­inn Deutsche Bank, sem til­kynnt var að hefði keypt Icesave-kröfu hol­lenska seðla­bank­ans í fyrra­dag, er búinn að selja kröf­una áfram. Þetta stað­festa full­trúar Deutsche Bank og hol­lenska seðla­bank­ans í sam­tali við Kjarnann. Hvorugur bank­inn vill upp­lýsa hver end­an­legir kaup­endur eru né hversu margir þeir eru. Kjarninn hefur hins vegar heim­ildir fyrir því að þeir séu á fleiri en tveir...
Fréttir

Eignir Burlington á Íslandi juk­ust um 70 pró­sent í fyrra

Eignir vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement, stærsta ein­staka kröfu­hafa fall­ina íslenskra banka, á Íslandi juk­ust um 70 pró­sent á árinu 2013. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem skilað var inn til írsku fyr­ir­tækja­skrá­ar­innar á þriðju­dag, þann 26. ágúst. Alls eru heild­ar­eignir sjóðs­ins bók­færðar á 4,1 millj­arði dala,um 480 millj­arða króna á gengi dags­ins í dag. Þær juk­ust um rúm 50...
Fréttir

Í versta falli verð ég rek­inn

Óhætt er að full­yrða að Dagur Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi hand­bolta­kappi með Val og fyr­ir­liði íslenska karla­lands­liðs­ins í hand­bolta, sé einn allra eft­ir­sótt­asti hand­bolta­þjálf­ari heims í dag. Frábær árangur hans sem leik­andi þjálf­ari með aust­ur­ríska lið­inu Bregenz, sem lands­liðs­þjálf­ari Aust­ur­ríkis og þjálf­ari þýska úrvals­deild­ar­liðs­ins Füsche Berlin hefur ekki farið fram­hjá neinum. Afrek Dags á hlið­ar­lín­unni urðu til að mynda til þess að...
Fréttir

Sparar tíma og pen­inga

Frum­kvöðl­arnir í Levo, sem er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem nú vinna að við­skipta­hug­mynd sinni í tengslum við Startup Reykja­vík við­skipta­hrað­al­inn, þróar nú hug­búnað fyrir skurð­stofur, svo skurð­læknar geti flett og skoðað myndum án þess að snerta tölvu með því að nota Myo-tölvu­arm­bandið. Sjón er sögu rík­ari. Kjarninn hitti Hans Emil Atlason, einn stofn­anda Levo, að máli til að fræð­ast um...
Fréttir

Lækn­ing­ar­máttur aðal­blá­berja

Aðal­blá­ber hafa verið notuð til lækn­inga í a.m.k. þús­und ár, en heim­ildir eru um notkun þeirra til lækn­inga í Þýska­landi allt frá 12. öld. Í seinni heims­styrj­öld­inni í Bret­landi var fyrst farið að rann­saka aðal­blá­ber þegar flug­mönnum í breska flug­hernum var gefin aðal­blá­berja­sulta því hún þótti bæta sjón þeirra, sér­stak­lega í næt­ur­flugi. Allar götur síðan hafa áhrif aðal­blá­berja á sjón...
Fréttir

Fær heila­ó­eirð ef hann grípur ekki í gít­ar­inn

Ívar Páll Jónsson lista­maður svarar sjö spurn­ingum:Hvað gleður þig mest þessa dag­ana? Fjöl­skyldan mín, sem er komin hingað til New York til að styðja mig. Hvert er þitt helsta áhuga­mál? Ég fæ heila­ó­eirð ef ég get ekki gripið í gít­ar­inn í nokkra daga, til að klambra saman meló­díum. Ég er líka sífellt að leita að nýjum og spenn­andi tón­list­ar­mönnum og...
Fréttir

Seðla­bank­inn ekki bund­inn af fresti slita­stjórnar

Seðla­banki Íslands telur sig ekki bund­inn af þeim frestum sem slita­stjórn Lands­bank­ans hefur sett honum til að sam­þykkja eða hafna sam­komu­lagi um leng­ingu á greiðslum skulda­bréfs milli Lands­bank­ans og slita­stjórnar gamla Lands­bank­ans. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þarf líka að sam­þykkja sam­komu­lagið til að það verði að veru­leika. Hann hefur ekki svarað fyr­ir­spurnum Kjarnans um málið. Upp­haf­lega var lagt upp...
Fréttir

Ráðherra og Seðla­banki fá frest til 30. sept­em­ber

Frestur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Seðla­banka Íslands til að veita sam­þykki sitt, eða hafna, sam­komu­lagi um leng­ingu á greiðslum skulda­bréfs milli Lands­bank­ans og slita­stjórnar gamla Lands­bank­ans hefur verið fram­lengdur til 30. sept­em­ber. Upp­haf­lega átti nið­ur­staða að liggja fyrir í síð­asta lagi 8. ágúst, sem var síð­ast­lið­inn föstu­dag. Þetta hefur feng­ist stað­fest hjá slita­stjórn Lands­bank­ans. Þann 5. maí var til­kynnt að...
Fréttir

Neyð­ar­fundir haldnir vegna ójöfn­uðar sem ógnar rýmkun hafta

Samhliða auk­inni skuld­setn­ingu heim­ila er ríkis­búskap­ur­inn að glíma við skyndi­legan, og stór­hættu­legan, nei­kvæðan vöru­skipta­jöfnuð. Hann er að mestum hluta til drif­inn áfram af mik­illi lækkun útflutn­ings­tekna en líka af auk­inni einka­neyslu. Það sem af er árinu 2014 er vöru­skipta­jöfn­uður Íslands nei­kvæður um tíu millj­arða króna. Það þýðir að virði þess sem við fram­leiðum og flytjum út er tíu millj­örðum króna...
Fréttir

Vöru­skipta­jöfn­uður er að skapa neyð­ar­á­stand á Íslandi

Í aðdrag­anda falls íslenska banka­kerf­is­ins haustið 2008 lifði íslenska þjóðin mjög hátt og gerði það án þess að eiga fyrir því. Í lok árs 2007 voru til að mynda fast­eigna­skuldir íslenskra heim­ila um 108 pró­sent af lands­fram­leiðslu og átti þá eftir að taka til­lit til ann­arra neyslu­skulda, eins og bíla- og yfir­drátt­ar­lána. Eftir hrunið hækk­uðu þessar skuldir mjög hratt og...

Mest lesið undanfarið ár