Flokkur

Fréttir

Fréttir

Stjórn­ar­for­maður FME ekki hætt og neitar að mæta fyrir þing­nefnd

Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir, stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME), hefur ekki viljað mæta fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd til að svara fyrir fjöl­mörg álita­mál tengd við­skiptum hennar þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir þar um. Nefnd­ar­mönnum var gefin sú skýr­ing að Halla Sigrún myndi láta af störfum sem stjórn­ar­for­maður FME eftir stjórn­ar­fund 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn, en í kjöl­far umfjöllun fjöl­miðla um við­skipti hennar til­kynnti Halla Sigrún...
Fréttir

Banka­stjóri Lands­bank­ans svar­aði fyrir Borg­un­ar­málið

Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, kom fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í morgun og svar­aði fyr­ir­spurn þing­manna um Borg­un­ar­málið svo­kall­aða, það er sölu Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans kom fátt nýtt fram í máli Stein­þórs og varði hann þá ákvörðun bank­ans að selja hlut­inn ekki í opnu sölu­ferli líkt og hann hefur gert áður. Vísaði...
Fréttir

Deutsche Bank orð­inn þriðji stærsti kröfu­hafi þrota­bús Glitnis

Þýski bankaris­inn Deutsche Bank er skráður eig­andi að kröfum í þrotabú Glitnis upp á 157,1 millj­arð króna að nafn­virði. Það gerir hann að þriðja stærsta kröfu­hafa bank­ans á eftir Burlington Loan Mana­gement, írsku skúffu­fyr­ir­tæki í eigu vog­un­ar­sjóðs­ins Davidson Kempner. Deutshe Bank hefur bætt við sig miklu magni krafna á síð­ustu tveimur árum. Alls hefur hann keypt kröfur upp á 90,9...
Fréttir

Samherji greiðir starfs­fólki í landi ríf­lega 500 þús­und auka­lega

Samherji greiðir öllu starfs­fólki sínu í landi 450 þús­und króna jóla­bónus ofan á umsamda 74 þús­und króna des­em­upp­bót. Þetta kemur fram í bréfi sem Þor­steinn Már Bald­vins­son, fram­kvæmda­stjóri Samherja, sendi starfs­mönnum og birt er á vef fyr­ir­tæk­is­ins. Samherji greiddi öllum starfs­mönnum 61 þús­und króna orlofs­upp­bót í maí, og greiðir starfs­fólki því ríf­lega 510 þús­und krónur auk­lega í laun á þessu...
Fréttir

Rio Tinto Alcan afhendir orku og greiðir 17 millj­ónir dala

Rio Tinto Alcan á Íslandi og Lands­virkjun hafa samið um breyt­ingu á orku­af­hend­ingu sem end­ur­speglar betur orku­þörf álvers­ins í Straums­vík, að því er segir í til­kynn­ingu frá Lands­virkjun. Rio Tinto Alcan greiðir Lands­virkjun 17 millj­ónir Banda­ríkja­doll­ara, vegna kostn­að­ar­ins sem það hafði í för með sér fyrir Lands­virkjun að reisa Búð­ar­háls­virkjun fyrr en þörf krafði. Árið 2010 gerðu Lands­virkjun og Rio...
Fréttir

Skattrannókn­ar­stjóri ræður því hvort gögnin verði keypt

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi sjálf­stæða skyldu til að leggja mat á virði eða mik­il­vægi gagn­anna um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum fyrir þau verk­efni sem emb­ættið sinnir. „Gengið er út frá því að sama gildi hér og um aðra rík­is­að­ila að ekki verði gerðir samn­ingar við aðra en þá sem til þess eru bærir,...
Fréttir

Greining Íslands­banka spáir hröðu vaxta­lækk­un­ar­ferli

Greining Íslands­banka spáir því að framundan sé nokkuð hratt vaxta­lækk­un­ar­ferli hjá Seðla­banka Íslands, og pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans muni lækka vexti 10. des­em­ber næst­kom­andi um 0,25 pró­sentu­stig og aftur 4. febr­úar um 0,25 pró­sentu­stig. Stýri­vextir eru nú 5,75 pró­sent og voru lækk­aðir í síð­ustu vaxta­á­kvörðun nefnd­ar­innar um 0,25 pró­sentu­stig. Gangi spá grein­ingar Íslands­banka eftir verða stýri­vextir komnir í 5,25 pró­sent í febr­úar...
Fréttir

Bibbi bloggar úr Evr­óputúr Skálmaldar: Berlín

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð. Það er lygi. Ég var of bug­aður til að blogga...
Fréttir

Mennt­un­ar­stig þjóð­ar­innar hækkar - 58.700 með háskóla­próf

Árið 2013 höfðu 45.400 manns á aldr­inum 25-64 ára ein­göngu lokið grunn­menntun, þ.e. styttra námi en fram­halds­skóla­stigi, sam­kvæmt nið­ur­stöðum úr Vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hagstofu Íslands. Það eru 27,8% íbúa og en hlut­fallið hefur farið lækk­andi á und­an­förnum árum, og var það 34,4% árið 2003, segir í til­kynn­ingu frá Hag­stof­unni vegna þessa. Mennt­un­ar­stig þjóð­ar­innar hefur því hækkað nokkuð hratt. Þegar litið er á...
Fréttir

Arion banki leggur fram kauptil­boð í 38 pró­sent hlut í Valitor

Arion banki hefur lagt fram kauptil­boð í 38 pró­sent hlut Lands­bank­ans í Valitor. Taki Lands­bank­inn til­boð­inu og selji hlut­inn þá mun Arion banki eiga 98,8 pró­sent hluta­fjár. Þetta kom fram í Kvöld­fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í dag, þá er mikil upp­stokkun í gangi á eign­ar­haldi greiðslu­korta­fyr­ir­tækja hér á landi,...
Fréttir

Eiður Smári á leið til Bolton - samn­ingar á loka­stigum

Eiður Smári Guðjohn­sen, marka­hæsti leik­maður íslenska lands­liðs­ins frá upp­hafi, er á leið til Bolton Wanderers, félags­ins sem hann spil­aði með á árunum 1998 til 2000. Arnór Guðjohn­sen, faðir Eið Smára, sagði sam­tali við Kjarnann fyrir stundu að samn­ingar væru á loka­stigum en þó ekki form­lega frá­gengnir á þess­ari stundu. Líkur eru á því að þeir klárist í dag. Eiður Smári...
Fréttir

Tíðari fundir í launa­deilu lækna og stjórn­valda - fundað í Karp­hús­inu

„Það hafa verið tíð­ari fundir að und­an­förnu, þrír fundir í síð­ustu viku og síðan hefur verið boðað til fundar í Karp­hús­inu í dag, en það liggur ekk­ert til­boð á borð­inu ennþá,“ segir Þorbjörn Jónsson, for­maður Lækna­fé­lags Íslands. Ekkert til­boð hefur komið fram í launa­deilu Lækna­fé­lags Íslands og stjórn­valda en verk­falls­að­gerðir lækna hafa nú staðið yfir í ríf­lega mánuð. Aðgerð­irnar hafa...

Mest lesið undanfarið ár