Flokkur

Fréttaskýringar

Skýring

Hahn: Enn svig­rúm til við­ræðna við Ísland

Johannes Hahn, sem í sept­em­ber var til­nefndur sem nýr stækk­unar- og nágranna­stefnu­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, segir full­ljóst að aðild­ar­við­ræður við Ísland hafi verið erf­iðar. Sér­stak­lega hafi þetta átt við við­ræðukafla um land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­mál sem ekki hafi tek­ist að loka. Hins vegar sé enn gott svig­rúm til við­ræðna. Jean-Claude Juncker, verð­andi for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, kynnti til­lögu sína að lið­skipan nýrrar fram­kvæmda­stjórnar í...
Skýring

Klúðrið í kringum Reykja­vík­ur­mara­þonið

Hinn fót­frái Arnar Pét­urs­son varð fyrstur Íslend­inga í enda­mark Reykja­vík­ur­mara­þons­ins, sem fram fór í miðbæ Reykja­víkur laug­ar­dag­inn 23. ágúst síð­ast­lið­inn. Sigur hans var afger­andi, en hann kom í mark rúmum níu mín­útum á undan næsta sam­landa hans, sem var lang­hlaupar­inn Pétur Sturla Bjarna­son sem sigr­aði Reykja­vík­ur­mara­þonið árið áður. Við kom­una í enda­markið var Arnar krýndur Íslands­meist­ari karla í mara­þoni. Skömmu...
Skýring

Mögnuð heim­sókn til Spotify - Aldrei kreppa í tón­list

Á dög­unum heim­sótti Kjarninn höf­uð­stöðvar Spotify í Stokk­hólmi við Birger Jarls­götu. Það var skemmti­legt og áhuga­vert. Ekki síst af því að maður telur sig þekkja Spotify út og inn, það er þjón­ust­una sem slíka. Sem kúnni og not­andi hug­bún­að­ar­ins á hverjum degi. En það var erfitt að ímynda sér hvað þetta er magnað fyr­ir­tæki og hvað upp­gang­ur­inn hefur verið hraður....
Skýring

Kín­verskar dyr opn­ast upp á gátt fyrir íslenska neyt­endur

Íslend­ingar hafa nú fengið toll­frjálsan aðgang að risa­vöxnum kín­verskum mark­aði og geta verslað að vild toll­frjálst hinar ýmsu vörur, þar á meðal raf­tæki, fatnað og ýmis­legt fleira. Þetta er ekki síst hægt í gegnum stórar vef­versl­anir, eins og Alibaba.com, sem hafa marg­vís­legar alþjóð­legar vörur til sölu á góðu verði. ­Frí­versl­un­ar­samn­ing­ur­inn tók gildi 1. júlí síð­ast­lið­inn en hann kveður á um...
Skýring

Leyniskjöl frá Wikileaks: TISA-sam­komu­lagið

Kjarninn birtir leyniskjöl úr TISA-við­ræð­unum í sam­starfi við Wikileaks. Við­ræð­unum er ætlað að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum. Mikil leynd hvílir yfir þeim. Vilji er til þess að vinda ofan af því reglu­verki sem sett hefur verið á fjár­mála­þjón­ustu eftir hrun, liðka fyrir veru lyk­il­stjórn­enda og sér­fræð­inga í fjár­mála­geir­anum í öðrum löndum en þeirra eigin umfram aðra og setja upp ein­hvers...
Skýring

Baráttan um Inter­netið í Kína

Tvö risa­stór tækni­fyr­ir­tæki eru alls­ráð­andi á kín­verskum mark­aði. Þau eiga allt frá net­versl­unum, leit­ar­vélum og greiðslu­kerfum til sam­skipta­smiðla, afþrey­ing­ar­veitna og leikja­fyr­ir­tækja. Á meðan annað fyr­ir­tækið, Alibaba, und­ir­býr stærsta frumút­boð hluta­bréfa í sögu tækni­fyr­ir­tækja er hitt, Tencent, í hópi fimm stærstu skráðu tækni­fé­laga heims. Varin allri erlendri sam­keppni hafa félögin tvö orðið að sann­köll­uðum risum og fjár­fest í nær öllum tækninýj­ungum...
Skýring

Hinir útvöldu

Útdeil­ing fjár­muna á grund­velli skulda­nið­ur­fell­ing­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar er að hefj­ast, eftir að aðgengi að umsókn­ar­kerf­inu var opnað í gær. Í gegnum kerfið mun sá hluti Íslend­inga sem var með verð­tryggt hús­næð­is­lán á ákveðnum tíma­bili sækja sér allt að 80 millj­örðum króna. Sá hluti Íslend­inga sem er með sér­eign­ar­sparnað mun geta notað nokkra tugi millj­arða króna hans til að greiða niður hús­næð­is­lánin...
Skýring

Sextán millj­arða króna eft­ir­gjöf

Samkvæmt ítar­legri rann­sókn Kjarnans nam eft­ir­gjöf skulda hjá fyr­ir­tækjum í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð hátt í sextán millj­örðum króna á árunum 2010 til 2012. Rannsókn Kjarnans náði til upp­lýs­inga sem fram koma í árs­reikn­ingum félaga sem falla undir bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð sam­kvæmt ÍSAT atvinnu­greina­flokkun Evr­ópu­sam­bands­ins sem inn­leidd var hér á landi árið 2008, og skil­uðu árs­reikn­ingum á umræddu tíma­bili. Félögin sem...
Skýring

Góður vilji en aug­ljósar brotala­mir

Tillögur verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála eru rót­tækar og boða miklar breyt­ingar, verði þær að lögum. Þær eru fullar af góðum vilja til að takast á við neyð­ar­á­stand í mála­flokknum, en það er oft­ast ekki nóg til að rétta við það sem er að. Hluti til­lagn­anna eru nefni­lega bein­leiðis vara­samur og gætu valdið miklum skaða. Í grófum dráttum snúnast til­lög­urnar um...
Skýring

Hreiðar Már, Sigurður og Magnús ákærðir á ný

Embætti sér­staks sak­sókn­ara hefur ákært Hreiðar Má Sig­urðs­son, Sigurð Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son, fyrrum stjórn­endur Kaup­þings, vegna kaupa á skulda­bréfu tengdum skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings og lán­veit­inga vegna þeirra kaupa. Grunur leikur á umboðs­svik og hlut­deild í slíku broti. Ákær­urnar voru birtar mönn­unum þremur í vik­unni og málið verður þing­fest 11. júní næst­kom­andi. Þetta er þriðja ákæran sem emb­ættið birtir mönn­unum þremur....
Skýring

Ástand sem á bara eftir að versna

Þó þjón­usta flestra heil­brigð­is­stétta sé nið­ur­greidd á Íslandi, svo sem end­ur­hæf­ing og sjúkra­þjálfun, gildir ekki það sama um sál­fræði­þjón­ustu. Sál­fræð­inga­fé­lag Íslands hefur ítrekað fundað með heil­brigð­is­yf­ir­völdum og bent á þetta ósam­ræmi í heil­brigð­is­kerf­inu. Á fund­unum með stjórn­völdum hefur Sál­fræð­inga­fé­lagið lagt fram ógrynni rann­sókn­ar­nið­ur­staðna máli sínu til stuðn­ings – að sál­fræði­þjón­usta borgi sig, ekki ein­vörð­ungu fyrir þá sem hennar njóta heldur...
Skýring

Háskóla­menn hræddir við valda­fólk

Sjötti hver háskóla­maður seg­ist hafa komið sér hjá því að tjá sig við fjöl­miðla vegna ótta við við­brögð valda­fólks úr stjórn­mála- og efna­hags­lífi. Þá telur meiri­hluti aðspurðra háskóla­manna að akademísku frelsi fræði- og vís­inda­manna á Íslandi stafi ógn af gagn­rýni eða hót­unum frá valda­fólki í stjórn­málum og efna­hags- og atvinnu­lífi. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar um við­horf háskóla­fólks...

Mest lesið undanfarið ár