Flokkur

Fjármál

Fréttir

Vafasamt leynd­ar­mál að baki miklum hagn­aði Borgunar

Pen­inga­slóð hins mikla gróða Borgunar, sem hefur meðal ann­ars skapað gríð­ar­legan hagnað fyrir útgerða­menn, Eng­ey­inga og hóp huldu­manna, liggur að klámi, fjár­hættu­spilum og vændi. Heild­ar­þjón­ustu­tekjur Borgunar, líkt og Valitor, hafa vaxið hratt á örskömmum tíma en nær helm­ingur þessa tekna frá báðum fyr­ir­tækjum koma erlendis frá. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar eru þetta við­skipti sem önnur færslu­hirð­inga­fyr­ir­tæki vilja ekki koma nálægt.

17 mín. lestur

Úttekt

Hæg heima­tök: Um aðgengi fjöl­skyldu Bjarna Bene­dikts­sonar að fjár­munum rík­is­ins

Fyr­ir­tæki tengd fjöl­skyldu Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra hafa frá því Bjarni hóf afskipti af stjórn­málum verið stór­tæk í samn­ingum og við­skiptum við ríkið. Hafa þau gert ein­staka íviln­ana­samn­inga við yfir­völd, keypt eign­ar­hlut fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins án form­legra sölu­ferla og notið góðs af laga­setn­ingum Bjarna. Eyjan fjall­aði um við­skipti ráð­herr­ans í fyrra.
Fréttir

Gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina fyrir skort á sam­ráði: Sam­ráðs­nefnd ekki með í ráðum

Katrín Jak­obs­dóttir gagn­rýnir stjórn­ar­meiri­hlut­ann fyrir skort á sam­ráði við gerð aflandskrónu­frum­varps Bjarna Bene­dikts­sonar. Hún segir ólík­legt að gjald­eyr­is­höft verði afnumin fyrir kosn­ingar í haust. „Stað­reyndin er sú að frum­varpið mun ekki aflétta höftum af íslenskum almenn­ingi, fyr­ir­tækjum og líf­eyr­is­sjóðum og enn liggur ekki fyrir hvenær það verður gert.“
Fréttir

Standa í vegi fyrir gisti­heim­ili á meðan bæj­ar­full­trúi byggir hótel

Í sveit­ar­fé­lag­inu Garði stendur stórt og mikið en tómt hús sem áður hýsti hjúkr­un­ar­heim­ilið Garðvang. Áhugi er fyrir því að breyta hús­inu í gisti­heim­ili en ákvæði í deiliskipu­lagi stendur í veg­inum. Á meðan byggir einn af bæj­ar­full­trúum í meiri­hluta bæj­ar­stjórnar hótel úti við Garð­skaga. Húsið er í eigu fjög­urra sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum og deila þau nú um fram­tíð þess.
Leiðari

Magnús Halldórsson

Fjár­mála­þjón­usta við almenn­ing í nýjum og gömlum far­vegi

Á örskömmum tíma hefur fjár­mála­geir­inn á Íslandi breyst, og lent svo til allur í fang­inu á íslenska rík­inu. Upp­gjörið við slita­búin, á grunni samn­ings­stöð­unnar sem neyð­ar­lögin og fjár­magns­höftin sköp­uðu, er stærsta ástæðan. Ríkið á nú rúm­lega 98 pró­sent hlut í Lands­bank­anum, stærsta banka Íslands, allt hlutafé Íslands­banka, Íbúða­lána­sjóð, Byggða­stofnun, LÍN, 13 pró­sent hlut í Arion banka og auk þess smærri...
FréttirPanamaskjölin

Grafarán, hór­mang og smygl: Auður Dorritar Moussaieff

Uppruni fjöl­skyldu­veldis Dorritar Moussaieff er reifara­kennd saga. Aðal­per­sóna hennar er faðir Dorritar, Shlomo Moussaieff. Nýlega kom út bókin Unholy Business þar sem ólög­legur flutn­ingur og verslun á forn­munum fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs er skoð­aður í kjöl­inn, og er hlutur föður Dorritar þar mjög fyr­ir­ferð­ar­mik­ill. Skatta­leg fim­leika­stökk Dorritar á milli landa til þess að halda fjár­munum utan seil­ingar skatta­yf­ir­valda höggva svo í sama knérunn og fað­ir­inn.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár